Valið stendur á milli venjulegrar ferðatösku og svona túristabakpoka.
Kostirnir við ferðatöskuna:
- Er Samsonite
- Í stíl við tölvutöskuna
- Lúkkar betur
- Frekar klossuð
- Meiri líkur á að ég komi með yfirvikt til baka
- Ógeðslega leiðinlegt að druslast heim með þunga ferðatösku í lestina
- Þægilegt að geta verið með allt draslið á bakinu (sérstaklega þegar ég fer frá Nörreport til Kastrup)
- Myndi segja að ég kæmi ekki með yfirvikt til baka, því maður nennir ekki að vera með 30 kíló á bakinu, hlaupandi til að ná lest og þess háttar.
- Ekkert að því að vera í hettupeysu og strigaskóm á leiðinni, því bakpokinn er hvort eð er ljótur.
- Leiðinlegt að vanta eitthvað sem er á botninum og þurfa að kafa eftir því
- Passar engann veginn við tölvutöskuna mína og hvað þá handfarangurstöskuna. Guð hjálpi mér ef mig langar að taka Gucci með mér í handfarangur..!
- Get ekki verið í fínum fötum og með naglalakk á leiðinni.
6 ummæli:
þú getur hætt að hugsa um yfirvikt því að íslendingar búsettir í útlöndum klúbbnum mega fara með 15 kg yfirvikt eftir að hafa verið á jólunum á Íslandi :) einum gallanum færri
kv.
Brekamamma
Ég nenni ekki að vera með 15 kíló í yfirvikt í lestinni. Nema ég fái snjórbretti og meððí í jólagjöf. :)
Æi hvað lífið getur verið grimmt við okkur stundum og nú rétt fyrir jólin. Við verðum bara að standa saman á svona stundum og finna út úr því hvora töskuna sé betra að fara með.
Þú ferð ekki með túristabakpoka ertu klikk! Ég mundi þykjast ekki þekkja þig ef ég ætti að sækja þig með einhvern risa bakpoka með flugi frá KAUPMANNAHÖFN.
Alvöru dömur ferðast með rúllutöskur. Flugfreyjutaska og Gucci. Ég segi það.
Já sammála Brynju.......grafðu nú upp pæjuna í þér og tjaldaðu því sem að til er. Engan helv. joggara og túristaaulapoka. Góða ferð núðlan mín.
Æji ég verð bara gella seinna. Vitið hvernig ég er, ég væri vís til að vera með LW töskusett í heimsreisunni og bakpoka frá köben til íslands :)
Skrifa ummæli