Sérdeilis skemmtilegt að það hafi allt verið hvítt þegar ég vaknaði í morgun. Dreif mig í sund og lá þar í tvo tíma. Í pottnum. Voða notó að fá hlussusnjókorn í andlitið og vera með kroppinn á bólakafi í sjóðandi heitu vatni. Ahhh.
Vann síðasta daginn í BabySam í dag. Skondið að vinna á aðfangadag, því meðan ég stóð og var að afgreiða taubleyjur og ömmustóla þá var til dæmis jólagrauturinn hjá mömmu. En lifi af að hafa misst af því, hefði líka misst af því þó ég hefði ekki verið að vinna. Fékk mér bara kókópöffs í staðinn.
Annars er ekki mikið stress hérna í Kórsölum. Það eru túrbójól hérna þetta árið og er heimilið lýst upp með jólaseríum. Kötturinn kominn með jólaslaufu um hálsinn og er ekki frá því að hún sé minna grumpy en venjulega. Ætlum bara að fara með pakkana núna og ég ætla að kíkja á ömmu Stínu. Síðan er bara að græja sig, skella í sig einhverju með miklu koffíni og halda jólin. Markmið jólanna í ár er að reyna að halda sér vakandi fram yfir pakkaopnun og reyna að ná í kaffi til Almars og Gúu í kvöld. Annars sér maður bara hvað batteríin duga, efast um að þau fleyti mér svo langt :)
Er farin að hlakka til að geta sofið út á morgun og verið í náttfötunum. Allavega svona milli jólaboða. Horfa á næturvaktina og gera ekki rassgat fyrr en 27.des
Hlakka líka rosa mikið til að fara út aftur. Komast heim til mín :)
1 ummæli:
hæ skotta Gleðileg Jól vonandi hafðiru það gott í gær! Jólakortið þitt er heima hjá þér svo að þú lest bara kveðjuna 29 des! En ég þarf að heyra í þér núna á næstunni með tölvuna hún er tilbúinn svo ég yrði voða þakklát ef þú gætir verið svo sæt að kippahenni með
Skrifa ummæli