Vona að fólk hafi gert sér grein fyrir að þetta var grín með að ég gæti ekki byrjað að pakka útaf því ég vissi ekki í hvora töskuna ég ætti að pakka í. Ætla að pakka light í þetta skiptið því ég á von á stórum og hörðum pökkum þetta árið. Því verður bakpokinn fyrir valinu. Brynja, mér er alveg sama hvað þér finnst, enda þarftu ekki að sækja mig!!
12 tímar í að ég leggji í'ann og bakpokinn er tómur. Ég er reyndar búin að raða í kringum hann 15 skópörum og veiðibolnum góða. Enda eina sem er hreint. 3 stórir Ikea pokar fullir af óhreinum fötum og óhreinatauskarfan full samt er fataskápurinn fullur af hreinum fötum. En nú hugsa ég eins og sannur námsmaður. Tek bara með mér skítugu fötin og fæ pabba til að þvo af mér, alveg gratis í staðinn fyrir að vera að borga 14 kr fyrir eina þvottavél. Maður getur fengið einn og hálfan bjór fyrir þann pening á skólabarnum.
Nei, ætli ég dröslist ekki í þvottahúsið á eftir og þvoi svona smá, svo að pabbi haldi ekki að ég sé alveg ófær um að sjá um mig sjálf og svipti mig sjálfræði, veitti svosem ekki af stundum..
Í morgun þegar ég vaknaði átti ég eftir að kaupa tvær jólagjafir (sem verða eftir hérna í Horsens) núna á ég enn eftir að kaupa þær. Þetta voru hinar fullkomnu jólagjafir fyrir báða aðila, en finn ekki þessa hluti. Gef þeim bara geit eða eitthvað :)
Annars er ég bara núna að hugsa hver eigi að hugsa um jólarósina mína. Hvort ég eigi ekki bara að vökva hana duglega áður en ég fer og svo sér hún bara um sig sjálf eða hvort að ég eigi að fá Jón Pétur eða Hjalla til að koma hingað einu sinni á dag og gefa greyinu að drekka. Ég er nefninlega alveg hrikalega stolt af því að vera búin að halda í þessu lífinu í tvær vikur. Alein. En þetta er jafnframt eina jólarósin í evrópu sem fær bara afgangs kók og sódavatn að drekka. Held ég hafi aldrei splæst í ferskvatn fyrir hana. Samt er hún alveg agalega hress, held ég.
Jæja, skórnir raða sér ekki sjálfir í bakpokann..
2 ummæli:
Hahaha...þú ert svo klikkuð! Já, ég efa að einhver önnur en þín jólarós sé svo heppin að fá kók og sódavatn! Hún hlýtur að vera ALSÆL! Spurning um að leyfa henni að fá smá bjór líka! En annars hlakka ég til að sjá þig elsku sæta frænka mín. Pæling að fara á Vegó 21!!??:)
Kv. Jakobína
ekki vökva hana duglega nema að þú viljir drepa hana.. Bjarni drekkti okkar í fyrra :)
kv.
Brekamamma
Skrifa ummæli