Ég er búin að setjast niður nokkrum sinnum og reyna að skrifa eitthvað jákvætt.
En það er ekki nokkur möguleiki að ég geti það.
Eftir 18 ára afmælið mitt á þriðjudaginn hef ég verið næstum jafn skapstór og pabbi.
Leyfið mér að umorða þetta.
Eftir 18 ára afmælið mitt á þriðjudaginn hef ég verið grýla.
Veit ekki hvað er að mér, en þetta er ferlegt.
Kallarnir í vinnunni vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga og segja svo inná milli "Sjett maður, ertu á túr eða??"
Það pirrar mig bara ennþá meira að kvennfólk megi ekki svo mikið sem hafa aðrar skoðanir á hlutunum en karlarnir, þá erum við á túr!
Afsakið að ég skuli hafa skoðanir.
Úff, ég er greinilega bara alltaf á túr, því að ég hef sterkar skoðanir á flestu.
En þeir hafa nú líka reynt að vera góðir við mig, eins og einn morguninn fyrir klukkan 9 um morguninn, þegar að ég hlunkaðist yfir gólfið í leit að einhverju matarkyns, sötrandi kaffi, kom einn pólskur og sagði við mig í fúlustu alvöru:
"anyone ever told you that you walk like a princess?"
"no" sagði ég
"well, now you know, you walk like a princess, so soft and gentle"
"Thanks" minnir mig að ég hafi urrað á hann og haldið mína leið...
Svona vill maður ekki heyra þegar að maður veit sannleikann.
Nújæja.
Ampop,dikta og Hermigervill á Nasa annað kvöld.
Er að pæla í að fara.
Þó ég eigi enga vini, ég er búin að afneita þeim öllum.
Og líka, þó að ég komist ekki inn, þar sem að það er 20 ára frigging aldurstakmark!!
Ég er brjáluð, þar sem að handhafar svartakortsins fá 500 kr afslátt af miðanum, og þeir sem að geta fengið svarta kortið er ungt fólk á aldrinum 18-25 ára.
Ég er 18 ára.
Heimska drasl.
Ampop og Dikta er til dæmis það sem að heldur í mér lífinu þessa dagana, ég veit að ég get klárað daginn af því að þessir diskar bíða heima.
Ég á skilið VIP passa á þessa tónleika.
"ohh, þeir verða aftur með tónleika bráðum" var sagt við mig áðan.
En miða við heppni mína síðustu daga þá hætta þessi bönd í næstu viku og ég smitast af bíbíflú-inu sem er að ganga milli bíbía þessa dagana.
Ég er orðin persóna sem ég hata.
Ég er píslarvottarpersóna
Oj
Því miður, hef ég ekkert glaðlegt að segja, komið með eitthvað sem ég get glaðst yfir.