4.4.06

Skynsami froskurinn

Bauð mér í mat áðan.
Heima hjá Kötlu og Þóru.
En það var reyndar Kristín (Hekla) sem að fór í döfulls búðina og kaupaði sósulit og aðra basic hluti sem að maður þarf til að búa til pottrétt með piparosti og hrísgrjón.
Hún stóð sig eins og hetja í eldhúsinu, en hefði nú ekki náð svona langt ef að ég og Garður hefðum ekki verið henni til halds og trausts.
En okkar hlutverk var að sitja við eldhúsborðið og skera niður grænmeti.
Garður skar 5 sveppi og ég heila papriku, hálfa A-gúrku OG piparost.
Við bættum líka Íslandsmet í grænmetisskurði, innanhúss án atrenu.
Ekki slæmt.
En svona í alvöru þá langaði mig bara að þakka Kristínu (Heklu) fyrir matinn, og reyndar Þóru líka.

Um helgina var sólin komin grunsamlega hátt á loft og ég farin að hnerra - sem er vorboði.
Í morgun vaknaði ég og það var allt á kafi í snjó, hérna uppá heiðinni sem að ég bý á.
Leiðinlegt að búa svona uppá heiði.

Jébb.
Þessi vika verður líklega mjög erfið.
Þarf að keypa afmælisgjöf fyrir farmand.
Veit EKKERT hvað ég á að kaupa fyrir hann, blessaðann.
Kannski að ég bjóði honum bara í ísbíltúr?
Eða kaupi bensín á bílinn?

By the way.
Hvað þarf maður að vera gamall til að ráða sjálfur hvað er í bílnum þegar að maður er að keyra?
Hingað til þá hef ég ekki mátt ráða því sjálf hvað ég hlusta á.
Er það ekki bílstjórinn sem að ræður?
Er ég kannski bara óþarflega lin við manninn í framsætinu?
Well, kannski á hann það skilið að velja tónlist, þar sem að ég keyri eins og asni.

Eða hvað?

31.3.06

Blablabla.
Helgarfrí mitt byrjaði klukkan 17.00 í dag.
Endar klukkan 10.00 í fyrramálið.

Ég er svo þreytt að ég gæti sofið endalaust núna.
Ætla að skella mér í sund, tæma hugann og fara að sofa.

Af hverju langar mann alltaf að gera það sem að er bannað?
Púkinn og engillinn sitja á öxlunum á mér, tosa og toga í mig til skiptis, þannig að ég er orðin alveg lost.
En ykkur að segja, þá er ég búin að komast að niðurstöðu.
Hún er rétt-og ég verð ekki skömmuð.

30.3.06


Ég er alveg að verða geðveik.
Mjööög stutt í það.
En reyndar ekki mikið eftir í þessu "ástandi"

Annars er flott að frétta fyrir utan það.
Ég held ég sé að verða sundsjúk.
Ég sem hélt að ég hefði breyst í antisundista eftir að ég flutti til Danmerkur.
En, svo álpaðist ég í sund hérna eitt kvöldið og núna er ég komin í áskrift.
Búin að eignast sundvin í vinnunni og allt. (Sjá mynd)
En þetta er voða notalegt að synda smá og dorma svo í pottinum og hlusta á gömlu kallana ræða um pólitík og veðurfar.
Gamangaman.
Ætla einmitt núna að skella mér í laugina, svo til kötlu og ef að guð lofar verð ég bara komin heim fyrir klukkan 12.00 í kvöld
Hver veit?

26.3.06

En yndislegur dagur, finn það á mér.
Sólin skín inn um gluggana, kötturinn á þörfinni, ryk í Kórsölunum og Jolene í græjunum.
Ég á joggurum og hlírabol, með hárið í tagli, búin að krema mig alla, svo ég verði sæt.
Mjög tilgangslaus aðgerð, því ég er á leiðinni í sund, ætla að ná mér í freknur.
Ég skutlaði okkur pabba um allt í gær, sem var mjög gaman, því ég réð tónlistinni, leiðinni og allt.
Mikil völd.
Sérstaklega ef að maður er bara 18 ára.
Hefði ekki viljað gera þetta 17 ára.
En hvað ég er skynsöm stúlka.

Í gær var ég voða mikil dama.
Alveg frá því að ég vaknaði og þangað til að ég fór að sofa.
Var á hælum, með blásið og sléttað hár og með gloss.
Tilefnið var 3 ára afmælið hennar Sölku minnar Sigmarsdóttur.
Kannski ögn undarlegt afmæli - en frábært engu að síður.
Súpa af fólki, úr öllum áttum.
Mér fannst bara gaman samt að hitta alla.
Í dag verður annað afmæli, 7 ára afmæli hjá Ölmu Diljá Almarsdóttur.
Það verður ekki svona mikil súpa af allskonar fólki úr öllum áttum, þar eru aðstæður kannski aðeins öðruvísi.
En það verður líka gaman, eflaust, hef ekki hitt mikið af því fólki lengi.
Í dag ætla ég að:
Fara í sund
Smáralind að kaupa eitthvað flott handa litlu frænku
Fara í afmæli hjá litlu frænku.
Knúsa Kötlu og jafnvel Þóru - Sakna þeirra.

Katla fékk Gulu.
Það var spurning um hvort að það þyrfti endurskoða pabbamál hennar.
Því að hún var eins á litin og Ásgeir Kolbeins.
Og líka með svona dökkt hár.
Þetta fannst mér fyndið.
Því hún var heiðgul, eins og Ásgeir Kolbeins á góðum degi.
Hún Katla mín er enginn trefill, fyrst var hún gul og núna er hún búin að fara í ljós líka.
Aglaznegger væri stoltur af henni núna.

23.3.06

Ekkert að ske

Líf mitt snýst um 2-3 hluti þessa dagana.
Vinna-Katla
Stundum Sæta gaurinn í vinnunni líka.
Mjög nauðsynlegt að ég hugsi um hann og horfi á hann af og til þangað til að ég frétti að hann sé alveg Gay as Christmas, giftur eða bara bæði.
Svona strákar eru ekki á hverju strái, allavega ekki á mínum stráum.
Annars er allt gott að frétta.
Katla er búin að vera alger lufsa.
Með gulu og nennir ekki að drekka eða opna augun, sefur bara útí eitt.
En hún er reyndar öll að braggast núna og var voða góð í dag/kvöld þegar að stóra systir var að lummast með hana.
Ég sendi móðurbræður mína í Mission til þýskalands að kaupa myndavél handa mér.
Fæ hana um helgina, ætla að vera dugleg að taka myndir af Kötlu svo þið getið séð alla þessa fegurð og dásemd!

19.3.06

Katla...part two


Katla kom, sá og sigraði!
Fæddist rétt um átta leytið í morgun!
Pabbi hringdi og sagði:

"Katla er komin, 15 merkur og kafloðin"
(rím)

Ég var svolítið hrædd um að hún væri þá kannski svipuð og kisan okkar eða eitthvað slíkt, ætlaði varla að þora að taka sængina af barninu þegar að ég fór í heimsókn í hreiðrið í dag.
Sá nefninlega alveg kafloðinn koll glitta undan sænginni, en varð voða fegin þegar að ég sá að þetta var nú bara á höfðinu. En barnið er eiginlega týnt í hári. Katla Lokkaprúða. Kolbikasvart, sítt og þykkt hár.
Ég og Inga Rós fórum í smáralind og versluðum á Kötlu.
Ótrúlega grúví galla, röndóttur.
Hún verður svo mikill töffari í þeim galla, með makkann útum allt.
Og enn meira flott þegar að hún fær restina af sængurgjöfinni á morgun.
Hún verður töff.
Ég og Katla verðum góðar saman.
Finn það á mér.
Hlakka til að sjá hana, hvernig hún lítur út.
Svo fyndið, búin að þekkja Kötlu síðan í janúar og vita af henni ennþá lengur, en samt aldrei séð hana.
Ég pota oft í hana og oftast sparkar hún í mig eða gefur mér olnbogaskot í staðinn.
Læt mömmu hennar borða nammi og Katla fer á flug.
Þannig tölum við saman.
Vona að hún fari að koma til okkar.

(Þetta var skrifað korteri eftir að ég sat inní sófa með Þóru og Kötlu og potaði í bumbuna og fékk spark og olnbogaskot frá Kötlu til baka.
Sagði líka við Kötlu að nú mætti hún fara að koma til okkar.
Á meðan ég skrifaði þetta efsta, um okkur Kötlu, þá Fór vatnið.
Nú eru þau á fæðingardeildinni og ég veit ekki hvernig ég á að vera.
Ég, Salka, Sindri og kisa erum heima.
Alein.)

17.3.06

FISKAR 19. febrúar - 20. mars
Notaðu daginn til þess að meta eiginfjárstöðuna, hann er frábær til þess. Verslunarleiðangur kemur líka vel út. Þú ert flinkur í að meta þarfir þínar og eyðslugetu, hvort sem þú ætlar að versla fyrir vikuna eða kaupa þér tölvu.

Hmm, kannski væri vit í að hlýða, fara í smáralind og kaupa eitthvað ógeðslega flott og dýrt?

spurning.
Ég fann lækningu við ofsapirringnum og skapbrjálæðinu.
Inga Rós sótti mig í morgun og á leiðinni sagði hún mér alvega ótrúlegt slúður.
"Oh, my god" og "Sjitt, í alvöru?" var svo það helst sem að var sagt þegar að við ræddum þetta slúður, fram og til baka á Sæbrautinni í umferðarstöppu.
Þetta hélt mér góðri fram að hádegi.
Eftir hádegi átti ég svo samtal við nokkra vinnufélga, þar á meðal yfirmann minn sem að er mjög fínn maður, en við erum samt ekkert bestu vinir.
Hann sagði við mig "Kristín Alma, þú mátt nú eiga það að þú ferð aldrei í fýlu, þó þú sért greinilega með skap, þá kanntu að nota það og ferð aldrei í fýlu!"
Mér þótti vænt um að heyra þetta frá honum.
Vinnufélagarnir sem voru þarna með okkur sátu og göptu.
Svo kom ein, sem er búin að vinna með honum í hundrað ár og sagði mér að þetta væri sko þvílíkt hrós!
Þetta gladdi mig þangað til að pabbi hringdi í mig um kaffitíman og sagðist ætla að ná í mig í vinnuna, sem er auðvitað bara toppurinn á tilverunni, því að þá þurfti ég ekki að taka strætó, en ég er auðvitað of góð fyrir það drasl.

16.3.06

Ég er búin að setjast niður nokkrum sinnum og reyna að skrifa eitthvað jákvætt.
En það er ekki nokkur möguleiki að ég geti það.
Eftir 18 ára afmælið mitt á þriðjudaginn hef ég verið næstum jafn skapstór og pabbi.
Leyfið mér að umorða þetta.
Eftir 18 ára afmælið mitt á þriðjudaginn hef ég verið grýla.
Veit ekki hvað er að mér, en þetta er ferlegt.
Kallarnir í vinnunni vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga og segja svo inná milli "Sjett maður, ertu á túr eða??"
Það pirrar mig bara ennþá meira að kvennfólk megi ekki svo mikið sem hafa aðrar skoðanir á hlutunum en karlarnir, þá erum við á túr!
Afsakið að ég skuli hafa skoðanir.
Úff, ég er greinilega bara alltaf á túr, því að ég hef sterkar skoðanir á flestu.
En þeir hafa nú líka reynt að vera góðir við mig, eins og einn morguninn fyrir klukkan 9 um morguninn, þegar að ég hlunkaðist yfir gólfið í leit að einhverju matarkyns, sötrandi kaffi, kom einn pólskur og sagði við mig í fúlustu alvöru:
"anyone ever told you that you walk like a princess?"
"no" sagði ég
"well, now you know, you walk like a princess, so soft and gentle"
"Thanks" minnir mig að ég hafi urrað á hann og haldið mína leið...
Svona vill maður ekki heyra þegar að maður veit sannleikann.
Nújæja.
Ampop,dikta og Hermigervill á Nasa annað kvöld.
Er að pæla í að fara.
Þó ég eigi enga vini, ég er búin að afneita þeim öllum.
Og líka, þó að ég komist ekki inn, þar sem að það er 20 ára frigging aldurstakmark!!
Ég er brjáluð, þar sem að handhafar svartakortsins fá 500 kr afslátt af miðanum, og þeir sem að geta fengið svarta kortið er ungt fólk á aldrinum 18-25 ára.
Ég er 18 ára.
Heimska drasl.
Ampop og Dikta er til dæmis það sem að heldur í mér lífinu þessa dagana, ég veit að ég get klárað daginn af því að þessir diskar bíða heima.
Ég á skilið VIP passa á þessa tónleika.
"ohh, þeir verða aftur með tónleika bráðum" var sagt við mig áðan.
En miða við heppni mína síðustu daga þá hætta þessi bönd í næstu viku og ég smitast af bíbíflú-inu sem er að ganga milli bíbía þessa dagana.

Ég er orðin persóna sem ég hata.
Ég er píslarvottarpersóna
Oj


Því miður, hef ég ekkert glaðlegt að segja, komið með eitthvað sem ég get glaðst yfir.

13.3.06

Afmælisþunglyndið er komið..

Ég á afmæli í dag
Ég á afmæli í dag
Ég á afmæli í daaaag
Ég á afmæli í dag.

Ég er 18 ára í dag
Ég er 18 ára í dag
Ég er 18 ára í daaaag
Ég er 18 ára í dag.


Takk fyrir mig.

Ég vil ekki verða stór.
Finnst 18 vera gamalt, ég vil vera 5 ára aftur.
Það var góður og áhyggjulaus aldur.
Ég er Pétur Pan.
Ég vil bara sofa í voffa náttfötum og leika mér aftur með Tuma minn.
Geta skriðið í fangið á mömmu og pabba þegar að einhver er vondur við mig eða mér líður illa.
Núna er það bara ábyrgð og vesen.
NEITA AÐ VERÐA FULLORÐIN!

( Sjitt, hversu þunglynd verð ég þegar að ég verð fertug, ef ég er svona núna. )

Ætla að láta einhvern bjóða mér út að borða í kvöld, hver vill gera það?

6.3.06

Mánudagar eru heilsuspillandi.

Mánudagar eru svo leiðinlegir að ég gæti dáið.
Og ekki skemmir þetta YNDISLEGA veður fyrir og brjáluð umferð fyrir.
Gaman að vera til.
Ég gæti bölvað öllu á mánuduögum, en geri það ekki- oftast ekki allavega.
En ég hins vegar bít fólk ef mér misbýður.
Núna til dæmis myndi ég ekki hika við að klippa hendurnar af danska fokking tannlækninum mínum.
Útaf heimsku hans þá þarf ég að fara til tannlæknis á íslandi að láta líma saman á mér tanngarðinn, það er allt á fljúgandi ferð uppí mér og ég fæ frekjuskarð á endanum.
Þetta mun kosta mig milljón held ég, sem ég á ekki.
Heimska íslenska kerfi!

Helgin var samt fín.
Ég djammaði meira að segja og þá er nú mikið sagt, fór sumsé með Ingu Rós á staffadjamm í vinnunni hjá Binna, Kai og Sveppa. Það var nú alveg nettur stemmari þarna, fyrir utan svona 30 slagsmál og hnífstungur. Annars var þetta sæmilegt, hitti fullt af fólki sem að ég hef ekki hitt lengi, meðal annars stelpa sem var með mér í 10. bekk og hætti fyrr þar vegna þess að hún var ófrísk, hún á semsagt 18 mánaða stelpu í dag og allt gengur vel hjá henni. Það fannst mér gott að heyra.
En væri maður til í þennan pakka núna? Neibb.

Í gær var ég svo viðhald.
Helga vildi ólm fá mig í bíó, komst svo að því að það var bara vegna þess að Hörður nennti ekki.
En hvað um það, ég fékk allavega að sjá hana og fara í bíó.
Við fórum á Broke back mountain.
ÚFF hvað hún er falleg.
Ég hef aldrei séð svona fallega mynd held ég, hún var kannski ekki beint svona "Frosti í mínus falleg" En meira svona "Gay falleg"
Svo þarft að koma með einhverja svona mynd. En váááá hvað við grenjuðum. Úff ég var miður mín í allt gærkvöld eftir þessa mynd, svo falleg og sorgleg, ég bara grét og grét.
Svona er þetta.

4.3.06

Ég var ekki lengi í paradís.
Þau komu heim aftur í kvöld.
Vatnslaus bústaður og það var greinilega ekki að gera sig.
Ég er þakklát fyrir þessa 2 tíma sem ég fékk.

Ég var annars að koma heim, Brynja Rún bauð sér í heimsókn til mín í kvöld og svo færðum við partýið útí bíl þegar að liðið kom heim. Þurftum að ræða ýmislegt og það var svo gaman.
Þetta var eiginlega yndislega gaman, aðal umræðuefnið var jú hnakkinn á borunni og fleiri góðir.
En best að smella sér í lúllið, keyrsla í fyrramálið PLÚS það að það eru 3 og hálft barn hérna, svo að ég spái því að ég vakni um 9 leytið.

Overrrr

3.3.06

Ohh.
ampop gaurarnir eru ekki búnir að hafa samband við mig ennþá.
God, hvað á maður að bíða lengi eiginlega?

Annars er ég þreytt.
Uppfull af Biðskyldum, háumljósum, Stefnuljósum, kúplingu, blindhæðum, gatnamótum, hringtorgum og einstefnu.
Bráðum kemur svo æfingaakstur líka.
En gaman.

Foreldrafólkið er að fara með "ungana" plús einn tökuunga í bústað um helgina.
Skylst á öllu að Þórhallur ætli með þeim. Ég ætla sko ekki með- Þetta er tvo tíma í burtu frá siðmenningunni, svo það er of langt að strjúka. Ég ætla að vera heima, passa húsið og "Ronju".
Svo ætla ég að hvílast vel, fara óboðin í mat og kaffi hjá hinum og þessum og hafa það ógeðslega gott heima hjá mér, uppí sófa og SOFA.

Ég var að koma af subway-bíó-rúnti með KarenHelgu. Þess má kannski geta að hún er einu ári yngri en ég og nýkomin með bílpróf. Sem er gaman, ég hló svo mikið af henni áðan að ég er komin með þvílíku harðsperrurnar í magan.
Ég held sveimér þá að ég sé betri að keyra en hún, en hún er samt skemmtilegri bílstjóri en ég ;)

Ég er farin að slefa á lyklaborðið úr þreytu.
Farin í lúllið góða.
bleeee

27.2.06

Dóni get ég verið.
Gleymdi að Óska Guðbjörgu og Skúla til hamingju með litlu prinsessuna.
Hún fæddist á Laugardagskvöldið.
Ég hlakka voða mikið til að sjá hana-Er örugglega eitt fallegasta barn Íslandssögunar. Einhversstaðar rétt á eftir mér.

Til hamingju með litla skottið kæru Guðbjörg og Skúli!

Nú, Kristín netfrænka mín er búin að nefna litla stúfinn sinn.
Hann á að heita Ísak.
Til hamingju með nafnið Ísak, litli sæti :)

Ég er um það bil að kafna úr pirring og þreytu núna.
Sem kemur nú ekki oft fyrir.
BarbaÞóra segir að ég sé lík pabba í skapinu núna. Greyið ég.
BarbaPabbi segir að ég sé leiðinleg og þreytt.
Ég á mjög bágt núna, það er allt ömurlegt. Hver kannast ekki við það.
En það er eitt sem að ég skil ekki, Af hverju fær maður aldrei bara að vera pirraður og þreyttur í friði? Þetta kemur fyrir mig svona 5 sinnum á ári og það verða allir einhvernveginn svo hissa þegar að ég tek uppá að vera brjáluð í skapinu af pirring. Allir að tuða yfir því, þó að ég segi ekki orð. En það versta er þegar að einhver segir við mann "Er maður svoldið pirrípú?" gæti misþyrmt manneskju sem að segir svona við mig þegar að ég er pirruð.
Alltaf sama sagan.
En ég er öll að koma til, líklega því að ég er lokuð inní herbergi, að drekka coke light úr tveggja lítra flösku og að hlusta á Ampop.
Mig langar að giftast öllum þeim þarna úr Ampop. Þeir hljóma svo vel. Þeir eiga svo bara að standa við rúmgaflinn og syngja mig í svefn á hverju kvöldi.
Ég vil eiga þá, það er betra en að giftast þeim.
Ætli það sé hægt að kaupa þá á e-bay eða eitthvað?

Ampop strákar mínir!
Ef þið sjáið þetta viljið þið þá vinsamlegast hafa samband við mig í síma 848-5313 og ég skal kaupa ykkur. Þið eruð svo sætir og hljómið einstaklega vel.
kv. Kristín Alma.

En annars líður mér vel.
og restinni af fólkinu hérna.
Ég keyri bara eins og brjáluð kona hérna um reykjavík og bíba á crazy ökumenn - Því ég er nefninlega svo ótrúlega klár og alls ekkert brjáluð.
Ég er farin að perrast í Guðrúnu á msn.
Sé ykkur.
Í dag keyrði ég eftir götum borgarinnar og keyrði yfir eina holu sem að var á götunni.
EINA holan í allri borginni.
Segið svo að ég kunni ekki að keyra.
Ég skoðaði og keypti föt.
Og skó.
Át pípsu með barbapabba.
Talaði við unnustann.
Barbapabbi keyrði mig til Lindu.
Við Linda fórum uppí sjoppu, þar sem að Helga var að vinna.
Við fórum yfir viðburði helgarinnar.
Sem var fyndið og gaman.
Talaði við unnustann.
Horfði á "Lilya 4-ever" með Lindu og skældi.
Hræðileg mynd.
Talaði við Unnustann.
Hitti Ragga "danska" vin minn.
Við rúntuðum og töluðum.
Talaði við unnustann.

Líðan dagsins: Kjánaleg, góð og skrýtin.

P.S. Ég held að þegar að ég er farin að troða grey Þórhalli inní bloggið mitt, jafnvel oft í hverja færslu, þá sé kominn tími á bloggfrí.
Hvað finnst ykkur?
Og hvað finnst Þórhalli?'

-The frog is out-

25.2.06

Í dag fór ég í smáralind.
Var þar í 1 klukkustund og 15 mínútur.
Þræddi allar þær búðir sem að mér finnst áhugaverðar þar og fann ekki eina flík sem að mig langaði í, hvað þá eitthvað annað.
Langaði ekki einu sinni í nammi því að það varu um það bil 300 manneskjur í nammilandi.
Kannski gott, ég veit það ekki.
Á morgun fer ég kannski bara í kringluna, ég hef mjög sterka löngun til að kaupa eitthvað handa mér núna. Því að ég er svo skemmtileg og besti vinur minn og sálufélagi minn.
Já, annað, Linda var þunn í dag svo að hún "gat" ekki farið í Koló með mér eins og við vorum búnar að plana. Helga var Þunn í dag svo að hún beilaði á þessu líka. Inga Rós var þunn í dag OG með Binna. Þau saman voru svona leiðinlegt par og fóru að þrífa bílinn. Reyndar fannst mér það krúttlegt, en ég ætla samt aldrei að verða þannig. (Sjáið að það borgar sig að drekka ekki telpur mínar.)
Óléttan og Gamli maðurinn fóru í verslunarleiðangur og voru ennþá leiðinlegra par en Binni og Inga Rós - Þau fóru saman að kaupa gallabuxur og íþróttaskó. SAMAN!
Þannig að ég ákvað bara að vera þessi leiðinlega unnusta og hlustaði á unnusta minn í útvarpinu og fussaði og sveiaði yfir öllu sem hann sagði, greyið.
Nei, ég er að grínast núna.
Ég hlustaði og Hló að öllu sem að hann sagði, fer nú ekki að breyta útaf þeim ágæta vana.
Eins og þið sjáið þá er ég mjög jákvæð í dag.
Fýlublogg.

24.2.06

Hugsifyllerí

Jæja, haldið þið að ég hafi ekki bara verið á fylleríi í dag.
Nei, ég var ekki að drekka áfengi.
Heldur var þetta svona hugsunarfyllerí.
Ég er búin að vera að hugsa minn gang og annara.
Segi svona.

Það er eitt í þessum heimi sem að ég á mjög erfitt með að sætta mig við í þessum heimi er það að karlmenn koma aldrei til með að upplifa sársaukan sem að flestir kvennmenn ganga í gegnum einu sinni í mánuði.
Túrverkir
Það er ógeðslega vont.
Ég reyndar held að ef að ég kem til með að eignast barn með eðlilegum hætti í framtíðinni verði það "kökusneið" eins og maðurinn sagði.
Því að Hríðir fölna örugglega í samanburði við þetta helvíti sem að ég geng í gegnum mánaðarlega.
Leyfi mér að halda það, ekki reyna að fá mig af þessu.

Bók besta vinar míns hans Egils, betur þekktur sem Gillzenegger kom út í dag.
Ég er voða glöð yfir því að nú get ég loksins orðið falleg.
Eftir næstum 18 ára bið, þá get ég Kristín Alma Sigmarsdóttir orðið að einhverju sem að flokkast undir Fegurð, með ljósar strípur, helmössuð og tönuð.
Verð að kaupa þessa bók, Biblía fallega fólksins.
Reyndar er ég að tala við hana Helgu mína á MSN og við vorum að láta okkur detta í hug að gera svona "Biblía lummana" og fara í samkeppni við Gillz og co. Meina hugsið þetta, við gætum verið með bloggsíðu og sjónvarpsþátt sem héti "Lummurnar(.is)"
Svo gætum við tekið fólk eins og Ásgeir Kolbeins og farið með hann í meikóver, litað á honum hárið í sínum rétta, fagurrauða lit, afbrúnkað hann og fitað- allavega láta hann verða svona slappan og flottan.
Kenna honum að verða feiminn, og taka úr honum flörtgenið. Fara með hann á gigg með Jakobínarína, Benny Crespo's gang og Ampop, láta hann fíla það. Kenna honum að svara í símann eins og við gerum "ódýrari týpan" segjum við. Svo að lokum myndum við "Láta spútnik skíta á hann" Eða dressa hann upp í second hand fötum og converse skóm.
Þá yrði hann fokking hot.

Yfir í aðra sálma.
Það kostar MORÐfjár að fara til læknis á þessu blessaða landi.
Ég reyndar slapp vel í dag þegar að ég kíkti á heilsugæsluna í garðabæ.
5 mínútur tók þetta og ég borgaði litlar 800 krónur fyrir að láta lækninn horfa á mig og segja mér að taka bólgueyðandi. Skrifaði reyndar uppá sterkari bólgueyðandi lyf en íbúfen. En það kostaði auðvitað líka sitt, og mér sínist það ætla að taka frá mér heilsuna líka, því að ég er svo þreytt að það er eins og ég hafi ekki sofið í 3 daga.
Reyndar svaf sama og ekkert í nótt, það gæti haft áhryf.
En þetta lyf sem að ég fékk skrifað uppá kostaði litlar 1500 krónur.
Já, það er dýrt að halda heilsunni á íslandi í dag.

Foreldrar eru merkileg fyrirbæri.
Ekki það að þetta sé eitthvað nýtt en maður fær ekki nóg af því að pæla í því.
Foreldrar eru alltaf vondu kallarnir.
Nema þegar að þau kaupa ný föt á mann eða borga bílprófið eða símreikninginn fyrir mann.
Þau eru aldrei góð þegar að þau banna manni að vera niðrí bæ eftir klukkan 24.00 þegar að allir ljótu kallarnir fara á stjá, eða þegar að þau segja að maður eigi að borða grænmetið sitt og megi ekki fá nammi nema bara á laugardögum og eigi að fara snemma að sofa.
Úff hvað þau eru leiðinleg.
Þegar að maður er unglingur, þá er ekki til neitt meira hallærislegra en mamma og pabbi.
Þau eru svo hallærisleg og asnaleg að það hálfa væri nóg.
Ég reyndar upplifði þetta aldrei.
Mér finnst foreldrar mínir nefninlega mjög cool.
Ég myndi segja að ég væri algjört mömmu og pabba dýr. Erum mjög góðir vinir, held ég.
allavega væri ég frekar mis í dag ef að ég hefði ekki þetta blessaða foreldrafólk sem ég á.
Þau eru svo skemmtilega mis, samt. En það er bara gaman.
En ég er hrædd um að þegar að ég verð foreldri þá eiga mín börn ekki eftir að upplifa mig sem eitthvað skemmtilega mömmu, ég á nefninlega pottþétt eftir að vera þessi mamma sem að ofverndar börnin sín.
Á líklega ekki eftir að tíma að leyfa öðrum að passa þau eða setja þau á leikskóla, á eftir að kenna þeim sjálf í staðinn fyrir að setja þau í skóla og þannig.
Ég verð líka þessi leiðinlega mamma, í leiðinlegum fötum, með rúllur í hárinu og þannig.

Held ég ætla ekki að verða mamma - allavega einbeita mér bara að systkinum mínum og frændsystkinum þangað til að ég finn að ég get orðið skemmtileg mamma.

Jæja ég og Brynja Rún ætlum að fara að mála bæinn gulann.
Skella okkur í partýgallan og kíkja jafnvel á hversu rokkuð stemmning er á Grandrokk í kvöld.
Nammi

23.2.06

Slæmu fréttirnar

Ohh, ég er svo mikill asni!
Sumir hlutir lærast ekki, svona hlutir eins og mannleg samskipti.
Hvernig get ég verið svona vitlaus?
Jeremías og jólasveinar.
Þetta er ekki sniðugt hvernig ég get gert sömu mistökin afturogafturogafturogafturogaftur.
Af hverju er ekki hægt að læra af mistökunum?
"brennt barn forðast eldinn?" haha, nei, aldeilis ekki.

góðu fréttirnar

Það getur verið að ég fái stúlkubarn í afmælisgjöf.
Ef ekki í afmælisgjöf þá ætlar stúlkubarnið að kíkja á mig einhverntíman næstu 39 dagana.
Fyrir stuttu síðan hlakkaði ég ekkert til - Fannst þetta asnalegt uppátæki, ef að það má segja svoleiðis.
Svo fór ég að hlakka pínu til, allavega brosti við tilhugsunina.
Núna, get ég ekki beðið eftir að sjá þessa litlu trítlu sem að er að fara að fæðast.
Búin að finna hana sparka og allan pakkan.
Skrýtið, en samt svo æðislegt.
Gaman.

Jæja, ég er farin að hvíla mig, áður en að ég dey úr þreytu, væmni og síðast en ekki síst pirring og reiði útí sjálfa mig.

(Þetta blogg er mjög spes. Mikil reiði, pirringur og óhamingja einkenna fyrrihlutann, en svona gleði og hamingja seinni hlutan. Segið svo að ég sé ekki fjölhæf.)

22.2.06

Gubbupest og með'í

Ég fæ ALDREI gubbupestir, eða hef ekki lagt það í vana minn að fá eitthvað svoleiðis.
En þetta ár ætlar að vera eitthvað öðruvísi, því að ég held að þetta sé í annað skiptið sem að ég fæ gubbupest á þessu ári.
Mér líður ekki vel, eins og maginn hafi verið rifinn úr mér, hrisstur duglega og og traðkað ofaná honum. Svo er ég voðalega ringluð í hausnum.
Það er svo tilgangslaust að vera veikur.
Maður verður svo ósjálfbjarga og vansæll.
Og langar að spóla aftur í tímann þegar að maður var veikur og mamma heima að sinna manni. En það er víst ekki í boði núna, þar sem að mamma er langt í burtu og ég hvort eð er orðin svo stór að ég get alveg reddað mér sjálf.
Ég get ekki ímyndað mér að það væri til dæmis sniðugt fyrir mig að fara útá videoleigu í þessu ástandi, myndi æla allt út. Svo ég verð bara að láta mér nægja að horfa á eitthvað af þessum 100 sjónvarpsstöðvum sem að ég er með. Og lesa öll fjögur morgun og dagblöðin sem að við fáum inn um lúguna á hverjum degi.
Reyndar gladdi það mitt litla, lasna hjarta að unnusti minn er í blaðinu í dag. Ekki á hverjum degi sem að það gerist, en samt í annað skiptið í þessari viku. Hann er svo frægur, hann unnusti minn. Nú er bara að bíða eftir að Hér og Nú lesi þetta blogg og komist að "leynilegu" ástarsambandi okkar og birti myndir af okkur þar sem að við leiðumst niður laugarveginn í alveg eins jökkum.
Mér finnst þetta asnalegt orð, unnusti.
Er ekki til eitthvað betra orð yfir þetta?