23.2.06
Ohh, ég er svo mikill asni!
Sumir hlutir lærast ekki, svona hlutir eins og mannleg samskipti.
Hvernig get ég verið svona vitlaus?
Jeremías og jólasveinar.
Þetta er ekki sniðugt hvernig ég get gert sömu mistökin afturogafturogafturogafturogaftur.
Af hverju er ekki hægt að læra af mistökunum?
"brennt barn forðast eldinn?" haha, nei, aldeilis ekki.
góðu fréttirnar
Það getur verið að ég fái stúlkubarn í afmælisgjöf.
Ef ekki í afmælisgjöf þá ætlar stúlkubarnið að kíkja á mig einhverntíman næstu 39 dagana.
Fyrir stuttu síðan hlakkaði ég ekkert til - Fannst þetta asnalegt uppátæki, ef að það má segja svoleiðis.
Svo fór ég að hlakka pínu til, allavega brosti við tilhugsunina.
Núna, get ég ekki beðið eftir að sjá þessa litlu trítlu sem að er að fara að fæðast.
Búin að finna hana sparka og allan pakkan.
Skrýtið, en samt svo æðislegt.
Gaman.
Jæja, ég er farin að hvíla mig, áður en að ég dey úr þreytu, væmni og síðast en ekki síst pirring og reiði útí sjálfa mig.
(Þetta blogg er mjög spes. Mikil reiði, pirringur og óhamingja einkenna fyrrihlutann, en svona gleði og hamingja seinni hlutan. Segið svo að ég sé ekki fjölhæf.)
22.2.06
Gubbupest og með'í
En þetta ár ætlar að vera eitthvað öðruvísi, því að ég held að þetta sé í annað skiptið sem að ég fæ gubbupest á þessu ári.
Mér líður ekki vel, eins og maginn hafi verið rifinn úr mér, hrisstur duglega og og traðkað ofaná honum. Svo er ég voðalega ringluð í hausnum.
Það er svo tilgangslaust að vera veikur.
Maður verður svo ósjálfbjarga og vansæll.
Og langar að spóla aftur í tímann þegar að maður var veikur og mamma heima að sinna manni. En það er víst ekki í boði núna, þar sem að mamma er langt í burtu og ég hvort eð er orðin svo stór að ég get alveg reddað mér sjálf.
Ég get ekki ímyndað mér að það væri til dæmis sniðugt fyrir mig að fara útá videoleigu í þessu ástandi, myndi æla allt út. Svo ég verð bara að láta mér nægja að horfa á eitthvað af þessum 100 sjónvarpsstöðvum sem að ég er með. Og lesa öll fjögur morgun og dagblöðin sem að við fáum inn um lúguna á hverjum degi.
Reyndar gladdi það mitt litla, lasna hjarta að unnusti minn er í blaðinu í dag. Ekki á hverjum degi sem að það gerist, en samt í annað skiptið í þessari viku. Hann er svo frægur, hann unnusti minn. Nú er bara að bíða eftir að Hér og Nú lesi þetta blogg og komist að "leynilegu" ástarsambandi okkar og birti myndir af okkur þar sem að við leiðumst niður laugarveginn í alveg eins jökkum.
Mér finnst þetta asnalegt orð, unnusti.
Er ekki til eitthvað betra orð yfir þetta?
20.2.06
Hún á að heita "Stelpan sem að dó úr morgunþunglyndi".
Ég verð aðalpersónan.
Já, ég er kannski að kjafta frá, en ég held að það muni koma að því einn daginn að ég muni hreinilega deyja úr þessum fjanda.
Fyrir ykkur sem að ekki þjáist af þessu morgunþunglyndi, þá lýsir það sér þannig að maður er svo geðvondur á morgnana að maður ræður ekki við eitt né neitt. Ef að einn lítill hlutur fer úrskeiðis hjá mér á morgnana þá bregst ég hin versta við og sparka í hluti, grýti hlutum í gólfið, öskra á fólk og skelli hurðum. Morgunþunglyndi er svona eins og Anorexía og Alkahólismi. Þú skilur þetta ekki nema að þú hafir lennt í þessu sjálfur.
Ég er morgunþunglynd alla virka daga, ca. milli 06.30-11.00. (Þetta er eins og auglýsing á útvarpsþætti.)
Ég mun láta ykkur vita ef ég finn lækningu við þessu.
Um helgina gerði ég mjög margt sniðugt.
Passaði til dæmis elskulegu frændsystkini mín í Stekkjarflötinni.
Þegar að litla stýrið sofnaði horfðum við stóru börnin á Shrek2. Maður hefði haldið að 17 ára og 11 mánaða gömul stelpa myndi hætta að fíla þessa mynd eftir X mörg skipti. En svo er ekki og ég hló eins og vitleysingur með krökkunum. Minnti mig óneitanlega mikið á Ameríkuna. Þar sem að Shrek og Shrek2 voru í spilun 24/7.
Gaman.
Laugardagsnóttina lennti ég í þessum líka svaka rökræðum við velölvaðann dreng. Sem vildi ekki trúa mér að orðið "Lorta" væri tekið úr dönsku. Fyrir þau ykkar sem ekki vita hvað Lorta á að þýða þá er það að skíta. Allavega sagði hann mér það, þessi prúði drengur að það væri barasta ekki töff að segja "Ég er að fara að skíta" heldur ætti maður að segja "Ég er að fara að Lorta" En það er einmitt orð, tekið úr dönsku. Í Danmörkunni segjum við sko Lort, og það er skítur. Hann vildi ekki trúa mér. En minnti mig þó á að ég ætti að segja "Lorta" en ekki "Skíta" í framtíðinni.
Hann kann að halda uppi samræðum við dömurnar þessi piltur.
Segið svo að Fullt fólk geti ekki verið skemmtilegt...
15.2.06
Þar sátum við á rassgatinu einu megin við eldhúsborðið og skófluðum í okkur Kartöflum, Hrognum og ýsu, af bestu lyst. Enda hvorugt bragðað þennan herramanns mat síðan sautjánhundruð og Súrkál.
Hinu megin við borðið sat amma svo sveitt og horfði skelfingu lostin á okkur "samlokurnar" éta og hafði áhyggjur af því að það væri ekki til nóg af kartöflum eða að við fengjum ekki nóg að borða. Það rúlluðu svo tvær manneskjur út í bíl klst seinna, gjörsamlega afvelta.
Var búin að gleyma hvað hrogn eru ógeðslega góð. (MÉR FINNST ÞAÐ)
Á Mánudaginn kom appelsínugulur kall niður í vinnu til mín. Greinilega hafði vilst litla greyið, labbaði inn, eins og hann væri búin að skíta uppá bak, appelsínugulur eins og fyrr segir, 165 á hæð, í púma hettupeysu sem var greinilega máluð á hann og svo var hann að smjatta á prótein "súkkulaði".
Ég rak upp stór augu og starði bara, með hökuna niðrí gólfi, að sjálfsögðu. Gat svo loksins ropað uppúr mér einhverju sem að minnti smá á "get ég aðstoðað" en hann vissi ekki mikið, litla greyið. Vissi eiginlega ekki hvort að ég gæti aðstoðað eða ekki, sagðist vera að ná í eitthvað og vissi ekki hvað það var og sagði svo eitthvað á Gilzenegger/SilviuNótt máli sem að ég skildi ekki þó að ég hafi sagt 5 sinnum "HA?!" Þá brá ég á það ráð að segja "Sjitt, sjáðu, það er gaur þarna með ekkert TAN og engar strípur" og benti svona út í loftið, sá appelsínuguli leit við og ég hef líklega aldrei verið svona fljót að standa upp og rjúka upp á 4 hæð. Faldi mig þar í 30 min, þá sá ég litla appelsínugula manninn rölta út og setja upp sólgleraugun. (Það var nefninlega svo mikil sól þarna klukkan hálf sjö um kvöld.)
Í dag kom hann svo aftur. Hann sagði "Ert þú að vinna hérna?" eins og við hefðum bara aldrei sést áður, og ég sagði "nei, komdu aftur á laugardaginn". Hann fór.
Vona að ég sjái hann ekki aftur, án þess að vera leiðinleg, þá bara þoli ég ekki svona vitalusar týpur. Það voru svona 30 vindstig á milli eyrnana á honum, greyinu.
10.2.06
Komin helgi og ég ætla að leggjast í dvala, Safna orku fyrir næstu törn.
Reyndar verður ekki mikið slakað á um helgina, en held að ég nái samt allavega að sofa aðeins út og svona. Ég held samt að þreytan hafi náð hámarki þegar að ég kom heim áðan. Ég opnaði útidyrahurðina, var með fangið fullt af dóti í fanginu, meðal annars, (far)síma og tóma drykkjarskyrdós, hljóp inní elhús til að svara (heima)símanum, svo talaði ég í (heima)síman lagði frá mér skyrdósina og hennti lyklunum!!
En, jæja, það þýðir ekki að tala um það.
Í kvöld er dömukvöld í Garðabænum, það er ekki komið á hreint hvað á að gera, en eitthvað sniðugt verður gert, það er á hreinu. Kannski að við keyrum eitthvað út fyrir reykjavík og finnum okkur sveitaball til að "krassa" eða eitthvað enn betra eins og Sveitaþorrablót, það væri nú toppurinn sko :) (Svona ef að maður kemst hjá lyktinni og pantar pizzu)
Nú, annars er helgin bókuð í leikhúsferðir, svefn, leti og vinahitt.
Fokking Dejligt.
Best að fara að fá sér kvöldskammtinn af serjósi.
8.2.06
Eftir vinnu fór ég í bað.
Núna þarf ég að fara aftur í sturtu eða bað því að ég anga eins og öskubakki. Sem er ekki töff.
Ég sem sagt skrapp á kaffihús núna í kvöld með elskulegum vinkonum mínum og núna er ég með klemmu á nefinu því að það er svo vond lykt af mér, samt er ég ekki í fötunum sem að ég var í á kaffihúsinu.
En mikið ofboðslega var gaman. Það vantar ekki.
Næst ætla ég á reyklaust kaffihús. Og kaffihús sem að selur ekki áfengi. Þá held ég að það sé ekki mikið annað í boði en lífrænt ræktaða kaffihúsið, en það er (er mér sagt) staður þar sem að Rauðhærðar, vinstrisinnaðar grænmetisætur hanga saman og mótmæla virkjunum og álverum.
Ekki mitt "thing"
Allavega, ég er að vinna á "Karlavinnustað" eða ég er allavega eina stelpan í augnablikinu. Ég pældi mikið í þessu áður en að ég byrjaði, bjóst við svona karlrembubröndurum og eitthvað. En fyrsta daginn átti ég nokkur svona samtöl...
StrákurA: Í hvaða stjörnumerki ertu?
Ég: Fiskur
StrákurA: Jááá, er það?
Ég: Já
StrákurA: Ég er meyja
Ég: Jájá
StrákurA: Já, meyjan og fiskurinn eru mjög ólík, Meyjan er meira svona skipulögð og allt verður að vera fullkomið, en Fiskurinn er meira svona ímyndunarveikur og ævintýragjarn, en OKKAR merki passa samt sem áður mjög vel saman, þrátt fyrir að vera ólík, kærustupar í þessum merkjum eiga svona ástríðufullt samband og þannig.
Ég: Jáhá, það er bara svona, verst að ég trúi ekki á þetta stjörnumerkjabull. (Varð að ljúga einhverju)
StrákurA: Horfði á mig eins og ég væri hálfviti og tölti burt
Áhugavert finnst ykkur ekki?
Svo var annar tappi sem að spurði mig hvort að ég notaði MASKARA, halló, hvað varðar þig um það vinurinn? Ég sagðist nú gera það oftast, allavega þegar að ég færi útúr húsi og svona.
Þá spurði hann: "En þú ert ekki mikið fyrir varaliti?"
Greinilega einhver skápahommi þarna á ferð, því að hann var ekki að grínast og svo fór hann og lamdi í vegginn og öskraði svoldið.. "Já, vinur, þú ert ótrúlega mikið karlmenni núna.." (hugsaði ég sko)
En já, núna eru þessir drengir/kallar farnir aðeins að láta eins og þetta á að vera, eins og í dag þegar að ég var í mat og sat auðvitað með 10 köllum/strákum á borði þegar að einn kemur og segir: "Verði ykkur að góðu drengir, og verði ÞÉR að góðu ungfrú"
Skondið.
Svo ætlum við Salka að skella okkur í leikhús um helgina, ég fékk auðvitað 3 leikhúsmiða gefins í dag. Þeir sem að hafa áhuga á að koma með okkur Sölku á Ronju um helgina, látið mig vita, það verður magnað stuð :)
4.2.06
Í dag er ég annað hvort mygluð eða lumma, ég veit ekki alveg hvort, en ég held að ég endi með að vera bara bæði.
Útgangurinn á mér er alveg hræðilegur. Ég er með blautt hárið(var að koma úr sturtu..), sem þýðir að það er nánast krullað og þegar að maður horfir framan á mig þá er eins og ég sé með sítt að aftan. Svo er ég í ljótum, víðum joggingbuxum, hvítum hlírabol og svörtum brjóstahaldara - Mér finnst þetta ekki smart, en whatever, vona bara að það komi enginn í heimsókn.
Ég hitti Linduna í gær, við fórum á Hressó og fengum okkur Lunch. Mjög gaman hjá okkur eins og vanalega. Við erum svo góðar saman við Linda. Fundum ekki Bankastræti, þannig að við enduðum á Tryggvagötu. Komumst svo að því að Tryggvagata og Bankastræti er örugglega ekki einu sinni í sama póstnúmeri. Svona erum við klárar, við Linda.
Það er komin kossageit á heimilið, minnstan okkar er komin með þetta. Gasalega ógeðslegt, vellandi sár og svona, en þetta er allt í meðhöndlun. Vorkenni bara grey barninu, man þegar að ég fékk þetta, ekki gaman.
En hún er nú spræk og segir bara "Sérru, saddna er kossageitin" svo segir hún "Ég er rugluð" bara krútt þetta barn!
En jæja, ég ætla að hætta að vera lumma, klæða mig, laga hárið og skella mér út.
Já og Karen Helga mín, Til Hammara með Ammaran stelpa - Þú verður jafngömul mér alveg í einn mánuð...vúhú!! ;)
3.2.06
Ég er með skósýki...
http://quiz.myyearbook.com/zenhex/quiz.php?id=13163"> size = "+2">What type of Converse are you?

Green Classic Converse
by myYearbook.com -- the World's Biggest Yearbook!
Úff hvað ég sakna Converse skóna minna :(
31.1.06
Hún segir alltaf "Ertu að hverfa barn?" og svo gefur hún manni pönnsur með rjóma og kók.
Annars þá er það orðið opinbert að ég er komin til íslands, ég lét voða fáa vita hvenær ég kæmi og sé ekki eftir því, enda vildi ég bara vera heima hjá famelíunni og venjast nýju fólki og eyða tíma með því gamla.
Það er ekki mikið hægt að tuða yfir nýja fólkinu, voða almennilegt, nokkuð geðgott og skemmtilegt. Ekki eins hræðilegt og ég hélt það yrði. ;-)
Ég er líka búin að komast að því að það ER hægt að lifa á skyri og vatni. Allavega getur það verið uppistaðan í fæðunni hjá manni, bara svo lengi sem að maður étur kúskús og nings af og til.
Langaði bara að segja ykkur að ég væri á lífi.
Lifið heil
28.1.06
Ég skrifaði hérna á fimmtudagsmorgun að ég væri "godt i gang" með að reyna við póstdrenginn, (sem er að vinna hjá póstinum í afleysingum, komst að því ;)) þá um kvöldið hringdi pabbi í mig og spurði hvort að ég ætlaði að taka hann með til íslands. Í dag var ég svo spurð svona milljón sinnum um þennan blessaða póstdreng, m.a. af fólki sem að ég vissi ekki einu sinni að læsi þetta bloggdót mitt.
Mér finnst þetta mjög áhugavert, því að það þykir greinilega saga til næsta bæjar að ég skuli hafa svo mikið sem horft í áttina að karlmanni/strák, eða hvað þið viljið kalla þetta.
Ég hef greinilega ekki verið nógu dugleg við að update-a "datemál" mín fyrir fólki og ég ætti kannski að vera duglegri við það.
Held að það væri best fyrir mig að finna mér einhvern "heitan svein" sem væri þekkt andlit, svo að maður geti bara hringt eitt símtal og búmm, komið í séð og heyrt, það væri alls ekki galið held ég. Praktískt fyrir mig og ykkur.
En ég er nú bara að spauga, ótrúlegt en satt.
Ég er að hugsa um að salta póstmanninn aðeins. Fara til íslands og einbeita mér að vinnu, fjölskyldu og vinum og leyfa honum aðeins að sakna mín. Og muna bara að næst þegar að ég hitti hann þá verð ég að vera í fötum en ekki handklæði.
Heyriði mig nú, haldið þið að ég hafi ekki fjárfest í nýjum geisladiskum í dag. Sem er svosem ekki frásögur færandi nema hvað, að þetta eru svona líka tussugóðir diskar.
Arctic Monkeys - Whatever People Say I Am, That's What I'm Not
Mjög góður diskur, hafði reyndar bara heyrt tvö lög af honum, sem eru búin að vera í spilun hérna úti og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með þennan disk.
Mew... and the Glass Handed Kites
Veit ekki hvort að þið hafið heyrt eitthvað mikið af þessu bandi, en minnir þeir hafi verið á Roskilde festival núna síðast. Danskir, og ég elska þá, þá sérstaklega röddina í gaurnum, ótrúlega Júník og töff eitthvað. En já reyndar er músíkin líka mjög góð.
Læt fylgja með Myspace síðurnar hjá þessum guttum :)
http://www.myspace.com/arcticmonkeys
http://www.myspace.com/mewsite
Jæja, þetta blogg er orðið eintóm þvæla hérna, svo ég er farin að sofa.
26.1.06
Framtíðar tengdasonur foreldra minna er fundinn.
Hann bankaði hérna uppá áðan og heimtaði undirskrift og pening fyrir einhverjum pakka.
Ég opnaði, sá hann og gleymdi alveg að ég var nýstigin útúr sturtunni.
Kiknaði í hnjánum og allt.
Djöö, er týpískt að maður finni loksins fallegan karlmann í Danmörku (Sem er ekki hnakki) þegar að það eru "nokkrar" klst í brottför til landsins sem kennt er við ís og snjó - I'm telling you, this is my luck!
Nú langar mig ekki til Íslands.
Eníveis, ég er á leið í klippingu - Guuuð má vita hvað ég finn uppá að gera við hárið á mér, en það verður mikið klippt af því, ég er komin með alltof sítt hár.
23.1.06
Í dag ætla ég að taka til í sokkaskúffunni minni eða jafnvel ef að ég verð í stuði að endurraða geisladiskunum mínum.
Ég er með alveg snargallaða tárakirtla, búin að tárast í allan dag, skil þetta ekki. Ég er ekki að grenja yfir neinu, bara tárast, ekki sniðugt. Var líka svona í gær, fór í bíó og var byrjuð að grenja áður en að myndin byrjaði, það var reyndar útaf því að ég hló svo mikið, ég er víst ljóska, en ég átti allavega fyndið ljóskumóment, samt kemst ég ekki nálægt því að vera eins og Lára :þ
Eníveis ég var að komast að því að ég er ömurleg í að taka sjálfsmyndir.
Hvaðan skyldi ég hafa það?
Ég tók af mér mynd um daginn, eða það er svoldið langt síðan, og ég er búin að taka fleiri, en þessi bara stóð uppúr.
a) Hún er ekki nálægt því að vera í fókus
b) Hvað er málið með bakgruninn?
c) Ég ætla ekki einu sinni að fara útí þennan ógeðslega
svip sem að ég er með, lít út eins og Þorskur á
þurru landi sem er verið að reyna að kreysta augun úr!
d) það er nokkuð ljóst að fegurð mína er ómögulegt að festa á filmu.
Vona að þið viljið enn tala við mig þó ég hafi sýnt ykkur hæfni mína sem sjálfsljósmyndara.
20.1.06
Merkilegt, alltaf þegar að systkini mín eiga afmæli þá líður mér eins og ég sé gömul. Samt er ég ekki orðin átján ára - skondið.
Helga sætasta (Litli unginn okkar Lindu) er líka 17 ára í dag, úff, nú kikkar móðureðlið inn sko, Helga er litla barnið mitt, þó að hún sé ein af mínum bestustu vinkonum í heiminum, þá er hún samt beibí-ið í hópnum :) (Sorry Helga mín, en svona verður þetta alltaf!)
Til hamingju með afmælið stelpur mínar ! ( svosem ekki miklar líkur á að Ingibjörg lesi þetta, en samt. )
15.1.06
"Nei sko, það væri hægt að strauja skyrtu á þessum tönnum" er án efa besta komment sem að ég hef heyrt lengi.
Þetta var svolítið fyndið skal ég segja ykkur.
Ég er búin að brosa mjög mikið síðustu daga og er sko ekki alvarlega týpan eins og vanalega. En engar áhyggjur þetta líður hjá.
Hmm, ég sofnaði í sófanum í nótt, milli 01.00 og 04.30 var afvelta af nammiáti og gosdrykkju, en ég vaknaði með harðsperrur dauðans í maganum.
Ég hef sko ekki verið að gera neinar fjandans magaæfingar, þannig að mér finnst þetta mjög skrýtið, greinilegt að maður verður að borða bara meira nammi, þá verður maður kannski komin með sixpakk eftir viku.
Gummi "Þvaghænsni" Frændi minn er búinn að vera hérna um helgina, það er búið að vera mjög ljúft, þrátt fyrir það að ég hef liðið miklar pyntingar. Í morgun vaknaði ég við það að hann sat ofaná mér, (þar sem að ég svaf í SÓFANUM því að sumir sofnuðu í mínu rúmi) og kleip mig!
Haldið þið að það sé nú meðferð á prinsessunni.
En það er búið að vera gott að hafa Gumma hérna, var ekki búin að sjá smettið á honum í 7 mánuði þakka ykkur fyrir.
Annars langaði mig að sýna ykkur að ég á vin sem að lítur út eins og Jake G..eitthvað í myndinni þarna Jarhead - Sem ég sá fyrir svona 3 mánuðum.
Þetta er hann Balvin Theyr. Jake Gyllenhaal

12.1.06
Nei, ég tek ekki sénsinn á því - Held að þið vitið öll hvað mér finnst um þennan sorasnepil og ég ætla ekki að gera þeim það til geðs að fjalla eitthvað frekar um það hérna.
Nema þá að láta eina manneskju sem að vinnur þarna vita að ég er tilbúin að gefa henni 250 krónur, fyrir strætófarinu á klepp. (ONE WAY)
Well, ekki mikið skeð hjá mér síðan síðast. Ég hugsa að ég sé hætt að lesa blöðin á netinu, eða bara lesa þau yfir höfuð. Ekkert nema fólk að sprengja sig í loft upp, stríð og græn, sjálflýsandi svín. Er ekki hægt að segja frá því góða sem er að ske í heiminum? Eða er það ekki nógu fréttnæmt? Ég las nokkra miðla í dag, Íslenska og Danska það var voðalega lítið sem að ég gat glaðst yfir, ekki einu sinni Bobby Fisher að endurnýja strætókortið sitt.
Fréttir sem ég las í gær held ég var þó eitthvað sem að ég varð alveg fjúríus yfir, var ónýt allan daginn með virkilegan sting í hjartanu.
Fertugur Karlmaður nauðgaði 12 vikna barni!
Hvað í andskotanum vakir fyrir svona drullusokkum? Á að stilla svona fólki upp á fjölmennum stað og grýta þá til dauða, en fyrst verður þó að skera undan þeim. - eða eitthvað verra. Ef að það er eitthvað sem að ég verð virkilega reið yfir og brjáluð í skapinu útaf þá er það ef að ég frétti af einhverju svona, barnamisnotkun.
Og svo er náttúrulega frábært hvað réttarkerfið á íslandi er frábært, svona menn fá alveg 2 ár í fangelsi, tops. Klöppum fyrir því. (þetta var samt ekki Á íslandi.)
Svo finnst fólki virkilega skrýtið að mig langi miklu frekar að ættleiða barn, þó að ég komi til með að geta eignast þau á eðlilegan hátt. Af hverju að fæða barn inní þennan brenglaða heim þegar að það eru milljónir barna þarna úti sem að eiga ekkert, fá ekki mat, ekki ást og umhyggju. Er ekki nær að ættleiða barn sem að virkilega þarf á manni að halda heldur en að búa eitt til?
Verst að það tekur þvílíkan tíma, verð eiginlega að byrja að plana það eftir 2 ár svo ég verði komin með barn þegar að það verður á dagskrá.
En sko, það verður samt að vera eitt svona heimagert, hver á annars að koma þessum góðu genum og fegurðinni áfram, gengur ekki annað.
Heyrðu já, lestarframkvæmdir klárast á morgun - Held að ég ætli í bæinn og drekka Cult til að fagna þessu. Með tannburstan með mér að sjálfsögðu :)
10.1.06
Stoltið mitt er ársgamalt í dag!
Nei, ég á ekki barn og ég er ekki að tala um Fróða.
Heldur er ég að tala um Ingu Rós og Binna!
Ef að það hefði ekki verið fyrir mig þá væri ekkert Inga Rós og Binni til.
Ég ætla nú ekkert að fara útí það hvernig það allt æxlaðist en ég vakti með Ingu Rós heila nótt að tala um KALL/geimveru sem að vissi ekki hvað Ipod var og var með linsur. (uppúr þeirri umræðu fæddist svo Binni&Inga Rós)
Það er miklu meira vit í Binna. Hann er friendsalki og veit hvað Ipod er, sem er eitt það mikilvægasta í fari karlmanns að mati okkar Ingu Rósar.
Til hamingju með árs afmælið og gangi ykkur bara sem best í framtíðinni dúllurnar mínar!!!
Svo megið þið bara óska mér til hamingju, þetta er fyrsta parið sem að ég hef búið til og þau eru búin að vera saman svona lengi.
Logi og Svanhildur hvað?!
9.1.06
Barbie is a slut!
Sko, áðan þá fór ég til tannlæknis. Í þetta skiptið er ég komin með eitthvaðshit-bit, síðast var það sko kross-bit og þar áður eitthvað annað bit. Mér er drullusama, djö hvað ég er orðin ógeðslega pirruð á að vera með allskonar bit, sem eru öll eitthvað skökk. Ég held að þetta sé ekki skakt bit, ég er bara skökk - meikar svo miklu meira sens.
Talandi um skekkju. Þá var ég hjá tannsa babe og það var að byrja að koma einhver hola, svo að hann sagðist skyldi nú bara laga þetta sem snöggvast (Aldrei fengið holu áður) og ég heimtaði einhverja deyfingu. Fékk hláturgas og ég var skökk í 3 tíma á eftir, as in stoned. Tannlæknirinn hafði einhverjar áhyggjur af því hvernig ég kæmist heim, ég man ekki hverju ég svaraði, en ég labbaði bara út og niðrí bæ. Ég man voða lítið eftir þessari bæjarferð, nema ég sá föt, fullt af fötum.
Ég fór með tvíburunum og Balla í bíó í gær. Á mynd sem heitir The Fog - Ekki fara á þessa mynd, þvílíka steypan. Fyrstu 30 mín voru reyndar góðar og þetta var ógeðslega spúkí. Ég öskaraði ekki nema 3 á þessum hálftíma og fólkið fyrir aftan mig var farið að sparka í sætið mitt í verstu atriðunum í von um að ég myndi hoppa uppúr sætinu eða eitthvað. En eftir fyrsta hálftíman vildi ég bara fara út, fyrir utan að Smallville gaurinn fór úr að ofan...tvisvar.
Nei, ég er ekki kettlingur, það er örugglega ógeðslega gaman að horfa með mér á svona hreyllingsmyndir, ég er alveg skíthrædd.
Svo, hver ætlar að koma með mér í bíó þegar að ég kem heim? (Á hryllingsmynd að sjálfsögðu, ég er með svo mikla sjálfspyntingarhvöt.)
6.1.06
Ég er svo búin að lofa Guðjóni bíóferð, ætli við reynum ekki að draga Balla og fleiri góða með.
Annars er ekki mikið að frétta fyrir utan það að ég hlakka ótrúlega mikið til að fara til Íslands og gera góða hluti þar. Þið getið líklega fundið mig í miðbæ Reykjavíkur að tala dönsku og ensku við túrista með skyr í annari og VIP passa á Gettu Betur um hálsinn, jú og í "Lost in Iceland" bolnum mínum að sjálfsögðu. Verður áhugavert fyrir ykkur að sjá það.
Besta frænka var svo líka búin að lofa VIP passa á öll Skítamóralsgiggin næstu 7 mánuðina eða svo, þannig að það er eins gott að fara að reima á sig Buffalo skóna og rifja upp textan af "farin" og fleiru góðum.
Æji, nú er kominn púki í mig, svo ég ætla bara að fara í H&M og nauðga vísanu.
Má til með að láta þennan link fylgja með. Tarentino hjá Conan. Sannleikurinn um Íslendinga/Íslenskar konur - samt ekki mig :)
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1907
Ef þetta er ekki Hillaríus þá heiti ég Súla sól
LEITER DUUUUUDES!
2.1.06
Það sem að ég gerði í dag var
- Hékk með hausinn ofaní klósettinu og ældi
- Svaf
- Kúgaðist af eigin ilmvatnslykt (hefur aldrei gerst áður)
- Horfði á Two guys and a girl
- Svaf
- Pirraðist óendanlega mikið yfir MSN
Geri aðrir betur.
Get þó huggað mig við það að allt sem að ég át yfir jól og áramót er ekki lengur neitt til að hafa áhyggjur af og svo þarf ég heldur ekki að fara í ræktina á þessu ári því að ég er komin með heavy magavöðva eftir gubberíið. I wish
Eníveis, þá var ég að velta fyrir mér einu og það er hvort að áramótaskaupið hafi einhverntíman verið fyndið? Ég er allavega búin að horfa á þau nokkur í gegnum tíðina og mér hefur bara aldrei fundist það skemmtilegt, en samt verð ég alltaf að horfa á það. En í ár þá var það reyndar hann Björgvin Franz sem að reddaði þessu og í fyrsta skipti í mörg ár, ef ekki bara fyrsta skipti þá hefur maður allavega smælað útí annað yfir þessari vitleysu. Björgvin Franz var einmitt í Kastljósinu í kvöld, kíkið á það á www.ruv.is/kastljos (Sorry, ég varð)
Hvað er svo málið með mig og tölvur? Núna til dæmis þá er MSN í þvílíku fokki, síðustu daga hef ég bara getað talað við suma, einhverja útvalda greinilega (yfirleitt ekki fólkið sem að ég vil tala við ;)). Ég ætla að skrifa bréf til forsetans og biðja hann um að leggja niður MSN og bara hafa bréfdúfur í staðinn, það er allavega hægt að siða þessar dúfur til. Svo er blogspot komið í ruglið núna líka, hvert er þessi (net)heimur að fara?
Well, nóg af þessu fýlubloggi, ef að einhver nennti að lesa þetta þá er sá hinn sami líklega dáinn úr leiðindum núna svo að ég er hætt, kann ekki við að bera ábyrgð á dauða fólks ;)
Lofa að vera í betra skapi næst :)