Já gott fólk, það er að koma helgi og ég hef góða tilfinningu fyrir þessari helgi, sem og þessu ári, þar sem að ég fann Pacman á netinu í morgun, var búin að gleyma hvað ég var góð í þeim leik hérna 1998.
Ég er svo búin að lofa Guðjóni bíóferð, ætli við reynum ekki að draga Balla og fleiri góða með.
Annars er ekki mikið að frétta fyrir utan það að ég hlakka ótrúlega mikið til að fara til Íslands og gera góða hluti þar. Þið getið líklega fundið mig í miðbæ Reykjavíkur að tala dönsku og ensku við túrista með skyr í annari og VIP passa á Gettu Betur um hálsinn, jú og í "Lost in Iceland" bolnum mínum að sjálfsögðu. Verður áhugavert fyrir ykkur að sjá það.
Besta frænka var svo líka búin að lofa VIP passa á öll Skítamóralsgiggin næstu 7 mánuðina eða svo, þannig að það er eins gott að fara að reima á sig Buffalo skóna og rifja upp textan af "farin" og fleiru góðum.
Æji, nú er kominn púki í mig, svo ég ætla bara að fara í H&M og nauðga vísanu.
Má til með að láta þennan link fylgja með. Tarentino hjá Conan. Sannleikurinn um Íslendinga/Íslenskar konur - samt ekki mig :)
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1907
Ef þetta er ekki Hillaríus þá heiti ég Súla sól
LEITER DUUUUUDES!
2 ummæli:
hehe hlakka til að sjá þig stína min! skímó? ég er mætt;) gerist ekki mikið betra túristinn minn;* hehe en djömmum og förum út að borða þegar þú kemur.. pottþétt;*
Ég er geim í það.
Komin tími á að við höfum svona stelpukvöld!
It´s been to long!!!
:þ
Skrifa ummæli