10.1.06
Stoltið mitt er ársgamalt í dag!
Nei, ég á ekki barn og ég er ekki að tala um Fróða.
Heldur er ég að tala um Ingu Rós og Binna!
Ef að það hefði ekki verið fyrir mig þá væri ekkert Inga Rós og Binni til.
Ég ætla nú ekkert að fara útí það hvernig það allt æxlaðist en ég vakti með Ingu Rós heila nótt að tala um KALL/geimveru sem að vissi ekki hvað Ipod var og var með linsur. (uppúr þeirri umræðu fæddist svo Binni&Inga Rós)
Það er miklu meira vit í Binna. Hann er friendsalki og veit hvað Ipod er, sem er eitt það mikilvægasta í fari karlmanns að mati okkar Ingu Rósar.
Til hamingju með árs afmælið og gangi ykkur bara sem best í framtíðinni dúllurnar mínar!!!
Svo megið þið bara óska mér til hamingju, þetta er fyrsta parið sem að ég hef búið til og þau eru búin að vera saman svona lengi.
Logi og Svanhildur hvað?!
9.1.06
Barbie is a slut!
Sko, áðan þá fór ég til tannlæknis. Í þetta skiptið er ég komin með eitthvaðshit-bit, síðast var það sko kross-bit og þar áður eitthvað annað bit. Mér er drullusama, djö hvað ég er orðin ógeðslega pirruð á að vera með allskonar bit, sem eru öll eitthvað skökk. Ég held að þetta sé ekki skakt bit, ég er bara skökk - meikar svo miklu meira sens.
Talandi um skekkju. Þá var ég hjá tannsa babe og það var að byrja að koma einhver hola, svo að hann sagðist skyldi nú bara laga þetta sem snöggvast (Aldrei fengið holu áður) og ég heimtaði einhverja deyfingu. Fékk hláturgas og ég var skökk í 3 tíma á eftir, as in stoned. Tannlæknirinn hafði einhverjar áhyggjur af því hvernig ég kæmist heim, ég man ekki hverju ég svaraði, en ég labbaði bara út og niðrí bæ. Ég man voða lítið eftir þessari bæjarferð, nema ég sá föt, fullt af fötum.
Ég fór með tvíburunum og Balla í bíó í gær. Á mynd sem heitir The Fog - Ekki fara á þessa mynd, þvílíka steypan. Fyrstu 30 mín voru reyndar góðar og þetta var ógeðslega spúkí. Ég öskaraði ekki nema 3 á þessum hálftíma og fólkið fyrir aftan mig var farið að sparka í sætið mitt í verstu atriðunum í von um að ég myndi hoppa uppúr sætinu eða eitthvað. En eftir fyrsta hálftíman vildi ég bara fara út, fyrir utan að Smallville gaurinn fór úr að ofan...tvisvar.
Nei, ég er ekki kettlingur, það er örugglega ógeðslega gaman að horfa með mér á svona hreyllingsmyndir, ég er alveg skíthrædd.
Svo, hver ætlar að koma með mér í bíó þegar að ég kem heim? (Á hryllingsmynd að sjálfsögðu, ég er með svo mikla sjálfspyntingarhvöt.)
6.1.06
Ég er svo búin að lofa Guðjóni bíóferð, ætli við reynum ekki að draga Balla og fleiri góða með.
Annars er ekki mikið að frétta fyrir utan það að ég hlakka ótrúlega mikið til að fara til Íslands og gera góða hluti þar. Þið getið líklega fundið mig í miðbæ Reykjavíkur að tala dönsku og ensku við túrista með skyr í annari og VIP passa á Gettu Betur um hálsinn, jú og í "Lost in Iceland" bolnum mínum að sjálfsögðu. Verður áhugavert fyrir ykkur að sjá það.
Besta frænka var svo líka búin að lofa VIP passa á öll Skítamóralsgiggin næstu 7 mánuðina eða svo, þannig að það er eins gott að fara að reima á sig Buffalo skóna og rifja upp textan af "farin" og fleiru góðum.
Æji, nú er kominn púki í mig, svo ég ætla bara að fara í H&M og nauðga vísanu.
Má til með að láta þennan link fylgja með. Tarentino hjá Conan. Sannleikurinn um Íslendinga/Íslenskar konur - samt ekki mig :)
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1907
Ef þetta er ekki Hillaríus þá heiti ég Súla sól
LEITER DUUUUUDES!
2.1.06
Það sem að ég gerði í dag var
- Hékk með hausinn ofaní klósettinu og ældi
- Svaf
- Kúgaðist af eigin ilmvatnslykt (hefur aldrei gerst áður)
- Horfði á Two guys and a girl
- Svaf
- Pirraðist óendanlega mikið yfir MSN
Geri aðrir betur.
Get þó huggað mig við það að allt sem að ég át yfir jól og áramót er ekki lengur neitt til að hafa áhyggjur af og svo þarf ég heldur ekki að fara í ræktina á þessu ári því að ég er komin með heavy magavöðva eftir gubberíið. I wish
Eníveis, þá var ég að velta fyrir mér einu og það er hvort að áramótaskaupið hafi einhverntíman verið fyndið? Ég er allavega búin að horfa á þau nokkur í gegnum tíðina og mér hefur bara aldrei fundist það skemmtilegt, en samt verð ég alltaf að horfa á það. En í ár þá var það reyndar hann Björgvin Franz sem að reddaði þessu og í fyrsta skipti í mörg ár, ef ekki bara fyrsta skipti þá hefur maður allavega smælað útí annað yfir þessari vitleysu. Björgvin Franz var einmitt í Kastljósinu í kvöld, kíkið á það á www.ruv.is/kastljos (Sorry, ég varð)
Hvað er svo málið með mig og tölvur? Núna til dæmis þá er MSN í þvílíku fokki, síðustu daga hef ég bara getað talað við suma, einhverja útvalda greinilega (yfirleitt ekki fólkið sem að ég vil tala við ;)). Ég ætla að skrifa bréf til forsetans og biðja hann um að leggja niður MSN og bara hafa bréfdúfur í staðinn, það er allavega hægt að siða þessar dúfur til. Svo er blogspot komið í ruglið núna líka, hvert er þessi (net)heimur að fara?
Well, nóg af þessu fýlubloggi, ef að einhver nennti að lesa þetta þá er sá hinn sami líklega dáinn úr leiðindum núna svo að ég er hætt, kann ekki við að bera ábyrgð á dauða fólks ;)
Lofa að vera í betra skapi næst :)
30.12.05
Hvað gerðist á árinu?
Allavega hafði ég hugsað mér að afreka mikið meira en ég gerði, en ég bæti þetta bara upp á nýja árinu, enda veit ég það fyrir víst að allavega fyrstu 6 mánuðirnir á nýja árinu verða góðir og viðburðamiklir.
Janúar - Kom heim frá íslandi eftir vægast sagt spes dvöl þar, þegar að ég kom heim til DK þá beið mín þessi líka flotti áramótapakki, eða hann Fróði minn, pínulítill Beagle hvolpur.
Febrúar - Tók ákvörðun um að fara til Bandaríkjana sem au-pair
Mars - Varð 17 ára, Fór til þýskalands að hitta Gumma Linda kom til DK og ég skil ekki ennþá hvernig við höfðum úthald í allt þetta djammerí og allar verslunarferðirnar, samt gaman
Apríl - Fór með pabba til London að versla og hitta föðurbróðir minn og fjölskyldu
Maí - OPEN AIR, þetta var magnað, engin Roskilde en magnað samt, Sjá "ædolin mín", Nik og Jay Live í sólskini í góðra vina hópi, gerist ekki betra
Júní - Prófin voru, ég að sjálfsögðu dúxaði þar, Fór til Íslands, gerði góða hluti þar, sem og skandala, fór til Ameríku
Júlí - Var að deyja úr hita í ameríku að passa börn - Lennti í lífsháska í skógi í Virgina þegar að það kom íkorni inní kofan sem að ég var í.
Ágúst - Kynntist Karen Helgu strumpunni minni :)
September - Hitinn skánaði og ekkert merkilegt gerðist...Held ég
Oktober - Var í Ameríku - Gerðist örugglega fullt spennandi
Nóvember - Florida- mikki mús og allt það :)
Desember - ferðaðist ein frá BNA til DK með klst millilendingu á íslandi - tók ekki nema 22 tíma, Amma og afi komu í heimsókn, Linda kom og Miiiiikið brallað ;)
Ég er nú bara að stikkla á mjöög stóru, nenni ekki að telja upp alveg allt sem að gerðist.
En allavega, þá var þetta ár bara nokkuð gott, kynntist fullt af frábæru fólki og upplifði mikið.
Fór til 5 landa og kom til aðeins fleirri fylkja næsta ári verður reynt að ferðast áfram eitthvað þó svo að það verði ekki alveg jafn mikið og ég geri á þessu ári.
En ég er með smá lista sem að ég ætla að biðja alla um að fara eftir á morgun
- Farið varlega í búsið
- Áfengi og akstur eiga ekki saman, ALDREI
- Klæða sig vel
- Reykingar og flugeldar eiga ekki saman
- Notið hlífðargleraugu
- GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA
26.12.05
Hvar er jólaskapið?
Ég er búin að tilkynna pabba það að ég ætla að vera á íslandi næstu jól og öll jólin sem að ég á eftir ólifað. Veit ekki hvernig ég á að segja mömmu þessi tíðindi, þar sem að hún ætlar að vera í Danmörku öll jólin sem hún á eftir ólifað. Þannig að hún mun ekki njóta þeirra forréttinda að hafa mig í nærveru sinni á jólunum.
En þið þarna á íslandi munuð hins vegar njóta þess að hafa mig hjá ykkur, þ.e. ef að einhver vill hafa mig hjá sér, sumir voru voða fyndnir áðan og sögðu að það væri ekkert endilega nein eftirspurn eftir því að ég væri á íslandi þá, sem er kjafæði - það er alltaf nóg eftirspurn, ég veit það, ekki nema ég lifi í blekkingu.
Þessi jól eru nú búin að vera fín, þó að það sé ekki búið að vera mikið annað gert en að vera í náttfötunum, borða, vera í tölvunni og svona huggulegheit. Vantar öll jólaboðin, íslenska matinn og restina af famelíunni og vinunum. Það er samt búið að spurja mig nokkuð oft hvort ég vilji ekki kíkja á djammið, meðal annars á aðfangadagskvöld - fatta ekki svona, mér finnst ekki viðeigandi að djamma á jólunum, fyrir utan það það er ég að verða of gömul fyrir svona djammstand, nenni því engann veginn, vil bara vera heima og kúra undir sæng með góða mynd.
Mér finnst aðventan hér í danmörku þó betri en á íslandi, ekki þetta stress alltaf hreint, þannig að það er spurning um að fljúga bara til íslands á þorláksmessukvöld - Sleppi ég öllu stressi.
Annar langaði mig bara að segja ykkur þetta, og jafnframt þakka ykkur fyrir mig, voða ánægð með þetta allt saman.
23.12.05
Gullkorn og eitthvað meira
Annars verð ég bara að segja ykkur frá tvennu ógeðslega fyndnu sem að skeði hjá okkur þessa vikuna. Held samt að þeir sem að þekkja okkur finnist þetta fyndið, en ekki hinum ;)
Fyrsta kvöldið hennar Lindu þá vorum við í Partý-i hjá Láru og Gauja. Ég og Gauji vorum eitthvað að spjalla og þá rek ég augun í Nýja Robbie Williams diskinn, en fyrir þá sem ekkivita þá erum við Guðjón Valur harðir Robbie aðdáendur.
Samtalið varð svona:
KA - Nau, bara búin að kaupa nýja diskinn með Robbie sætasæta?!
GV - Já, maður en hann er samt alls ekki góður
KA - Ha? Í alvöru?
GV - Já, Ég allavega bjóst við meiru frá honum, það eru svona nokkur lög sem eru allt í lagi.
KA - Dísess, en samt, maður var auðvitað að búast einhverju svakalegu þar sem að diskurinn sem kom út í fyrra var svo geðveikt góður!
Þori varla að segja það en diskurinn sem að kom út í fyrra var BEST OF Robbie Williams! Og ég var blá edrú!
Note to self; Think before you speak woman!
Annað nokkuð skondið gerðist þegar að ég og Linda vorum í Djúpum samræðum um hvað hún væri fyndin og vorum að fíflast eitthvað með það. Þá heyrist í Lindu: Já, ég er svo fyndin að ég verð bara seld á E-bay þegar að ég dey...
Já, elskan, ÖRUGGLEGA!
Einhverra hluta vegna var verið að ræða um selfoss og alla hnakkana sem að búa þar.(Sem okkur finnst miður skemmtilegir drengir) Þá segir Linda uppúr þurru: SKo, það eru til Margar Hondur, en bara ein Honda Cific...
ÞAr hafið þið það :)
Annars gengur allt sinn vanagang fyrir sig í Danmörku, bara same old same old.
Hlakka mikið til að koma til Íslands og láta gamminn geysa, Það verður nú gaman fyrir ykkur að fá mig til þess að lífga uppá skammdegið, svo líður ekki að löngu þangað til að Stelpan Drullist til að taka þetta bílpróf sem að er búið að trassa í 9 mánuði. Þá myndi ég reyndar halda mig innandyra ef að ég væri þið, ekkert sniðugt að vera að væflast úti, vitandi af mér keyrandi á rauða drekanum um götur Reykjavíkur - Óþarfa slysahætta!
20.12.05
13.12.05
Smá update og bloggleikur
Daginn eftir að ég kom heim fór ég á Duran Duran tónleika í höllinni hérna í horsens, og vááá hvað þeir voru mikil snilld. Ég kunni flest lögin og skemmti mér því alveg ljómandi vel.
Mikil upplifun að sjá þessa gömlu refi svona live.
Annars hefur ekki mikið á daga mína drifið síðan ég kom, ég fór reyndar í partý eftir duran duran og skálaði í Faxi Kondi, get sagt ykkur það að danirnir voru ekki ánægðir með það að kristín væri bara búin að leggja búsið á hilluna, sé það núna hvað fullt fólk getur verið óskaplega leiðinlegt þegar að maður er edrú - sérstaklega danir.
Ég er annars bara búin að vera róleg síðustu daga, svo er Linda að koma til mín á föstudaginn og það verður æðislegt!
Ég smitaðist af bloggleik hjá frú skunk, ætli maður verði ekki að gera þetta :)
Settu nafnið þitt í comment og.....
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..
Koma svo, muna bara að setja nafnið sitt undir og þið þurfið ekki að vera skráð til að geta kommentað.
7.12.05
Í gær fór ég mjög seint að sofa og vaknaði frekar snemma, eða um 10 leytið. Held að ég hafi sofið í svona 5 tíma, en vaknaði klukkan 10 alveg eins og ég hefði sofið í 12 tíma - Vel úthvíld og spræk bara. Ef að ég hefði sofnað klukkan 2 og vaknað klukkan 7 þá hefði ég ekki getað vaknað, ekki séns - Það er eins og líkamsklukkan mín sé vitlaus stillt og hánóttin hjá mér er á 6-10 á morgnana. Því að ég er altaf spræk ef að ég sef á morgnana, sama hversu lítið ég svaf um nóttina.
Þarna kom sem sagt skýringin fyrir því að ég Kristín Alma Sigmarsdóttir sé svona morgunfúl á morgnana, hver væri það ekki ef að hann er vakinn um hánótt!?
Nóg af þessu rugli, núna er ég vakandi því að ég hlakka til, ég er að pakka niður og kannski vegna þess að ég var á flakki í dag og er búin að óverdósa af koffíni. Ég innbyrgði aldrei koffín, passa mig á því - En þegar að Kristín Alma rekst á Starbucks þá er illt í efni, kaffið þar er svo gott, og það er bara gott að fá sér smá latte í þessu frosti sem að skall á Washington í nótt.
En í washington eru margir Starbucks staðir og eftir daginn í dag er Kristín búin að fara á þá flesta, svo að nú sit ég hérna titrandi eftir koffín neyslu dagsins.
Ég hata að pakka niður, það er svo leiðinlegt, en það er þó miklu leiðinlegra að pakka upp, þess vegna hef ég komið upp þeirri skemmtilegu hefð að þegar að ég kem heim úr ferðalagi þá skelli ég töskunum á gólfið og hef þær þar þangað til næst þegar að ég fer í ferðalag. Þá lokar maður bara töskunni og heldur útá völl. Sniðugt.
En núna þarf ég að pakka, vera skipulögð og nýta hvern CM eins vel og hægt er, ég er til dæmis búin að rúlla öllum fötunum mínum upp, eins þétt og ég gat, troða sokkum ofaní alla skó og setja stæðstu fötin og það í stóran ruslapoka og vagúm pakka það með því að sjúga loftið úr með ryksugunni. Já það er heppilegt að ég sé búin að horfa á Gumma frænda pakka oft niður fyrir Ameríkuferðir, það hlaut að koma að því að maður lærði eitthvað gáfulegt af honum :)
Vildi samt óska að Amma væri hérna til að pakka niður, þegar að hún pakkar niður fyrir mig (og hún pakkaði nú niður fyrir Gumma nokkrm sinnum líka ;)) þá er eins og taskan breytist í svona Marry Poppins Tösku, Þar sem að allt kemst ofaní. Ótrúlegt! En núna er amma í Danmörku, hún og afi eru að sjálfsögðu í móttöku nefndinni, og brugðu sér til Danmerkur til að taka á móti aðal Prinsessunni.
Langt ferðalag fyrir höndum á morgun, þetta á eftir að taka svona 22 tíma myndi ég giska á, allt í allt frá því að ég legg af stað héðan og þangað til að ég verð komin til Horsens. Alein og yfirgefin að þvælast, en ég stoppa í klst á íslandi - get keypt mér kúlusúkk og séð og heyrt, gaman :)
Jæja, farin að halda áfram að troða sokkum og nærbuxum ofaní skóna og ryksuga loftið úr úlpunni minni...
6.12.05
Nei, Kristín Alma sefur aldrei, það veit það hvert mannsbarn.
Kristín Alma er líka alveg að fara heim til sín til Danmerkur, og Kristín Alma hlakkar alveg svakalega til.
Þess vegna sefur Kristín Alma bara ekki neitt - ekki hægt.
Þetta var einstaklega óviðburðaríkur dagur framan af, en svo hringdi pabbi með tíðindi mikil, sem að gætu orðið svolítið skemmtileg, ef að maður lítur rétt á þetta, þó að mín fyrstu viðbrögð hafi verið, skondin, en þessar fréttir eru vægast sagt óvenjulegar.
En ég er búin að hugsa um þetta frá öllum mögulegum sjónarhornum og velta þessu vel og lengi fyrir mér, þetta er ekkert hræðilegt, allavega ekki eins og ég hélt að þetta væri :-)
Bara gaman - aldrei hægt að reikna út hverskonar fréttir maður fær, vona að þær haldi bara áfram að vera góðar.
En án gríns, ef að fólkið í kringum mig fer ekki að slaka á og hætta að koma með svona óvenjulegar fréttir þá fer ég bráðum að skrifa handritið af "Bold and the Kristín Alma" eða "Days of Kristin Alma's Life" Það er svo mikið að ske að þetta fer að verða helvíti góð sápuópera, það vantar bara að ég finni my evil twin, gaurinn sem að ég er að deita sé í raun kvennmaður (gæti svosem skroppið helgarferð útúr skápnum, það er náttúrulega í tísku núna sko) eða þá bara hreinlega að ég sé í raun og veru ættleidd, sé frá plánetunni Krypton og sé karlmaður í sokkabuxum sem kallar sig ofurhetju. (Aldrei hef ég skilið þessa árátu hjá þessum svokölluðum ofurhetjum að vera alltaf í sokkabuxum og helst spídó sundskýlu utan yfir...)
En ég er hætt að röfla um þetta því að ég ætla ekki að segja ykkur hvaða fréttir þetta eru og þar afleiðandi er ekki gaman fyrir ykkur að lesa þetta.
Nú er kannski óhætt að greina frá öðrum tíðindum, en þau að ég er að koma til íslands í Janúar og mun dvelja í ja, "piparsveina" íbúð föður míns næstu 6 mánuðina eða svo, komin tími til að það komi kvenmaður á heimilið og hugsi um gamla.
Þetta er svona það helsta sem að er að frétta - Mér líður vel, hlakka svo til að hitta alla á íslandi, og Sölkuna mína!
Elska hana SVO mikið, enda snilldar barn þar á ferð verst hvað hún stækkar fljótt, en núna næsta hálfa árið fær hún algerlega óskipta athygli frá stóru systur 24/7 - hvort sem henni líkar betur eða verr.
25.11.05
Stór merkilegt alveg, ég fæ mér bara kók þegar að ég vakna, kók í hádeginu og kók á kvöldin, þarf ekki að borða neitt annað. Gaman, kannski ekki það hollasta en ég meina fer enginn óþarfa tími í að borða.
Það er Thanksgiving í dag eins og glöggir hafa kannski tekið eftir. Ég veit ekkert hvað skeði þennan dag en það hafði eitthvað með Indjána að gera og mat, það er nóg fyrir mig að vita. Ég fekk sem sagt kalkún í matinn með öllu tilheyrandi, eða svona næstum, ótrúlega gott.
Ég var líka voðalega þakklát í dag, alveg þvílíkt gott skap og allt, eða ekki. Búin að vera bitur og leiðinleg í dag, svo að ég ætla bráðum að koma mér í bælið.
Á laugardagsmorgun er ég að fara til Florida, svo að morgundagurinn fer í að verlsa inn:
- Sólarolíu
- Sólarvörn nr 35
- Moskító spray
- Benedril ofnæmispenna, ef að ég fæ bit
- Vatnsheldan maskara
Það sem að ég þarf að gera á morgun er:
- Fara í Wal-Mart og kaupa þetta dót
- Fara í vax
- Plokkun
- Pedicure
- Pakka niður
Það sem að ég ætla að pakka niður er:
- Sundföt
- 2 nærbuxur
- Pils
- Stuttbuxur
- Hlíraboli
- Flippflopps
- Mp3 spilari stútfullur af nýrri music
- Sólgleraugu
- Derhúfu - Svo að maður fái ekki sólsting (það er ekki gott)
- Vísakortið
Fleiri nærbuxur og aðrar "lífsnauðsynjar" verða svo verslaðar með Vísa kortinu á Thanksgiving útsölunum þar syðra.
Markmið ferðar?
- Verða brún
- Liggja eins mikið og tíminn leyfir á ströndinni
- Ekki brenna
- Ekki fá sólsting
- Versla eins og mother fucker (ætti svosem að ráða við það)
- Hitta Mikka mús og félaga í Disney World
- Reyna að fá leigjendur á gaurinn sem ég er að pimpa út - eða kannski bara halda honum sjálf, erfitt val - Peningar eða karlmaður.
- Ekki hugsa heim
- Skemmta mér vel
- Njóta þess að vera með litlu börnunum sem að ég er alveg að fara að yfirgefa
Já eins og þið sjáið er ferðin bókuð alveg frá A-Ö
Ég er farin að sofa úr mér biturleikan, góðar stundir.
17.11.05
Klukk - enn og aftur!
- Hvað er klukkan? 10.41
- Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Kristín Alma Sigmarsdóttir
- Hvað ertu kölluð? Kristín, Dittín, Kristin, Stína :)
- Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Var ekki með köku..thíhí
- Hár? Já og nóg af því
- Göt? Í eyrunum
- Fæðingarstaður? Reykjavík, Iceland
- Hvar býrðu? Ja, það er stóra spurningin, Lögheimilið er í Horsens, DK.
- Uppáhaldsmatur? Of mikið, Íslenskur matur núna í augnablikinu
- Einhverntíman elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Já, Núna
- Gulrót eða Beikonbitar? Pottþétt gulrót
- Uppáhalds vikudagur - Núna er það Þriðjudagar og Miðvikudagar, þá sef ég út :)
- Uppáhalds veitingastaður - Ruby tuesday, Fridays og Kínastaðurinn hérna...
- Uppáhalds blóm? Pottþétt fíflar
- Uppáhalds drykkur? Vatn bara held ég
- Disney eða Warner Brothers? Bæði
- Uppáhalds skyndibitastaður? KFC, Taco bell og subway
- Hvernig er teppið í svefnherberginu á litin? Drappað
- Hver var síðastur til að senda þér E-mail? Ég var að fá e-mail frá pabba núna rétt í þessu
- Í hvaða búð myndir þú vilja botna heimildina á kretitkortinu? Bara í mallunum hérna
- Hvað gerir þú ef að þér leiðist? Læt mér leiðast meira eða finn mér eitthvað að gera
- Hvaða spurning fer mest í taugarnar á þér? Og hvað ertu ekki komin með kærasta??
- Hvenær ferð þú að sofa? Yfirleitt svona um 23.00 en þegar að ég er í fríi get ég alveg vakað lengur
- Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Inga Rós
- Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Linda
- Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Desperate housewifes, The OC, that 70´s show og Friends!
- Með hverjum fórstu síðast út að borða? Hmm, Öldu og Dante ;)
- Ford eða Chevy? ford
- Hvað varstu lengi að svara þessu? Klukkan er núna 11.03 - Var að sinna Ingu Rós á MSN
Þá er það komið - ég ætla að klukka mömmu, Helgu, Karen Helgu og Ingu Rós
12.11.05
Ætlaði í sakleysi mínu að setjast niður fyrir framan tölvuna og horfa á Steina minn og svo Silvíu Nótt, eins og ég geri á hverjum föstudegi.
Byrjaði vel með dramakynninum í pipó, allar dömurnar orðnar skotnar í mínum manni og fækkaði um eina. Svo kem ég mér í stellingar fyrir Silvíu Nótt, byrja að horfa og sé kunnuglegt andlit á skjánum, þarna hefði ég betur átt að slökkva á tölvunni og fara út að hlaupa eða í jógatíma. En það gerði ég ekki, því að ég er vön að horfa á þennan þátt með bestu lyst.
-hvernig bregst maður við svona löguðu?
Jesús, hvað það er erfitt að vera fræg eins og ég.
Annars skrapp ég í bíó í kvöld og er svo að fara á einvhern íslendinga BASAR á morgun..Eins gott að það verði selt Appelsín og Kúlusúkk :)
Heyri í ykkur elskurnar...
9.11.05
Stundum, þá væri ég alveg til í að vera með svona skap dagsdaglega, ekki það að mig langi að vera hraunandi yfir mann og annan alla daga, en finnst ég stundum bara óeðlilega róleg og yfirveguð yfir hlutunum. Getur maður ekki farið á svona skap námskeið? Það væri alveg bráð sniðugt fyrir mig að skella mér á eitthvað svoleiðis.
Stundum, þá væri ég líka til í að prófa að vera einhver önnur en ég er í svona einn dag, skipta algerlega um líkama, skapgerð, útlit, foreldra, búsetu, systkini, fjölskyldu og bara allt. Sjá hvort að ég gæti haft það eitthvað betra, en ég efast samt alveg um það. Ég er sátt við sjálfan mig og mína fjölskyldu eins og hún er, þó svo að fólk sé ekki alltaf sammála eða fólk geri hluti sem að maður er ekki sáttur við þá eru þau alltaf best.
Stundum þá langar mig til þess að labba niður í séð og heyrt, hér og nú og DV og hrækja framan í þetta skítapakk, hvort sem að það hefur verið að ræða um mína fjölskyldu eða ekki, það kemur ekki málinu endilega við - En kannski eru þessi blöð bara orðin svo öflug að þetta virðist vera eina leiðin til að fá einhverjar fréttir yfir höfuð?? Ég ætla að vona svo sannarlega ekki, því að þetta er ekki sá fréttamáti sem að ég vil tilkynna fólki það að ég sé að fara að gifta mig eða eitthvað. Eða er það kannski bara einfaldast? Flytja bara til Sri Lanka og senda svo tilkynningu í séð og heyrt ef að eitthvað merkilegt gerist?
Tjah maður spyr sig!
Stundum er erfitt að vera froskur!
7.11.05
Klukk - Kitl - já eða bara klikk :)
7 hlutir sem að ég vil gera áður en að ég dey :
- Fá góða menntun og góðan feril (as in, góð vinna og þannig)
- Sjá heiminn
- Eignast mann og börn - helst ættleiða (börnin þá, kannski kall líka..hehe)
- Ala börnin rétt og vel upp
- Hitta spongebob í eigin persónu
- finna upp eitthvað sniðugt eins og post-it, orðið rík fyrir það og séð um foreldra mína í ellinni.
- Eyða svo minni elli í kókoshnetubikíníi á borabora eyju
7 hlutir sem ég get :
- Lesið
- Skrifað
- Verið kurteis
- Passað börn
- Farið í handarhlaup
- Snert á mér tærnar
- Sungið alveg afspyrnu vel!
7 hlutir sem að ég get ekki :
- Keyrt bíl - lagalega séð
- Staðið á höndum
- Verið frekja
- Talað þýsku - en þetta er allt að koma
- Skilið suma karlmenn
- Breytt því sem að er búið og gert
- Gert neitt að því að ég sé svona skrýtin
7 hlutir sem heilla mig við karlmenn :
- Gáfur
- Hendur - dont ask
- Hár
- Húmor
- Bros
- Framkoma
- Rass - má setja svona dónó á opinn vef?
7 frægir sem heilla mig :
- Adam Brody
- Jack Osbourne
- Ryan Cabrera
- Simon Kvamm
- Spongebob
- Logi Bergmann - bara svona ef að hann slysast til að lesa bloggið
- Og svo allir íþróttakallarnir með flottu rassana - úps aftur dónaorð
7 setningar sem að ég segi oft :
- Nice
- Núnú
- (nafn á einhverjum) beibý
- Hvað ertu að rugla kona/maður
- I'm fine how are you?
- Ej holda op hvor dumt!
- Fucking pisse lort :)
7 hlutir sem að ég sé akkúrat núna :
- Ekta fake Gucci sólgleraugun mín
- Spongebob bangsinn sem Karen Helga gaf mér
- Vatnsglas
- Instyle blaðið fyrir nóvember
- Bistex varagloss
- Adidas inniskórnir mínir - þeir eru á gólfinu til að fyrirbyggja allan misskilning
- Teknuð mynd af mér og Evu Maríu - Gerð á eins árs afmælisdaginn hennar :)
7 staðreyndir um mig :
- Reyki ekki
- ELSKA spongebob
- Fýla full house þættina
- Hef búið í 3 löndum á einu ári
- Er 1/4 bresk
- Ég hef brotnað tvisvar sinnum, einu sinni á fæti og einu sinni á hendi
- Ég æfði handbolta með Gróttu
Vá, þetta tók sinn tíma!
Ég klukka hér með : Mömmu, Lindu, Helgu, Karen Helgu og Brynju Rún
2.11.05
Það er allt gott að frétta af mér, á góðri leið með að vera búin að klára þessi 10 kíló af Halloween nammi sem að ég fékk, en þá er ekkert annað að gera að en fara að skella sér í ræktina og svitna út þessum 10 kílóum af nammi, sem er búið að stúta á tveimur dögum. Krakkarnir eru búnir að vera uppum alla veggi í bókstaflegri merkingu, og tel ég það aðalega vera vegna sykuráts, en sem betur fer er ég búin að vera í fríi síðustu tvo daga þannig að ég hef ekki þurft að hafa afskipti af þessum kolbrjáluðu börnum sem þjóta hérna á milli veggja. Ég er ekki búin að gera neitt í fríinu nema bara SOFA, svaf í 13 tíma í nótt og 11 tíma nóttina þar áður, og vá hvað þetta var ljúft. Í gær skrapp ég reyndar til tannlæknis, sem var svosem alltí lagi, nema það að ég þurfti að fylla út endalaust af eyðublöðum og skrifa undir fullt af dóti áður en að ég fékk að setjast í stólinn. Þessar spurningar voru ekkert lítið asnalegar, byrjað á að spurja bara eitthvað týpískt eins og hvort maður væri með ofnæmi fyrir einhverju og hvort maður væri heill heilsu og svona, svo komu þessar þvílíkt weird spurningar eins og hvort að kynþroskaskeiðið væri byrjað og hvort að maður væri byrjaður á blæðingum - Ég bara skil ekki hvað þetta kom tannlækninum við, en svo hugsaði ég bara; ég er í Ameríku svo að maður veit aldrei hverju maður á von.
Jæja, ætli þetta sé ekki komið gott í bili og ég ætla að skjóta mér í sturtu og skreppa svo út að gera eitthvað.
Froskurinn sem er kominn á kynþroskaskeiðið og með nýstrekktar tennur kveður!!!
1.11.05
Happy Halloween!!!

Oh my lord, hvað er búið að vera gaman í kvöld. Sit hérna að farast úr þreytu og búin að éta svona 10 kíló af nammi :)
Búin að labba svona 30 mílur um allan bæ og búin að segja þetta aðeins of oft í kvold : "Trick or treat, happy Halloween og no I'm not the wicked witch"!!!
Ég nefninlega lagði mig í tvo tíma áður en að við fórum út að snýkja og var svoldið mygluð þegar að ég vaknaði, og heimilisfólkið gerði mikið grín af því að núna þyrfti ég ekkert að fara í búning, væri alveg nógu scary svona!!! Þrátt fyrir þetta þá skemmti ég mér ekkert smá vel og ótrúlega mikil upplifun að vera í Ameríku á Halloween, ekkert smá gaman að sjá hvað fólk leggur mikið uppúr þessu og skreytir húsin sín og gerir allt svona scary...
31.10.05
Próf!
Mundu að svarið verður að vera hreinskilið.Vinsamlegast skrollaðu rólega niður og hugsaðu um hverja línu vel og vandlega.
Þú ert í Texas. Í Houston nánar tiltekið. Það ríkir í kringum þig mikið öngþveiti, því á hefur skollið mikill fellibylur og orsakað hræðileg flóð.
Þú ert ljósmyndari, þú vinnur hjá stóru dagblaði og ert í miðju þessarar hryllilegu hringiðu.
Staðan er svo að segja vonlaus.Þú ert að reyna að taka bestu myndir ferils þíns.Það er brak úr húsum og fólk allt í kringum þig, fljótandi í vatninu. Sumir dragast undir og koma ekki aftur upp. Náttúran sleppir lausum eyðileggjandi krafti sínum.
Allt í einu sérðu mann berjast um í vatninu nálægt þér. Hann berst fyrir lífi sínu og reynir á örvæntingarfullan hátt að halda höfðinu upp úr vatninu.
Þegar hann flýtur nær þér finnst þér að þú eigir að kannast við hann.Það rennur allt í einu upp fyrir þér hver hann er.Þetta er George W. Bush!Á sama tíma sérðu að ólgandi vatnið er um það bil að færa hann í kaf... að eilífu.
Þú hefur tvo valmöguleika:Þú getur bjargað lífi G.W.Bush,EðaÞú getur tekið myndir sem myndu án efa vinna þér inn Pulitzer verðlaun. Myndir, sem sýna dauða valdamesta manns í heiminum í dag.
Svo hér kemur spurningin, og mundu að þú verður að svara henni í fyllstu hreinskilni:
Hvort myndirðu velja hágæða litafilmu eða klassískan einfaldleikann sem svarthvítar filmur bjóða upp á?
Bwhaha! já það er spuring :Þ
29.10.05
Þetta myndband er sem sagt um það sem að greyið stelpan er búin að ganga í gegnum á árinu, Paparazzi og fjölmiðlafárið, skilnaður foreldra hennar og það að pabbi hennar gekk af göflunum. Hún sagði það í þessum þætti þegar að það var verið að fylgjast með þegar hún var að gera myndbandið að hún hefði skrifað þetta lag (Confessions of a broken heart) til að tjá tilfinningar sínar til pabba síns, sem að hún talar ekki við, og hana langaði að sýna fólki hvernig þetta hefði virkilega verið. Mæli með að þið farið inná http://www.mtv.com/overdrive og tékkið á þessu myndbandi, mér finnst þetta allavega mjög svo sorglegt, og þetta fékk mig virkilega til að sjá það að þó að maður eigi nóg af peningum að þá er ekki þar með sagt að maður sé hamingjusamur og að maður eigi góða að. Ég vil allavega frekar vera peningalítil og ekki með snargeðveikan pabba og paparazzi ljósmyndara sem að eru næstum búnir að drepa mann...
Annars er allt gott að frétta af mér, verð ein heima með Alexöndru og Evu Maríu næstu tvo daga, þar sem að restin af genginu er að fara til Pensilvaniu að gera eitthvað, en þetta er ekki neitt sem að ég hef gaman að þannig að það er alveg eins gott fyrir mig að vera heima með litlurnar, það er líka bara gott fyrir mig að fá smá brake frá öllum hinum, híhí. En samt alveg hellings vinna að vera með eina 15 mánaða og eina 5 mánaða, en þær eru reyndar mestu ljúflingar svo að þetta ætti alveg að ganga vel fyrir sig.
Jæja, best að fara að setja á sig andlitið og slétta hárlubban, er að fara út á lífið :Þ