Sit hérna og skelf!
Ætlaði í sakleysi mínu að setjast niður fyrir framan tölvuna og horfa á Steina minn og svo Silvíu Nótt, eins og ég geri á hverjum föstudegi.
Byrjaði vel með dramakynninum í pipó, allar dömurnar orðnar skotnar í mínum manni og fækkaði um eina. Svo kem ég mér í stellingar fyrir Silvíu Nótt, byrja að horfa og sé kunnuglegt andlit á skjánum, þarna hefði ég betur átt að slökkva á tölvunni og fara út að hlaupa eða í jógatíma. En það gerði ég ekki, því að ég er vön að horfa á þennan þátt með bestu lyst.
-hvernig bregst maður við svona löguðu?
Jesús, hvað það er erfitt að vera fræg eins og ég.
Annars skrapp ég í bíó í kvöld og er svo að fara á einvhern íslendinga BASAR á morgun..Eins gott að það verði selt Appelsín og Kúlusúkk :)
Heyri í ykkur elskurnar...
7 ummæli:
vher var í sjónvarpinu.. wosw ég er ekki að skilja þetta?
....og hvað með það þó að hann hafi verið að hjálpa litlu dúllunni með þáttinn sinn??
Jakk, þetta var ógeð, mamma!
Sástu þetta ekki?
EY..kallinn tok sig helvíti vel út..ég var alveg með stjörnur i augunum..! hahahahaha Ég hefði samt mest af öllu viljað ver afluga á vegg inní herbergi hjá þer þegar u horfðir á etta..=D hahahahah
-KarenHelga
kristín þetta var svo fyndið! ég, una og hrabba dóum úr hlátri sko...eða aðallega ég, sá þig alveg fyrir mér að vera að deyja yfir þessu :D
hahahah svo sammála Ingu Rós..! =D
-KarenHelga
Jæja Stína mín! Nú er kominn 15. nóv. Á ekki að fara að bæta við bloggið. Mér finnst svo gaman að lesa það. Kv. Amma Stína
Skrifa ummæli