25.11.05

Ég er búin að komast að því að ég get lifað á Kóki, þá er ég að tala um gosið.
Stór merkilegt alveg, ég fæ mér bara kók þegar að ég vakna, kók í hádeginu og kók á kvöldin, þarf ekki að borða neitt annað. Gaman, kannski ekki það hollasta en ég meina fer enginn óþarfa tími í að borða.
Það er Thanksgiving í dag eins og glöggir hafa kannski tekið eftir. Ég veit ekkert hvað skeði þennan dag en það hafði eitthvað með Indjána að gera og mat, það er nóg fyrir mig að vita. Ég fekk sem sagt kalkún í matinn með öllu tilheyrandi, eða svona næstum, ótrúlega gott.
Ég var líka voðalega þakklát í dag, alveg þvílíkt gott skap og allt, eða ekki. Búin að vera bitur og leiðinleg í dag, svo að ég ætla bráðum að koma mér í bælið.
Á laugardagsmorgun er ég að fara til Florida, svo að morgundagurinn fer í að verlsa inn:
  1. Sólarolíu
  2. Sólarvörn nr 35
  3. Moskító spray
  4. Benedril ofnæmispenna, ef að ég fæ bit
  5. Vatnsheldan maskara

Það sem að ég þarf að gera á morgun er:

  1. Fara í Wal-Mart og kaupa þetta dót
  2. Fara í vax
  3. Plokkun
  4. Pedicure
  5. Pakka niður

Það sem að ég ætla að pakka niður er:

  1. Sundföt
  2. 2 nærbuxur
  3. Pils
  4. Stuttbuxur
  5. Hlíraboli
  6. Flippflopps
  7. Mp3 spilari stútfullur af nýrri music
  8. Sólgleraugu
  9. Derhúfu - Svo að maður fái ekki sólsting (það er ekki gott)
  10. Vísakortið

Fleiri nærbuxur og aðrar "lífsnauðsynjar" verða svo verslaðar með Vísa kortinu á Thanksgiving útsölunum þar syðra.

Markmið ferðar?

  1. Verða brún
  2. Liggja eins mikið og tíminn leyfir á ströndinni
  3. Ekki brenna
  4. Ekki fá sólsting
  5. Versla eins og mother fucker (ætti svosem að ráða við það)
  6. Hitta Mikka mús og félaga í Disney World
  7. Reyna að fá leigjendur á gaurinn sem ég er að pimpa út - eða kannski bara halda honum sjálf, erfitt val - Peningar eða karlmaður.
  8. Ekki hugsa heim
  9. Skemmta mér vel
  10. Njóta þess að vera með litlu börnunum sem að ég er alveg að fara að yfirgefa

Já eins og þið sjáið er ferðin bókuð alveg frá A-Ö

Ég er farin að sofa úr mér biturleikan, góðar stundir.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehe..æji þú ert svo mikil rúsína..! Hlakka svoo til að sjá þig og skemmtu þér alveg GEÐVEIKSLEGA í Florida..og mundu you've got to get some tan girl..;) hahahah shit ég sakna þín..!

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

Góða ferð rýjan mín. Og passaðu þig á strákunum.)

Inga Rós sagði...

Skemmtilegur listi..2 nærbuxur hahaha :D en já góða skemmtun sæta, fáðu þér almennilegt tan áður en þú kemur til íslands...þá eiga sko allir eftir að öfunda þig...omg *gelgj* en hlakka svo ótrúlega til að sjá þig KRONG!