Merkilegt!
Í gær fór ég mjög seint að sofa og vaknaði frekar snemma, eða um 10 leytið. Held að ég hafi sofið í svona 5 tíma, en vaknaði klukkan 10 alveg eins og ég hefði sofið í 12 tíma - Vel úthvíld og spræk bara. Ef að ég hefði sofnað klukkan 2 og vaknað klukkan 7 þá hefði ég ekki getað vaknað, ekki séns - Það er eins og líkamsklukkan mín sé vitlaus stillt og hánóttin hjá mér er á 6-10 á morgnana. Því að ég er altaf spræk ef að ég sef á morgnana, sama hversu lítið ég svaf um nóttina.
Þarna kom sem sagt skýringin fyrir því að ég Kristín Alma Sigmarsdóttir sé svona morgunfúl á morgnana, hver væri það ekki ef að hann er vakinn um hánótt!?
Nóg af þessu rugli, núna er ég vakandi því að ég hlakka til, ég er að pakka niður og kannski vegna þess að ég var á flakki í dag og er búin að óverdósa af koffíni. Ég innbyrgði aldrei koffín, passa mig á því - En þegar að Kristín Alma rekst á Starbucks þá er illt í efni, kaffið þar er svo gott, og það er bara gott að fá sér smá latte í þessu frosti sem að skall á Washington í nótt.
En í washington eru margir Starbucks staðir og eftir daginn í dag er Kristín búin að fara á þá flesta, svo að nú sit ég hérna titrandi eftir koffín neyslu dagsins.
Ég hata að pakka niður, það er svo leiðinlegt, en það er þó miklu leiðinlegra að pakka upp, þess vegna hef ég komið upp þeirri skemmtilegu hefð að þegar að ég kem heim úr ferðalagi þá skelli ég töskunum á gólfið og hef þær þar þangað til næst þegar að ég fer í ferðalag. Þá lokar maður bara töskunni og heldur útá völl. Sniðugt.
En núna þarf ég að pakka, vera skipulögð og nýta hvern CM eins vel og hægt er, ég er til dæmis búin að rúlla öllum fötunum mínum upp, eins þétt og ég gat, troða sokkum ofaní alla skó og setja stæðstu fötin og það í stóran ruslapoka og vagúm pakka það með því að sjúga loftið úr með ryksugunni. Já það er heppilegt að ég sé búin að horfa á Gumma frænda pakka oft niður fyrir Ameríkuferðir, það hlaut að koma að því að maður lærði eitthvað gáfulegt af honum :)
Vildi samt óska að Amma væri hérna til að pakka niður, þegar að hún pakkar niður fyrir mig (og hún pakkaði nú niður fyrir Gumma nokkrm sinnum líka ;)) þá er eins og taskan breytist í svona Marry Poppins Tösku, Þar sem að allt kemst ofaní. Ótrúlegt! En núna er amma í Danmörku, hún og afi eru að sjálfsögðu í móttöku nefndinni, og brugðu sér til Danmerkur til að taka á móti aðal Prinsessunni.
Langt ferðalag fyrir höndum á morgun, þetta á eftir að taka svona 22 tíma myndi ég giska á, allt í allt frá því að ég legg af stað héðan og þangað til að ég verð komin til Horsens. Alein og yfirgefin að þvælast, en ég stoppa í klst á íslandi - get keypt mér kúlusúkk og séð og heyrt, gaman :)
Jæja, farin að halda áfram að troða sokkum og nærbuxum ofaní skóna og ryksuga loftið úr úlpunni minni...
3 ummæli:
Góða ferð elskan:)
sjáumst eftir 8 daga.... hólí mólí!
Góða ferð til DK. Þú kannski kastar kveðju til þeirra í Odense þegar þú ferð framhjá með lestinni ;) En ég hlakka til að sjá þig þegar þú kemur á klakann, í seinna skiptið :D
kv. Brynja :D
já skemmtu þér nú í DK! vildi samt óska að ég væri að fara með Lindu! :( en við hittumst bara her á milli jóla og nýjárs! þá verður djamm! no matter what=) en skemmtu þér elskan;*
Skrifa ummæli