Kannski á Íslandi, hver veit?
Ég er búin að tilkynna pabba það að ég ætla að vera á íslandi næstu jól og öll jólin sem að ég á eftir ólifað. Veit ekki hvernig ég á að segja mömmu þessi tíðindi, þar sem að hún ætlar að vera í Danmörku öll jólin sem hún á eftir ólifað. Þannig að hún mun ekki njóta þeirra forréttinda að hafa mig í nærveru sinni á jólunum.
En þið þarna á íslandi munuð hins vegar njóta þess að hafa mig hjá ykkur, þ.e. ef að einhver vill hafa mig hjá sér, sumir voru voða fyndnir áðan og sögðu að það væri ekkert endilega nein eftirspurn eftir því að ég væri á íslandi þá, sem er kjafæði - það er alltaf nóg eftirspurn, ég veit það, ekki nema ég lifi í blekkingu.
Þessi jól eru nú búin að vera fín, þó að það sé ekki búið að vera mikið annað gert en að vera í náttfötunum, borða, vera í tölvunni og svona huggulegheit. Vantar öll jólaboðin, íslenska matinn og restina af famelíunni og vinunum. Það er samt búið að spurja mig nokkuð oft hvort ég vilji ekki kíkja á djammið, meðal annars á aðfangadagskvöld - fatta ekki svona, mér finnst ekki viðeigandi að djamma á jólunum, fyrir utan það það er ég að verða of gömul fyrir svona djammstand, nenni því engann veginn, vil bara vera heima og kúra undir sæng með góða mynd.
Mér finnst aðventan hér í danmörku þó betri en á íslandi, ekki þetta stress alltaf hreint, þannig að það er spurning um að fljúga bara til íslands á þorláksmessukvöld - Sleppi ég öllu stressi.
Annar langaði mig bara að segja ykkur þetta, og jafnframt þakka ykkur fyrir mig, voða ánægð með þetta allt saman.
4 ummæli:
ert meira en velkomin að vera hjá mer!:D love you like a fat kid loves cake;)
ja..ég segi bara það sama og linda en með meiri áherslu á öllum orðunum..=D
-KarenHelga
Ég verð hér með hangikjet á laugardaginn vinan, ef þú flýtir þér áttu hér sæti við borðið, annars bara set ég afgangana í frystinn og hita upp síðar
Aww, takk fyrir sætið, en því miður er búið að heimta að ég sé annars staðar, bölvuð frekja í þessu liði alltaf ;)
Ég myndi vera til í að mæta í upphitaða afganga í enda janúar :)
Skrifa ummæli