Um daginn talaði ég um armband sem ég fékk í skírnargjöf og langaði að setja lengri keðju á. Fór með armbandið í ónefnda skartgripaverslun í Kringlunni og fékk ekki góð svör þar svo ég leitaði annað. Fór með armbandið í Hringa á laugarveginum og málinu var reddað á núll einni eða allavega á einum degi. Gat sótt armbandið daginn eftir og þurfti ekki að selja úr mér líffæri til að eiga fyrir þessu.
Mæli með þessari búð. Ótrúlega fallegar vörur þarna og frábær þjónusta!!
| Uppáhalds úr og uppáahlds armband |
1 ummæli:
Mikið er ég glöð að þú gadt látið laga skírnargjöfia, Kristín mín?
Kveðja fra okkur afa
Skrifa ummæli