Sá svo sniðugt á Pinterest um daginn. Vanillusprittkerti í stjaka/skál sem var fullur af kaffibaunum. Þar sem ég er kaffi, vanillu og kertasjúk mátti ég til með að prufa. Og nú þegar kertatímabilið er að skella á þá var tilvalið að græja þetta núna. Ég á lítil sprittkertaglös úr Ikea sem ég fyllti af kaffibaunum og skellti svo einu vanilluprittkerti (líka úr Ikea) ofaní. Stillti þessu svo upp í gluggakistunni og kveikti á kertunum. Mjög góð vanillukaffilykt sem kemur af þessu og mér fannst eiginlega of mikið að vera með kveikt á fjórum í einu í stofunni. Myndi hafa kannski svona tvö næst.
Mæli með að þið prufið..![]() |
| Kósý í gluggakistunni minni :) |

3 ummæli:
hey
"Virðuleg hvítvínslegin húsmóðir á Hjara veraldar segir frá raunum sínum."
Húsmóðir á hjara veraldar JÁ, hvítvínslegin NEI :)
hehehee.....
Haha. Ég hef drukkið svo mikið hvítvín í gegnum tíðina að ég er vel marineruð.. ;)
Þú er snillingur Kristín mín. Svo gaman að lesa bloggin þín.
Skrifa ummæli