Þessi drykkur er alltaf jafn góður þó hann sé ekkert voðalega fallegur greyið. Tilvalið að skella í einn svona á morgnana, algjör vítamín sprengja. Ég fékk mér þennan í dag þegar ég vaknaði eftir næturvakt. Dugði ekkert minna til að vekja mig til lífins.
Ég fer ekki eftir neinni uppskrift, bara slumpa og sirka þetta út.
Spínat (ég frysti spínat og nota það svo í svona drykki)
Banani
Frosið mangó
Appelsínusafi
Vatn
Chia fræ (ég bleyti upp í þeim áður)
Allt sett í blender og blandað vel saman. Ég bæti við vökva eftir þörfum. Ég set ekkert voðalega mikið af vökva því mér finnst þetta best það þykkt að ég geti borðað með skeið. Þá er þetta bara eins og sorbet - spínat sorbet :)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli