Ég fæ seint verðlaun fyrir að vera virkur bloggari en fæ kannski smá kredit fyrir að reyna og koma af og til með miklar yfirlýsingar um meira og betra blogg :)
En að öðru og fallegu, mig hefur lengi langað í nafnahálsmen en aldrei fundið neitt sem hefur heillað mig, þau eiga til að vera svo klunnaleg. En ég rambaði inní Hringu á laugavegi um daginn og sá þar þetta hálsmen sem mér fannst hæfilega fíngert fyrir mig. Myndi reyndar vilja gyllt og bara hafa Kristínar nafnið, held að 'KristínAlma' sé of mikið.
Nú þarf ég bara að bíða eftir góðu tilefni til að panta það og önnur tilefni til að geta verslað mér margt annað fallegt í þessari búð.
Ég er víst algjör lumma að vilja fá svona hálsmen núna þar sem þetta var í tísku fyrir nokkrum árum en mér finnst þetta fallegt - enda ber ég alveg einstaklega fallegt nafn ;)
Talandi um nöfn þá á ég gullarmband með nafninu mínu sem ég fékk í skírnargjöf fyrir ansi mörgum árum. Mig langar að láta setja lengri keðju í það - mælið þið með einhverjum góðum gullsmið sem er hægt að leita til með svoleiðis?
(já ég ætla að eiga armband og hálsmen með nafninu mínu!)
Mikið er þetta skemmtileg færsla...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli