19.7.12

Hárvangaveltur

Ok, er ekki enn búin að finna útúr þessu með myndirnar, þarf kannski bara að fá mér tölvu. Langar í hvíta Macbook, (sé enn eftir að hafa ekki keypt mér þannig 2007 þegar ég keypti mér HP tölvu sem entist í tvö ár) en skilst að svoleiðis sé ekki í boði lengur. Get allavega sagt ykkur að ég fæ mér lítinn krúttlegan makka. En að öðru. Er búin að vera velta fyrir mér hárvörum. Þurrsjampó: er þetta algjör snilld og hvaða merki er best? Sléttujárn: ég ælta að fjárfesta í einu góðu, er með eitt frá Tigi í sigtinu en datt í hug að heyra frá ykkur áður en ég punga út fyrir því ef það skildi leynast einhver önnur snilld þarna úti. Annars er ég svo trygg Tigi að ég ætti að vera á prósentum hjá þeim. Við JP notum hárvörur frá þeim og Hrappur litli líka - enda lyktar hann eins og bláberjamöffins alla daga ;) Ipad vill ekki leyfa mér að hafa greinaskil í færslunum mínum, svo það verður bara að vera eins og ég skrifi allt í einni runu..

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Turrsjampo er snilld. algjor snilld! og svo er lyktin lika svo otrulega god! ps: eg vissi ekki ad tu vaerir byrjud ad froskast aftur! Love it
Helga Lovísa

Rut R. sagði...

ég tek alltaf með mér þurrsjampó ef ég fer e-h útúr bænum, algjör snilld.
ég nota Batiste, sem er td til í Hagkaup.

Nafnlaus sagði...

Gæti nú mögulega reddað þér Babyliss Pro ef þú vilt ;) er kannski ekki hlutlaus en ég fíla Pro vörurnar :)
kram, Svanhildur

Nafnlaus sagði...

Sléttujárni sko - á góðum díl ;) Svanh.

Kristín Alma sagði...

Helga: Já takk er að reyna að rífa þetta upp hérna, sjáum hvað það gengur ;) En hvaða tegund ertu að nota sem er með svona góðri lykt?

Rut: Já held þetta sé must í snyrtitöskuna.

Svanhildur: hmm ætla að kíkja á netið, hef líka heyrt gott um babyliss pro. Voðalega getur þú selt mér mikið af dóti kona.. ;)