Sem betur fer keypti ég mér bók í fríhöfninni og var því niðursokkin í hana alla leið.
Annars var þetta ferðalag alveg þess virði. Það var svo ótrúlega gott og gaman að koma aðeins og gera eitthvað annað og hitta annað fólk. Það er nefninlega voða mikið alltaf sama rútínan hérna úti.
Ég náði ekki að hitta nærri því alla sem ég ætlaði að hitta, enda var ég bara tvo daga í Reykjavík. Næst verðið þið bara að taka road trip til Grundarfjarðar!
Annars er bara alveg megahega gott veður hérna. Yfir 20 stiga hiti og sól. Verst að maður getur hvergi wörkað tanið þannig að ég verð bara eins og vofa áfram.
Svo eru Íslenskir dagar í skólanum. Frekar spes, en kitlar samt þjóðarstoltið svolítið þegar það er kjötsúpa og kjöt í Karrý í matinn í hádeginu, spiluð íslensk tónlist og kleinur og snúðar í kaffinu.
Samt viðbjóður að éta heita kjötsúpu í þessum hita. Maður ætti að borða ferska, suðræna ávexti á svona dögum. En maður lætur sig hafa það - svona er stoltið mikið.
Jæja, dönskutími. Þarf að skila ritgerð um eitthvað gasalega spennandi efni!!
12 ummæli:
"Næst verðið þið bara að taka road trip til Grundarfjarðar!" hmmm er ekki eitthvað rangt við þetta?????
Ég held að kjéllingin sé alvarlega búin að smitast af dreifara veirunni.... scheize....
Kv. Svanhvít
Ég held að það sé eitthvað rangt við ÞIG Stjáni og Svanhvít...þú ert veira:)
hefði viljað hitta þig en samt gaman að tala við þig í síma.. hahahahah:D allavena, ég er til í roadtrip til Grundó anytime... plöggaru gistingu eða??:D
Það er rétt Villi stilla upp í varnarveggin strax ;-)
Annars átti ég nú við hvort að það væri ekki eitthvað málfræðilega rangt við þetta
Stjáni: Road trip í Grundarfjörð? Nei, maður er að fara TIL Grundó. Alveg eins og þú ferð til hafnarfjarðar.
Allavega er það svona í minni orðabók.
Svanhvít: jebb, ég varð það nú þegar ég flutti til Horsens :þ
Villi: You go girl!
Helga: Jessöry. JP er með auka rúm. Þú getur líka bara sofið á milli okkar.. grrr :)
Bíddu nú er þetta bara farið að vera svona efti behag sem að maður á að segja í eða á Grundó
Þú ert í Grundarfirði. En maður getur alveg farið TIL Grundarfjarðar.
Maður getur hins vegar ekki verið Á Grundarfirði.
Annars verðuru að ræða um þetta við Jón Pétur eða Villa. Ég hef ekki mikinn skilning á þessu. Enda tala ég um að vera óframkvæmdarsöm :-D
Ég er til í það, að hafa Helgu á milli. Hef reyndar aldrei hitt hana, en það hljómar spennandi!
hahah! Djöfulsins perrar eru þið !!!:D
en jú..ég er svosem alveg til í að kúra á milli....;)
já segjum það þá! Þú bjallar bara í mig næst þegar þú ert á leiðinni til Grundafjarðar!!
JP: Jú, þú hefur hitt hana. Í brekkunni í eyjum.
Helga: Mig hefur alltaf langað í þig, hehe.
En já, þú kíkir bara í sumar. Taktu Lindu með þér.
heyrðu það er rétt! við höfum hisst!! það er rétt!!!!
en þú veist mig langar líka í þig! en afhverju að taka Lindu með? verður hún ekki bara fyrir:D nei djók.. ég þarf hana til að keyra;) hahah
Skrifa ummæli