9.5.08

Oðnæmi

Dí marr. Ég er ekki að nenna þessari sól svona meðan maður er á lokasprettinum í skólanum. En yfir öllu er nú hægt að kvarta.

Markmið dagsins í dag var að fá lit. Sem ég tók mjög alvarlega og um leið og ég var búin að skila enskuverkefni þá fór ég með teppi, kodda, bók og iPod útí garð og þrjóskaðist við að liggja þar í einn og hálfan tíma.
Þá var ég orðin svo bólgin í kokinu (veit, skemmtilegt) og augum af ofnæminu að ég stökk upp til að taka töflu. Var búin að gleyma því að það eru svefnlyf eða einhver sljófgandi lyf í þessum töflum þannig að ég gat ekki haldið augunum uppi eftir korter og rétt náði inní rúm áður en ég drapst. Svaf í alvöru svo fast að ég held að hjartað hafi hætt að slá.
Fer í sprautu í næstu viku þannig að þetta lagast þá. Guði sé lof, nenni ekki að vera eins og fílamaðurinn í mjög langan tíma.
En svo til að segja ykkur frá því að þá tókst mér aldeilis að fá lit. Ca 3 freknur á nefið og svo er ég orðin mega brún á ristunum. Ég er svo gölluð - Það er auðvitað til of mikils að ætlast að verða brúnn á handleggjunum til dæmis!!!

Verð að vera duglegri að wörka tanið, get ekki tönglast á því að það sé alltaf svona gott veður hérna og komið svo bara sjálflýsandi heim í sumar..!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

Demet! hvað ég er orðinn brúnn í andlitinu, handleggjunum og maganum. Þetta er óþolandi erfitt á þessum tíma ..en komdu samt við á ströndinni í Aarhus um helgina..

Nafnlaus sagði...

hættiði að tala um sól og tan og hita - ég er sko orðin dökkgræn í framan af öfund... böhöhöhöööö

Nafnlaus sagði...

afhverju var eitthvað fjarlægt? hefði viljað lesa eitthvað djúsí komment

Kristín Alma sagði...

Villi: Þú lítur út eins og homeblest, farðu að liggja á maganum líka!

Svanhvít: Bara koma út í heimsókn :þ

Helga: Þetta var bara komment frá Villa sem póstaðist of snemma, lestu bara helminginn af kommentinu hans og þá sérðu hvað var fjarlægt. Ekkert djúsí.

Nafnlaus sagði...

Já, en um leið og ég kem út í heimsókn fer sólin... érasegjaðérða.... :( - hmm.. væri annars gaman að kíkja...

Ég stefni á að vera tönuð á kinnum og nefi í sumar.... vera bara jöklabrún..hehe