22.5.08

Hardcore chick!

Það er búið að sjúga úr mér allar hardcore frumurnar sem eftir voru í líkama mínum. Ekki eins og þær hafi verið eitthvað margar eftir og hef ég rembst eins og rjúpan við staurinn til að halda í þessi örfáu frumulíffæri sem áttu eitthvað eftir af hardcore.

Fór sem sagt í hormónabíó í gær, eða bólubíó eins og einhver sagði (fór með unglingaklúbbinn í Horsens í bíó sko). Fórum á What happens in Vegas og kræst, ég grenjaði alveg í öðru hvoru atriði. Framan af var það úr hlátri, en einhverntíman þarna um miðja mynd fóru tárin að streyma niður kinnarnar af öðrum ástæðum. Fyrst útaf því að þau voru svo krúttleg. Svo því að þau voru svo ástfangin, (gerði útslagið þegar þau fóru að vanga við eitthvað voða dramatískt 80's lag) svo af því að hún varð sár og svo aftur því að þau voru svo ástfanginn og svo gerði það næstum því útaf við mig að hann bað hennar í endann.

Maður er náttúrulega ekki í lagi. En núna er ég bara orðin vælandi kelling.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

..en takk samt fyrir að segja frá söguþráðnum, alltaf gott að fara á myndina vel upplýstur svo það gerist nú örugglega ekkert óvænt. (var samt ekkert á leiðinni á hana sko;)

Nafnlaus sagði...

Já, nú sparast peningur fyrir andvirði miðans á þessa mynd. Býð þér í grill í staðinn í sumar. Vá, þetta voru mörg í:)

Nafnlaus sagði...

yessss að breytast fleiri í kjellingar en bara ég... en ég hef samt aldrei grenjað í bío og fagnað júróvision..það eru bara konur..

kv.
Brekamamma

Kristín Alma sagði...

Villi: Einmitt. Þú varst ekkert að fara á þessa mynd. Ég bauð þér með og þú neitaðir. Svo fórum við um daginn í bíó með Garðari og Írisi en þið vilduð frekar fara á karlrembumyndina endalausu, og leiðinlegu frekar en þessa hugljúfu og skemmtilegu.

Ásdís: Ehm, ég vil nú ekki vera leiðinleg, en þú býrð í Grundarfirði og þarft þar af leiðandi að keyra í 2 tíma til að komast í næsta bíó. Ég segi þér bara restina af myndinni þegar ég kem í grillið :)

Arna: Svo lengi sem við erum ekki farnar að sauma gardínur og baka marengs í tíma og ótíma þá læt ég þetta vera. Kenni bara pillunni um eða eitthvað :)

Nafnlaus sagði...

sammála villa, mér langar að sjá þessa mynd en núna er það algjörlega tilgangslaust! hvenær kemuru í bæinn, hvernig verður þjoddarinn hjá þér? ertu komin með gistingu?

Kristín Alma sagði...

Helga: Pleh, Þú getur alveg farið á hana, sagði ekki frá aðalatriðunum. Þetta var bara svona típísk Hollywood mynd.
En þjóddarinn. Hmm, við erum held ég ekki búin að panta, Villi var eitthvað að brasa í því. Við verðum bara í tjaldi sko. Ertu að fara með Lindu?

Kristín Alma sagði...

Æji gleymdi. Veit ekki hvenær ég kem í bæinn. Lok júní/byrjun júní er planið.
Annars fer ég beint í Grundó býst ég við.

Brynja Björk sagði...

Við ættum að fara saman í bíó. Verst að það er hætt að sýna P.S I love you. Hefðum aldeilis getað gólað saman á henni!