Þetta setur reyndar gífurlega pressu á mig. Verð að vera komin með barn fyrir 7. apríl á næsta ári, ef ég ætla að þóknast föður mínum, sem vill ólmur verða afi fyrir fertugt.
Einar Páll á líka afmæli í dag. Og fær hamingjuóskir frá mér. Hjalli (my brother from another mother) á líka afmæli í dag. Óska honum líka til hamingju með áfangann.
Allir á leið í karabíska á morgun. Er að kafna úr öfund og langar mest að grenja. Vil komast í sól og hita. Fínt veður hér reyndar, en ekki nógu heitt til að stripplast um berleggjaður í flippflopps. En ég verð hérna bitur í gluggaveðrinu að læra stærðfræði eins og enginn sé morgundagurinn.
Sem betur fer stendur svolítið skemmtilegt á dagatalinu mínu í lok apríl. Bara rúmar tvær vikur..!
5 ummæli:
Elsku kerlingin mín!
Er alveg miður mín yfir að þú komist ekki með en um leið stolt af ábyrgðarfullu stelpunni minni......Við verðum að gera eitthvað skemmtilegt seinna. Gangi þér vel. Amma Stína
Æjjjjj....ferð þú ekki með á skipið! Lífið er stundum erfitt!;)Kv. Jakobína
bíddu brother from another mother... móður þinnar í föðurætt?
-þóra
til lukku með gamla, það ætti ekki að vera erfitt fyrir þig að punga ut einu kríli fyrir þennan tíma, ert nú komin með öll tæki og tól til þess!
Þú veist að við verðum að vera bumbubræður. Þú hefur séns út sumarið til að verða bomms!
Skrifa ummæli