Uppskriftin er svona, alveg megahega einföld..
Ca 4 kjúklingabringur
Ostasósa
Salsasósa
Rifinn ostur
1 poki Doritos snakk
Aðferð:
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk (finnst best að nota fahitas kryddblöndu).
Doritos snakk er mulið og sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan þar ofaná og síðan salsasósan. Síðan eru steiktar kjúklingabringurnar settar þar ofaná og síðan rifinn ostur. Sett inn í ofn í 15-20 mín 200°
Mér finnst líka fínt að hafa bara hreinan smurost í staðinn fyrir ostasósuna. Ég gerði það þegar þið voruð í mat. Þá blanda ég bara saman salsasósu og smurosti og dembi yfir snakkið.
6 ummæli:
Takk fyrir skjót viðbrögð, þú ert alveg mögnuð...
þetta verður gert í framtíðinni:)
Svooooo gooott !!!!
Knús
ja sæll!!!!!!!!! Ætli garðar sé að googla garðar og mamma þín ennþá að googla villa hmmmmm þetta er voða fin uppskrift ættir að taka upp uppskriftarvef kristínar ökmu
Ég elska þessa uppskrift.
Aldrei hélt ég að ég myndi leita eftir mataruppskrift hjá krakka kvikindi.
En þetta smakkaðis svona líka sæmilega.
KV. Gamli
Skrifa ummæli