Vá, útskriftin búin. Í júlí 2004 virtist þessi dagur vera eitthvað svo ofboðslega langt í burtu. Almáttugur minn, hvað ég vissi ekki hvernig ég átti að haga mér þarna í útskriftinni áðan. Hvort ég ætti að grenja eða hlæja eða hvað. Svo ég og mamma sendum þeim öllum bara "Rock on" þegar þeir tóku á móti skírteininu. Fékk svo óneitanlega kjánahroll niðrí rassgat þegar að nafn eins tiltekins Byggingarfræðings var kallað upp og hann bara að dúlla sér í IKEA. Vandræðalegt.
En ætla nú bara að segja til hamingju allir og skemmtið ykkur í partý-inu í kvöld.
-Sjálf ætla ég að passa drekann. Hendast með hann á McDonalds og svo ætlum við að horfa á video og fá okkur popp.
1 ummæli:
Maður verður nú að komast í IKEA þó maður sé að útskrifast, ekkert alltaf opið þar, allavega ekki á næturna.
Skrifa ummæli