7.1.08

Frábært! Maður er rétt svo búin að sætta sig við að nóa konfektið, íslenska appelsínið, vatnið og útisundið er ekki til í Danmörku. Maður er við það að taka Haribo, Faxi kondi, kalkvatn og ógeðs innisundlaugar í sátt þegar að þeir snillingarnir í sjónvarpinu sýna einhvern þátt um Ísland.
Jájá, einhverjir danir, sponsaðir af fjallraven bak og fyrir og upp og niður fara í ferðalag til Íslands og gera allt það skemmtilega. Sofa í tjaldi, fara í hvalaskoðun, hestbak, skoða íslenska náttúru, fara í jarðböð, éta ógeðslega girnilegan og djúsí grillmat og ég veit ekki hvað.
Langaði að grenja. Þurfti aðeins að slá mig og minna mig á að það er korter síðan ég kom frá Íslandi og ekki nema 10 vikur í að ég fari þangað aftur.

Samt greinilega ekki allir jafn áhugasamir og ég um að horfa á litla Ísland í danska sjónvarpinu, því þegar ég nefndi þetta við einn vin minn, þá sagði hann "Það eru samt svo flottar kellingar í myndinni á TV3!"
Myndin sem var í gangi þar þegar ég skipti um stöð til að athuga (Já, ég held ég sé að verða lesbísk á að umgangast þessa strákorma.) þá var það myndin Bring it on..again eða eitthvað álíka spennandi.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er næstum búinn að fara í sund á hverjum degi síðan ég koma, það er voða næs.

Kristín Alma sagði...

Good with you!!

Nafnlaus sagði...

Æi ég skil þig svo vel... manni finnst stundum danmörkin vera svo mikið kúkapleis... vont en það venst.

en... hvaaa... ertu að koma eftir 10 vikur aftur...? það er nú ekki lengi að líða ;o)

En juminn.... ég þarf að fara að drífa mig í sund... fer aldrei í sund sko.