Jebbsí, flugið gekk smurt. Fyrsta skipti í sögunni sofnaði ég ekki eina sekúndu. Sama hvað hefur gengið á í flugi, þá hef ég alltaf náð að sofa eitthvað. Ekki núna.
Þessvegna var ég alveg búin á því þegar ég lennti og keyrði á milljón heim í Kórsali. Held án gríns að ég hafi verið í 25 mínútur frá flugvellinum og uppí Kórsali. Þurfti mjöög oft að hægja mikið á mér, því mér fannst ekki við hæfi að keyra á 90, enda síðasta sem ég keyrði í DK var á hraðbrautinni á 140. En ég komst lifandi heim.
Heima beið mín svo einn Pabbi og ein Ronja. Ronja er voðalega skotin í mér, er búin að prufa að leggja sig í tölvutöskunni, ferðatöskunni, undir sænginni minni í nótt og núna liggur hún hálf ofaná tölvunni. Sem sagt, víkur ekki frá mér. Undarlegt, mér finnst hún svo leiðinleg, greyið.
Það var erfitt að vakna í morgun. Gerði mér ekki grein fyrir að það væri dimmt hérna til 15.00 á daginn. Ég þori ekki út, held að ég týnist bara.
Annars er voða gott að vera kominn til Íslands. Hlakka mestast til að hitta Sölku systur samt, get ekki beðið eftir því. Veit samt ekki hvenær það verður, því að ég er að vinna í Smáralindinni eins og mófó fram að jólum. En þið vitið þá allavega að þið getið fundið mig í BabySam í Smáralind.
Og já, ég er með danska númerið mitt, allavega þangað til að ég græja íslenska númerið, gleymdi kortinu úti, snillingur, ég veit!
4 ummæli:
Óóó ertu að vinna í dúskahúfubúðinni í Smáralindinni. Ég hefði brunað niðrí Skeifu að kíkja á þig, hefði þá bara eina ferðina enn hitt dömurnar sem muna sennilega eftir mér og eru örugglega komnar með ógeð af mér. ..Oohhh kemur dúskagaurinn einu sinni enn að spyrja um húfurnar..
HAHAHA! Mér finnst ógeðslega fyndið að þú kallir þetta dúskabúð. En já, ég er að vinna í smáró. Ég ætla að spurja stelpurnar útí þessa dúska sko...!
ferð niður í síma og borgar eitthvað um 1000 kall og færð nýtt kort en heldur sama númerinu.. við eigum nokkkur kort :)
kv.
Brekamamma
Jájá, ég fékk þetta alveg gratis maður. Hún vildi reyndar sjá skilríkin mín, því númerið er víst skráð á mömmu! Veit ekki hvernig hún hefur troðið sér þangað.
Skil heldur ekki hvað hún vildi sjá ökuskírteinið mitt, það stendur ekkert um foreldra mína á því!!
Skrifa ummæli