4.12.07

NEI NEI NEI!!!

Það á að banna svona endi á Desperate housewives!
Verður þetta verkfall aldrei búið, eða hvað er málið?

Hmm, annars skulda ég víst færslur alveg hægri vinstri. Einhverra hluta vegna þá hefur þetta blessaða blogg mitt setið á hakanum, síðustu daga. En núna reynum við nú að bæta það upp.

Má til með að segja ykkur eina skemmtisögu af sjálfri mér.
Það var nú barasta þarsíðasta laugardag sem ég reif mig á lappir um 8 leytið og hennti mér í sturtu. Svo þreytt að ég varla stóð í lappirnar. Var að fara að passa Brekann milli 9 og 13 og þá dugar ekki að vera þreyttur, því barnið á það til að vera uppum alla veggi og þess á milli standa ofaná sjónvarpinu. Svo ég dreif mig í langa sturtu, skrúbbaði mig bak og fyrir, þangað til ég angaði eins og rósarunni, eða meira svona eins og sápuverksmiðja, en það er annað mál. Ég er eitthvað þarna að dunda mér í sturtunni við að raka á mér fótleggina og djúpnæra hárið, þegar ég hugsa með mér að nú skyldi ég aldeilis gera mér dagamun og tríta mig ægilega þegar að ég kæmi undan heitri sturtunni.
Nú þegar undan sturtunni er komið, þurrka ég kroppinn og nýþvegna hárið og ákveð að núna sé sko dagurinn fyrir sparikremið. Sem er eingöngu borið á líkamann eftir svona góða sturtu, því þá verður maður svo silkimjúkur frískur í húðinni. En jæja, hvað um það. Ég teygi mig eftir kremtúbunni, orðin öll spennt að fá að setja á mig þetta sparikrem. Maka þessu á mig í mikilli flýti og hugsa með mér að það sé nú eitthvað öðruvísi lyktin af þessu heldur en mig minnti. Hugsaði svo bara með mér að ég hefði líklega ekki borið það á mig í svo langan tíma að ég hreinlega mundi ekki hvernig lyktin hefði verið. Nú ég er búin að maka þessu guðdómlega kremi mínu á allan líkaman, fer svo að klæða mig, bursta og greiða. Enn finnst mér ég angandi af einhverri skrýtinni lykt, sem var nú samt góð, bara ekki svona kremlykt.
Ég fer og sinni Brekanum meðan móðirin var á fyllerí/þunn í köben og faðirinn að mennta sig. Við Bjarni fáum okkur svo hádegismat saman og erum bara þarna í góðu chilli, ég horfi á Greys og hann á fótboltaleik. Síðan skunda ég heim á leið. Ennþá hálf undrandi á þessari miklu lykt sem var af mér.
Kem innum dyrnar heima hjá mér, þá var orðið bjart í öllu herberginu og ég sé mér til skelfingar að þetta fegrunarkrem sem ég var að bera á mig var í raun Piz Buin sólarvörn númer 8!!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ooo ég var nú reyndar að vonast eftir meira krassandi endi...

Nafnlaus sagði...

Ég var alveg að búast við háreyðingarkremi...

Kristín Alma sagði...

Helga: Sleipiefni?

Hrafnhildur: Ojj, ég gleymdi einu sinni háreyðingakremi á mér og var með flakandi sár alla Flórída ferðina. Held ég hefði nú alveg fattað eftir hálftíma þegar að húðin væri að brenna af að þetta væri ekki spari kremið!!

Nafnlaus sagði...

ja eg var eiginlega að búast við háreyðingarkremi.. en sleypiefni, er það ekki fulllangt gengið, er það ekki yfirleitt svona eins og gel, svona vaselín og svoleiðis;) en ef þetta hefði verið háreyðingarkrem þá hefði verið afskaplega fynndið ef að ÖLL líkamshár væru farin:D og þú værir bara alveg hárlaus um allan líkama:D haha. það hefði verið frábær endir á þessari sögu þinni.. hefði samt vorkennt þér smá:$