12.12.07

Jájájá

Vóts. Alltof stutt í brottför. Kem heim á sunnudagskvöld til að gera föður minn gráhærðan/ari. Drasla svoldið til í Kórsölum, svelta köttinn og ræna bílnum til að fara út um miðjar nætur.
Hlakka ótrúlega mikið til og er með endalaust af fiðrildum í maganum, því ég hef ekki komið til Íslands í fjóra mánuði. Það er bara alltof langur tími án Sölku og pabba. Þegar maður er farinn að sakna Ronju líka þá er ástandið nú orðið slæmt.
Geri fastlega ráð fyrir að BabySam muni verða heimili mitt frá 17.des og fram að jólum. 24-26 ætla ég að vera með fjölskyldu og vinum, borða góðan mat og LESA. Hlakka ótrúlega mikið til að lesa bækurnar sem voru að koma út fyrir jólin. Spilakvöld koma líka til greina :)

27-29 des vil ég helst hafa forræði yfir Sölku. Við þurfum nefninlega að systrast aðeins, kíkja í sund, kúrast uppí sófa með Arsenal sængina og horfa á litlu hafmeyjuna 22 (Litla hafmeyjan 2) eins og krílið myndi segja. Síðan ætla ég að kíkja aðeins útfyrir borgina og uppí sveit, eða ekki sveit heldur nafla alheimsins eins og einhverjir strákar sem ég þekki myndu kalla það.
Svo ætla ég í sund, sund, sund, sund. Og í pottinn hjá ömmu og afa. Vegamót. Kíkja út á lífið með Brynju og lemja ráptuðrur með Chanel og Gucci töskunum okkar. Vesturbæjarís. Bæjarferð með ömmu. Heimsóknir. Mmmmm hvað ég hlakka til.

Reyndar er eitt sem böggar mig, að vera bíllaus 17-24 des. Ekki séns, verð að redda mér bíl.






8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég get lánað þér minn bíl!!! Þekki þig ekki baun en það er aukaatriði :)

Nafnlaus sagði...

Ps. emailið mitt er svandisros@hotmail.com

Nafnlaus sagði...

Hell yeah, Grundarfjörður city passið ykkur, Froskurinn er að koma íííhaaa..

Nafnlaus sagði...

ha afhverju ertu að fara til Grundarfjarðar!?

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

Af hverju.......spyrð eins og fávís kona í ölæði bara.

Kristín Alma sagði...

Villi: Tjáh, Nú hrynur kirkjufellið sko!

Arna: Ég ætla bara aðeins að kíkja í kaffi til Hjördísar og Guðráðs, tengdaforeldra minna. Langar samt aðalega að sjá hvaðan vinirnir mínir koma.
Get alveg farið í mosó líka sko ;)

Mamma: Jæja, segðu. Arna er svo vitlaus.

Nafnlaus sagði...

Hvort ertu með Jón Pétri eða Villa??????????? Eða er eikker annar bróðir sem við vitum ekki af?

Brynja Björk sagði...

Báðum auðvitað!