Komin heim úr sveitinni. Voða notó að fara svona í sveitina að tjilla, sofa í straujuðum sængurfötum og borða hrygg í hádeginu.
En annars er ég bara á leiðinni útá Keflavíkurflugvöll eftir 3 tíma eða svo. Þaðan er förinni svo heitið til danaveldis.
Æji hvað verður gott að komast heim og sofa í almennilegu rúmi. Efri kojan er ekki töff lengur, ég er að verða tvítug for crying out loud. Að skrönglast þarna upp og niður tvisvar á dag er bara doldið off.
Samt búið að vera voða gott að vera á Íslandi, búin að hafa það voða notalegt í faðmi fjölskyldunar. Dúllast með Sölku systir og svona. Fór í sund og bað eins eins og enginn væri morgundagurinn og er líklega komin með sundfit milli tánna.
Át er líkleg orðið keppnisgrein, allavega miða við fjölskylduboðin þessi jólin. Ég er líka komin með myndarlegt munnangur eftir að hafa þambað jólaöl og étið nóakonfekt nánast nonstop í 4 daga.
Gamanafessu!
Jæja, ætla að fara að taka síðasta baðið áður en ég fer heim.
2 ummæli:
Hæbb, vonandi gekk ferðalagið vel og angrið í munninum fari að fara.
Bið að heilsa ,,veistu hvað,, dúllunni henni Sölku og öllum í dk. Bæbb
Hello darling
Það var gaman að sjá þig aðeins - þó það hefði nú alveg mátt vera meira....
Sjáumst svo bara í Austurríki í byrjun feb :)
Swain
Skrifa ummæli