Jahá, þá er ég búin að afreka það að æla yfir allt og alla hérna á Kollegíinu og gott betur en það! Jebbsí, fékk mér ælupest dauðans og bætti síðan við það hita, hausverk og beinverkjum. Skapi næst að flytja bara heim aftur, það er ömurlegt að vera veikur og hafa ekki mömmslu til að hugsa um sig! Reyndar eru vinir mínir hérna á Kollegíinu alveg að standa sig í mömmuhlutverkinu, allavega Jón Pétur og Hjalli - Búnir að bjarga lífi mínu og geðheilsu :)
Svo liggur Brekamamma í sama ógeðinu og ég þannig að við erum búnar að vera að vorkenna hvor annari á msn og svona. Voða sætt!
Jæja, ætla að fara að sjá hvort ég geti haldið niðrí ísnum og kókinu sem Hjalli var að færa mér.
3 ummæli:
já voða erfitt lífið hjá okkur í dag og ég þurfti meiri segja að fara einu sinni út úr húsi hélt að ég myndi látast á leiðinni :) en ég á nú mann sem vorkenndi mér og var með skriðdrekann að heiman í dag... þannig að ég lifði þetta allt saman af
kv.
Brekamamma
ojj þið eigið mina samúð pjöllur ég veit hvað þið eruð að ganga í gegnum!!!!!!
Skrifa ummæli