27.10.07

Föðursystir

Ég þurfti aðeins að læsa síðunni í gær, því það var ein "dama" með drama, hótanir og leiðindi. Manneskjan virðist vera farin að ná andanum núna, þannig að það hlýtur að vera í lagi að opna þessa búllu aftur.

Aðal fréttirnar eru nú samt þær að Hjalli stóri bróðir minn varð pabbi í nótt! Hann og Inga eignuðust lítinn dreng klukkan 5 í nótt. Veit ekki nákvæmlega hvað hann er stór, en orðin feitur og pattaralegur voru notuð til að lýsa barninu og svona miða við 3-D myndirnar þá erum við að tala um stóran og stæðilegan strák :) Enda Íslenskur.

Til Hamingju elsku Hjalli og Inga!!

2 ummæli:

Ragga Rokkar sagði...

Til hamó með frænda :)

Nafnlaus sagði...

Jæja núðlan mín....þá ertu allavega búin að fatta hver er eða var ólfrísk :-) Múhahahahahahahahahahah..