- Klakamótið búið
- Karlarnir farnir heim til sín
- Hrútalyktin að dofna
- Fannst þetta löng helgi
- Samt skemmtileg
- Uppgötvaði áðan að helgin lengist svo um munar ef maður vakir á daginn og nóttunni
- Svaf í 5 tíma um helgina
- Ég sakna þín síðasta sumar
- Horfði á fótbolta
- Fór á edrú djamm á föstudaginn
- Af djamminu og í næturgæsluna
- Þar uppgötvaði ég Mohjong í tölvunni minni
- Geggjaður leikur
- Einn endajaxlinn minn er kominn upp
- Niðri, hægra meginn
- Hvar er tannféið mitt?
- Það væri búið að dæma okkur báða úr leik
- Fór kappklædd á völlinn á laugardaginn
- Í íslenskum flísfatnaði frá toppi til táar
- Til að tapa ekki kúlinu var ég nú samt með sólgleraugun
- Í rokinu (og sólinni, dahh!)
- Fór í fyndið partý
- Absolute Bjarne aften
- Fór á ekki svo mikið edrú djamm
- Ball með Íslendingunum
- ALLIR spaðölvaðir
- Hef aldrei vitað annað eins
- Ég var hress
- Skömmuð fyrir að hafa verið dónaleg
- Brynja veit að ég var bara hreinskilin :)
- Mamma fór á veiðar á ballinu
- Veiða tengdason
- Fannst ég ekki að standa mig í þeim málum
- Er slyddan kannski tárið í auganu á mér?
- Mamma er ekki góð í að veiða sér tengdasyni
- Flestir trúlofaðir
- Næst fær pabbi að spreyta sig
- Einar sagðist hafa þrifið allt með pompi og prakt
- Okkur Villa fannst það ekkert lítið fyndið og trufluðumst úr hlátri
- En fannst nú gott að Einar greyið hafi fengið hjálp
- Pomp þreif klósettið og Prakt vaskaði upp :)
- Ég gekk líka á eftir Einari og hafði vit fyrir Villa í leiðinni
- Getið ímyndað ykkur hvað það var erfið ganga
- Já, ótrúlegt hvað allt verður fyndið í svefngalsa
- Ég komst líka nokkrum sinnum yfir þreytuna
- Tónlistin var svört
- Klukkan er margt
- Væri skynsamlegt að fara að sofa
- Það var matarboð heima hjá múttu áðan
- Ógeðslega skemmtilegt fólk
- Dýrka þetta pakk mitt - eru dásamleg
- Ég og Breki fórum á trampólín
- Við erum ótrúlega svipuð í þroska stundum
- Fór í geðveikt partý á kollegíinu áðan
- Lufsu partý
- After Eight og Pepsí Max
- Tapaði veðmáli
- Ég er viss um að ef þú værir hér, þá myndi stytta upp
- Þetta blogg er hrottalega leiðinlegt
- Það eru allir hættir að lesa
- Joachim Boldsen er svo ógeðslega drop fucking gordjöss að það hálfa væri fínt
- Ég ætla að horfa á Vild med Dans í allan vetur útaf honum
- Eins gott hann haldist inni
- Hann er lélgur dansari samt
- Svo innskeifur og hjólbeinóttur eitthvað
- Fílaða
- Ég er hætt
- Mamma ætlar í ræktina klukkan 8
- Ég gæti farið með
- Gæti líka kúrt mér áfram bara til svona hálf tíu :)
- Hvort haldiði að ég geri??
- Svartir undir augunum fölir á kinn
Töff samt að blanda svona saman Nylon og Bubba inní færsluna..!
6 ummæli:
Þú ert rugluð
Víst fann ég einn góðann.......þú hafðir bara engan tíma til að sjá hann....varst upptekinn við að selja samlokur eitthvað og passa heimalingana.... :-s
spurning hverjum fannst hann góður?!
Nauðsynlegt að selja samlokurnar annars hefðum við dáið úr hungri sko...
Brekamamma
ef eg þekki þig rétt þá fórstu ekki í ræktina, og móðir þín hefur alveg örugglega fundið myndarpilt fyrir þig en þú ert bara alltof pikkí á svona stráka!
Hehehe....góður Helga og allt hárrétt hjá þér ;-)
Díses.......þetta kemur bara þegar það kemur. Látiði hana í friði.
Skrifa ummæli