Jájá, ég er svo þokkalega að massa þennan dag.
Byrjaði á því að sofa ekki neitt í nótt. Eða kannski dottaði ég í svona einn og hálfan tíma í mesta lagi. En það er mér að kenna. Ákvað nú samt að hendast fótgangandi í skólann. Ógreidd og ómáluð í jogging gallanum og adidas inniskónum. Algjört trash.
Tveir tímar af óskiljanlegri sölusálfræði. Carsten, umsjónarkennarinn minn sagði reyndar að ég hefði þetta í mér og mætti ekki pirrast svona hrottalega mikið ef að ég skildi ekki eitthvað. En núna er ég alveg búin að skilja hvernig á að feika verð og hvað er tilfinnginanæm vara og hvað er ótilfinninganæm vara. Dásemd.
Þriggja tíma eyða og ég fór EKKI heim að sofa.
Núna er svo komið að tvöföldum Private Økonomi. Fengum það skemmtilega verkefni að fara niðrí bæ og tala við einhvern lánagaur í einhverjum banka. Plehh.
Mig langar niðrí bæ og fá mér bjór á útikaffihúsi. Það er klikkað gott veður.
Hmm, ég er orðin geðvond. Var að uppgötva að ég er ekkert búin að éta í dag..
3 ummæli:
ég bíð eftir bloggi dagsins, hehe frekja ég veit en get ekkert að þessu gert, er farin að nærast á skemmtilegum færslum Danans míns :)
-KarenHelga
Ertu byrjuð að mála þig!?? Og drekka bjór!?
Þú óheppin að vera ekki komin til Köben, ég er með VIP miða á Benni Hemm Hemm tónleika í kvöld (with your name on it)..
Ekki seinna vænna að það skyldi vera komið gott veður í Danmörku. Það rigndi nógu assgoti mikið þarna um daginn.
Skrifa ummæli