Ég er að hugsa um að mana mig upp í að fara í klippingu á eftir. Hjá danskri stelpu. Ég er hrædd. Danir eru hræðilega lélegir hárgreiðslumenn. En þegar maður er farin að lenda í sjálfheldu hvað eftir annað vegna lengd hársins þá held ég að maður verði að láta gera eitthvað við þetta.
Ég er orðin eins og Cousin Wig eða hvað hann hét þarna í Addams Family.

Svo er ég að hugsa um að taka til hérna hjá mér. Ég fékk eiginlega nettan viðbjóð eftir að ég skrifaði þessa ógeðis þrifa færslu...
1 ummæli:
Hey, það er "íslensk" hárgreiðslustofa í Århus, Hafdís Ægis fyrrverandi Nesbúi er með hana.
Kv.
Nesbúi
Skrifa ummæli