Í dag 07.05.06, tróðum við okkur öll saman, á sama tíma ofaní Salalaugina í Kópavogi.
Fámennt en góðmennt.
Samt var ekki hægt að skipta um skoðun í pottinum, til dæmis.
Í nótt var hið árlega grillpartý hérna í Salahverfinu.
Afrakstur næturinnar eru 3 skemmdir bílar.
En þess má til gamans geta að á síðasta ári kveiktum við í heilli blokk til þess að smala nú saman nágrönnunum og halda almennilegt partý.
Án gríns þá er einhver brennuvargur hérna í blokkinni fyrir aftan. Alltaf allt í björtu báli þarna.
En stuð var það, hitti Höbbu nágranna minn og svona ýmislegt, allir með öl að horfa á bílana brenna.
Mæli með þessu, fá sér einn brennuvarg í hverfið og þið munið öll sameinast og verða bestu vinir.




5 ummæli:
Hæ frænka litla, tja varst það allaveganna þegar ég sá þig síðast sæta :)
Er nýbyrjuð að fylgjast með blogginu þínu og svei mér þá ef þú sverð þig ekki í ættina varðandi skemmtileg skrif ;)
Bið að heilsa gamla kallinum.
Kveðja Ragga frænka Svenna systir Hafdísardóttir
Jiii minn eini.
Gaman að sjá þig hér :)
Sjáumst nú vonandi í júní
Já þokkalega.
Verður bara gaman að hitta allt fólkið, allt of slappt liðið í þessari fjölskyldu sko ;)
Ragga
Nákvæmlega, hef ekki hitt 3/4 af þessu liði síðan í fermingunni hans Svenna :) híhíhí
Þetta verður æðislegt :)
Já þetta verður bara gaman.
Vá fermingin hans Svenna hún var bíddu við fyrir 10 árum, það er laaaaangur tími hehe :)
Hlakka til að sjá þig skvísa.
Skrifa ummæli