2.9.12

Insta..

Líf mitt er ekki beint spennandi þessa dagana. Ég geri voðalega lítið annað en að læra finnst mér. Endalaus verkefni og nóg að lesa og glósa líka.
Hendi hér inn nokkrum myndum af instagram. Eins og vanalega þá spilar Hrappurinn okkar stóra rullu þar, þarf að fara fá mér pottablóm eða eitthvað annað til að taka myndir af!
Ég heiti því frumlega en mjög svo fallega nafni kristinalma þar inni ef einhver hefur áhuga á að elta mig :)


Keypti styttu sem er eins og Hrappur  

Ný málað í svefnherberginu okkar

Afmæliskaka fyrir einn lítinn Grundfirðing!

Gott að taka bolta með sér í göngutúr :/

Bauð Björgu með í Kringluna :)

Jón Pétur spilaði fótboltaleik

Hrappur hræðist heyrúllur og snjókarla.. 

Salat með quinoa - mjög gott!

Hjálpa mömmu með heimalærdóminn  :)


Ben Stiller

Ben Stiller félagi minn er búinn að vera hér á Hjara veraldar síðustu daga að taka upp atriði fyrir myndina The secret life of Walter Mitty. Skilst að atriðið/in sem hann er búinn að vera að skjóta hérna eigi að gerast á Grænlandi.. Hlakka til að fara í bíó á næsta ári og sjá Hjarann minn sem Grænland..
Þar sem ég hef ekki enn mætt honum úti á götu þá set ég bara inn mynd af þyrlunni hans og þessum ógeðslega báti sem tilheyrir Stillernum, ekki Grundarfjarðarhöfn ;)


28.8.12

Græn bomba!

Þessi drykkur er alltaf jafn góður þó hann sé ekkert voðalega fallegur greyið. Tilvalið að skella í einn svona á morgnana, algjör vítamín sprengja. Ég fékk mér þennan í dag þegar ég vaknaði eftir næturvakt. Dugði ekkert minna til að vekja mig til lífins. 
Ég fer ekki eftir neinni uppskrift, bara slumpa og sirka þetta út. 



Spínat (ég frysti spínat og nota það svo í svona drykki)
Banani
Frosið mangó 
Appelsínusafi
Vatn 
Chia fræ (ég bleyti upp í þeim áður)

Allt sett í blender og blandað vel saman. Ég bæti við vökva eftir þörfum. Ég set ekkert voðalega mikið af vökva því mér finnst þetta best það þykkt að ég geti borðað með skeið. Þá er þetta bara eins og sorbet - spínat sorbet :)

27.8.12

Fallegt fyrir heimilið..

Sjöan eftir Arne Jacobsen er alltaf falleg og klassísk

Þessi lundapúði er æði. Fæst hér


Kartell lampinn í svörtu eða glæru :)

Rúmföt frá By Nord
Bambi fyrir krílin

Smá Iittala líka!

Eames stóllinn er líka alltaf flottur

Ullarpeysu teppið Gibba
Annars eru helstu pælingar innan heimilisins núna nýr sófi og fallegur gólflampi í stofuna. Hvar er best að leita að svoleiðis?

25.8.12

Góð þjónusta!

Ég ELSKA þegar ég fæ góða þjónustu. Talaði um frábæra þjónustu sem ég fékk í Macland hér svo ég ætla að halda áfram að skrifa um svona fína þjónustu sem ég fæ hér og þar.
Um daginn talaði ég um armband sem ég fékk í skírnargjöf og langaði að setja lengri keðju á. Fór með armbandið í ónefnda skartgripaverslun í Kringlunni og fékk ekki góð svör þar svo ég leitaði annað. Fór með armbandið í Hringa á laugarveginum og málinu var reddað á núll einni eða allavega á einum degi. Gat sótt armbandið daginn eftir og þurfti ekki að selja úr mér líffæri til að eiga fyrir þessu.
Mæli með þessari búð. Ótrúlega fallegar vörur þarna og frábær þjónusta!!

Uppáhalds úr og uppáahlds armband



22.8.12

Fyrir Rut..

Ég ætlaði að reyna fyrir mér sem matarbloggari. Taka fínar myndir af hráefninu og öllu ferlinu. Er bara með svo hræðilegan athyglisbrest að það gekk bara í svona 10 mínútur, svo var ég bara farin að gera eitthvað annað meðan súpan mallaði í pottinum og mundi svo eftir að ég ætlaði að taka myndir af öllu ferlinu þegar ég settist niður til að éta loka afurðina :)



Mexíkósk kjúklingasúpa

Kjúklingur (eftir smekk - oft gott að nota afganga)
Olía 1msk
Plómutómatar  6stk
Blaðlaukur 100gr
Rauð paprika 1stk
Grænt chili 1stk
Parikuduft 2.tsk
Tómatpúrra 3msk
Kjúklingasoð 1,5l 
Sweet chili sósa 2dl
Rjómaostur 100gr

Aðferð: 

Kjúklingur, blaðlaukur, paprika, grænt chili og plómutómatar skorið í litla bita og steikt á pönnu uppúr olíunni.

Bætið svo við tómatpúrrunni og paprikuduftinu. 

1,5 líter af vatni soðið með kjúklingateningum.

Innihaldinu á pönnunni bætt útí pottinn með soðinu og látið sjóða í 15 mínútur.

Sweet chilisósunni og rjómaostinum hrært útí súpuna.

Gott að bera fram með góðu brauði og sýrðum rjóma.


Allt hráefnið, nema blaðlaukur - átti hann ekki til

Kjúklingur, notaði 3 bringur í þetta skipti.

Chili, tómatar og paprika skorið í litla bita
Svo fyllist eldhúsið mitt af íkornum...

Voða góð súpa og pönnubrauð

Njótið vel..!

Vanillukaffi

Sá svo sniðugt á Pinterest um daginn. Vanillusprittkerti í stjaka/skál sem var fullur af kaffibaunum. Þar sem ég er kaffi, vanillu og kertasjúk mátti ég til með að prufa. Og nú þegar kertatímabilið er að skella á þá var tilvalið að græja þetta núna. Ég á lítil sprittkertaglös úr Ikea sem ég fyllti af kaffibaunum og skellti svo einu vanilluprittkerti (líka úr Ikea) ofaní. Stillti þessu svo upp í gluggakistunni og kveikti á kertunum. Mjög góð vanillukaffilykt sem kemur af þessu og mér fannst eiginlega of mikið að vera með kveikt á fjórum í einu í stofunni. Myndi hafa kannski svona tvö næst.
Mæli með að þið prufið..


Kósý í gluggakistunni minni :)

20.8.12

Insta..

Nokkrar af Instagram...
Eitt af eldri verkum pabba..
Hrappur fékk sér rúnt
Svunta með nafninu mínu. 
Eldhúsborðið fékk makeover
Mánudagsmatarboð
Bestu skórnir
Fínar bollakökur sem Auður skreytti
Kjúklingasúpa með sweet chilli sósu


Bömmer

Ohh, fórum með þvottavélina okkar í viðerð fyrir helgi. Nú var viðgerðarkarlinn að hringja og segja að það kosti 50.000 krónur að gera við hana. Þar fór flugmiðinn minn..



Flug

Af hverju þarf þetta alltaf að koma eftir á? Var svo kát með að finna flug á rúmlega 30.000 krónur báðar leiðir en svo bættist bara milljón ofaná!
Fann líka fínt flug á Wowair en þar þurfti ég svo að borga 6.000 krónur fyrir að taka með mér ferðatösku. Segir sig sjálft að ég fer ekki ferðatöskulaus til útlanda þar sem ég gæti fundið H&M með fínum fötum sem kosta ekki augun úr..

16.8.12

Heimsókn

Amma Ragga, amma Alma og Hafdís frænka kíktu í heimsókn í dag. Amma Ragga 96 ára þaut upp stigann hjá mér eins og ekkert væri og fannst ekkert mál að skella sér í dagsferð til Grundarfjarðar. Hafði reyndar á orði að hún hefði aldrei komið hingað áður svo það væri ekki seinna vænna. Hjördís tengdamamma mín kom líka við í smá stund og hafði þá á orði við ömmu Röggu hvað ég og pabbi værum lík henni. Þá svaraði sú gamla "Æj, æj, aumingja þau". Hún drepur mig. Vona að ég verði svona mikill húmoristi þegar ég verð 96 ára.
Hún bað um að það yrði komið handrið við stigann hjá okkur næst þegar hún kæmi. Það væri líklegt að hún þyrfti að styðja sig við eitthvað næst þegar hún kæmi upp. Yndisleg.



14.8.12

Systur í heimsókn

Litlurnar mínar eru í heimsókn og fengu L200 lánaðan hjá Byggingarfræðingnum..



Síðan er von á góðum gestum á morgun. Amma Alma (eða Alma Alma eins og við barnabörnin höfum flest kosið að kalla hana á fyrstu æviárum okkar), Hafdís systir hennar og síðast en alls ekki síst, aldursforsetinn, sjónvarpsstjarnan og mesti töffarinn.. langamma Ragga. Mikið hlakka ég til að fá mér kaffi og kökusneið með þessum fínu og flottu konum.

13.8.12

Helgin..

Helgin var góð. Við fengum litlar dömur í næturpössun til okkar og foreldrarnir þeirra fengu að sofa í gestaherberginu þegar þau komu heim úr brúðkaupi. Ótrúlega gaman að fá að dúllast með þessum litlu skottum. Og í góðu lagi að vakna kl 6:40 við hjalandi ungbarn. Ég, freka guðmóðirin er svo búin að panta annað næturpass í september.
Ég stóð mig líka á myndavélinni í þetta skiptið og tók nokkrar myndir. Enda ekki annað hægt þegar maður er með svona fallegt myndefni. Hægt er að smella á myndirnar til að fá þær stærri. Njótið..

Ég og Björg að gera krem á muffins
Auður á kantinum
"Kristín Alma, við erum nú meiri kökukonurnar" 

Auður á framtíðina fyrir sér í kökuskreytingum



Kökubros



Vinka mömmu

Svefngalsi


Morgunleikfimin





Kíkt á barnaefnið

Rigning!


12.8.12

Gleðilega hátíð..

Fyrir ári síðan kom Vilborg litla systir mín (aðeins 18 ára) út úr skápnum. Ég er óendanlega stolt af henni og er svo ánægð með hvað hún er ótrúlega hamingjusöm og lífsglöð í dag með henni Jessicu sinni.

Ég komst ekki í gleðigönguna í ár, en mæti hress að ári..!



9.8.12

Þessi tími árs..

Hér er allt á hvolfi. En við Byggingarfræðingurinn erum búin að vera á fullu að græja ýmislegt sem hefur setið á hakanum hér heima. Allt frá því að setja upp parketlistana (bara 3 ár síðan við keyptum íbúðina og parketlögðum..) niður í að spreyja bleikan myndaramma hvítan.
Verst er bara að við erum bæði með ADHD á háu stigi svo það gengur frekar hægt að strika yfir verkefnin á listanum, ég er með svona þrjú verkefni í gangi akkúrat núna til dæmis og er samt í tölvunni að blogga. Alveg normal. Markmiðið er að klára þessa litlu hluti sem fyrst því það stefnir allt í stórframkvæmdir hér á næstu mánuðum.

Við fáum annars góða gesti um helgina. Get ekki beðið. Vona bara að hér verði ekki allt eins og í bragga þegar þau koma greyin..





Flott!!

Ég væri alveg til í að eignast svona úr. Þetta er úr rósagulli (rose gold) og er frá Michael Kors. Mér finnst rósagull alveg einstaklega fallegt en finnst eins og búðir hér á Íslandi séu ekki sammála mér. Hef allavega lítið séð af svona skarti hérna á klakanum.