Jee.
Nú getur mamma komið í heimsókn. Búin að eyða heilum degi í að taka til hjá mér og þrífa. Á bara eftir að fara í gegnum fataskápinn, kommóðuna og svo eldhússkápana. Þá er ég bara búin að taka allt í gegn. Ekki slæmt það. Mamma verður að koma í heimsókn á morgun, því hún droppar alltaf við óboðin þegar að það er allt í drasli. (Nei, það er ekki alltaf drasl hérna)
Svo reyndar þegar tiltektinni lauk þá var orðið svo hreint og fínt að ég tímdi ekki að vera hérna. Þá lét ég bara bjóða mér í heimsókn. Ekki flókið það. Ég ætla bara að vera einhversstaðar í heimsókn þangað til alltaf. Svo það draslist ekki út. Vill mig einhver?
Ég er svo orðin afrekskona í íþróttum. Jájá, fór í gær og keypti mér kort í ræktina. Sem ég er búin að ætla gera í 2 mánuði (Þjáist sko af framkvæmdarkvíða). Mér finnst þetta með að ég hafi keypt helvítis kortið nógu mikið afrek útaf fyrir sig, en það að ég hafi mætt Í ræktina eldsnemma í morgun, tólf tímum eftir að ég var búin að fjárfesta í kortinu er náttúrulega eitthvað sem má alveg skrifa á spjöld sögunar bara. Já og ég mætti ekki bara, heldur tók ég líka svona helvíti fínt á því líka. Allavega er ég komin með nettar "hassberrur" í efri hluta líkamans. Kvíði fyrir því að þurfa að þvo á mér hárið þegar ég fer í sturtu í fyrramálið. Ég labba líka eins og Arnar Grant. Með hendurnar svona tvo metra frá líkamanum. Ég er náttúrulega orðin svo helmössuð eftir þessar lyftingar.
Mömmu og Gúmmípabba fannst greinilega ekkert varið í Björn Borg nærbuxurnar sem við systkinin gáfum þeim í brúðkaupsafmælisgjöf og ákváðu að kaupa sér eitthvað smotterí í viðbót. Þau fóru í bæinn og komu heim nokkrum milljónum fátækari og einu húsi ríkari. Ég bjóst við svona einhverju smá húsi en sú var nú ekki aldeilis raunin. Þetta er heill helvítis herragarður. Sérherbergi fyrir alla krakkana og samt gestaherbergi. Svo er líka
gestahús, sem er þrisvar sinnum stærra en "slotið" sem ég bý í. Lóðin er svo stór að við systkinin (sem erum 5 talsins) getum öll byggt okkur 500 fermetra hús þar og samt þurft að taka strætó á milli húsa.
Svo er þetta víst með frönsku gluggunum, stóra eldhúsinu og rúmgóða þvottahúsinu sem mömmu hefur alltaf dreymt um þannig að við kvörtum ekki mikið undan þessu. Frábært bara. Reyndar er ég ekki sátt við þetta því að núna verður ekkert skroppið í mat til mömmu bara þegar að manni dettur í hug. Þetta hús er nefninlega ekki í göngufæri :( En miða við lýsingarnar hennar mömmu á hversu frábært þvottahúsið þarna er, þá sé ég fram á að þurfa ekki að þvo fötin mín sjálf frá og með 1. desember, því hún talaði um það áðan að þvottahúsið væri svo frábært að hún ætlaði alltaf að vera þar...
Herragarðurinn
Enn af húsakaupum, því amma og afi keyptu sér líka hús um daginn. Á Selfossi. Nauðsynlegt að eiga tvö hús. Það hef ég alltaf sagt. Reyndar er víst stefnan hjá þeim að flytja á Selfoss þegar afi verður elliær og hættir að vinna. Þá ætlar gamli bara að skella sér í strípur og fá sér spoiler með hnökkunum. Geggjað töff.