8.2.06

Í morgun fór ég í sturtu.
Eftir vinnu fór ég í bað.
Núna þarf ég að fara aftur í sturtu eða bað því að ég anga eins og öskubakki. Sem er ekki töff.
Ég sem sagt skrapp á kaffihús núna í kvöld með elskulegum vinkonum mínum og núna er ég með klemmu á nefinu því að það er svo vond lykt af mér, samt er ég ekki í fötunum sem að ég var í á kaffihúsinu.
En mikið ofboðslega var gaman. Það vantar ekki.
Næst ætla ég á reyklaust kaffihús. Og kaffihús sem að selur ekki áfengi. Þá held ég að það sé ekki mikið annað í boði en lífrænt ræktaða kaffihúsið, en það er (er mér sagt) staður þar sem að Rauðhærðar, vinstrisinnaðar grænmetisætur hanga saman og mótmæla virkjunum og álverum.
Ekki mitt "thing"
Allavega, ég er að vinna á "Karlavinnustað" eða ég er allavega eina stelpan í augnablikinu. Ég pældi mikið í þessu áður en að ég byrjaði, bjóst við svona karlrembubröndurum og eitthvað. En fyrsta daginn átti ég nokkur svona samtöl...
StrákurA: Í hvaða stjörnumerki ertu?
Ég: Fiskur
StrákurA: Jááá, er það?
Ég: Já
StrákurA: Ég er meyja
Ég: Jájá
StrákurA: Já, meyjan og fiskurinn eru mjög ólík, Meyjan er meira svona skipulögð og allt verður að vera fullkomið, en Fiskurinn er meira svona ímyndunarveikur og ævintýragjarn, en OKKAR merki passa samt sem áður mjög vel saman, þrátt fyrir að vera ólík, kærustupar í þessum merkjum eiga svona ástríðufullt samband og þannig.
Ég: Jáhá, það er bara svona, verst að ég trúi ekki á þetta stjörnumerkjabull. (Varð að ljúga einhverju)
StrákurA: Horfði á mig eins og ég væri hálfviti og tölti burt

Áhugavert finnst ykkur ekki?

Svo var annar tappi sem að spurði mig hvort að ég notaði MASKARA, halló, hvað varðar þig um það vinurinn? Ég sagðist nú gera það oftast, allavega þegar að ég færi útúr húsi og svona.
Þá spurði hann: "En þú ert ekki mikið fyrir varaliti?"
Greinilega einhver skápahommi þarna á ferð, því að hann var ekki að grínast og svo fór hann og lamdi í vegginn og öskraði svoldið.. "Já, vinur, þú ert ótrúlega mikið karlmenni núna.." (hugsaði ég sko)

En já, núna eru þessir drengir/kallar farnir aðeins að láta eins og þetta á að vera, eins og í dag þegar að ég var í mat og sat auðvitað með 10 köllum/strákum á borði þegar að einn kemur og segir: "Verði ykkur að góðu drengir, og verði ÞÉR að góðu ungfrú"
Skondið.

Svo ætlum við Salka að skella okkur í leikhús um helgina, ég fékk auðvitað 3 leikhúsmiða gefins í dag. Þeir sem að hafa áhuga á að koma með okkur Sölku á Ronju um helgina, látið mig vita, það verður magnað stuð :)

4.2.06

Í gærkvöldi var ég sjoppuleg.
Í dag er ég annað hvort mygluð eða lumma, ég veit ekki alveg hvort, en ég held að ég endi með að vera bara bæði.
Útgangurinn á mér er alveg hræðilegur. Ég er með blautt hárið(var að koma úr sturtu..), sem þýðir að það er nánast krullað og þegar að maður horfir framan á mig þá er eins og ég sé með sítt að aftan. Svo er ég í ljótum, víðum joggingbuxum, hvítum hlírabol og svörtum brjóstahaldara - Mér finnst þetta ekki smart, en whatever, vona bara að það komi enginn í heimsókn.
Ég hitti Linduna í gær, við fórum á Hressó og fengum okkur Lunch. Mjög gaman hjá okkur eins og vanalega. Við erum svo góðar saman við Linda. Fundum ekki Bankastræti, þannig að við enduðum á Tryggvagötu. Komumst svo að því að Tryggvagata og Bankastræti er örugglega ekki einu sinni í sama póstnúmeri. Svona erum við klárar, við Linda.

Það er komin kossageit á heimilið, minnstan okkar er komin með þetta. Gasalega ógeðslegt, vellandi sár og svona, en þetta er allt í meðhöndlun. Vorkenni bara grey barninu, man þegar að ég fékk þetta, ekki gaman.
En hún er nú spræk og segir bara "Sérru, saddna er kossageitin" svo segir hún "Ég er rugluð" bara krútt þetta barn!
En jæja, ég ætla að hætta að vera lumma, klæða mig, laga hárið og skella mér út.

Já og Karen Helga mín, Til Hammara með Ammaran stelpa - Þú verður jafngömul mér alveg í einn mánuð...vúhú!! ;)

31.1.06

Það er svo gaman að fara í heimsókn til ömmu.
Hún segir alltaf "Ertu að hverfa barn?" og svo gefur hún manni pönnsur með rjóma og kók.
Annars þá er það orðið opinbert að ég er komin til íslands, ég lét voða fáa vita hvenær ég kæmi og sé ekki eftir því, enda vildi ég bara vera heima hjá famelíunni og venjast nýju fólki og eyða tíma með því gamla.
Það er ekki mikið hægt að tuða yfir nýja fólkinu, voða almennilegt, nokkuð geðgott og skemmtilegt. Ekki eins hræðilegt og ég hélt það yrði. ;-)
Ég er líka búin að komast að því að það ER hægt að lifa á skyri og vatni. Allavega getur það verið uppistaðan í fæðunni hjá manni, bara svo lengi sem að maður étur kúskús og nings af og til.

Langaði bara að segja ykkur að ég væri á lífi.

Lifið heil

28.1.06

Merkilegt hvað allt er fljótt að fréttast.
Ég skrifaði hérna á fimmtudagsmorgun að ég væri "godt i gang" með að reyna við póstdrenginn, (sem er að vinna hjá póstinum í afleysingum, komst að því ;)) þá um kvöldið hringdi pabbi í mig og spurði hvort að ég ætlaði að taka hann með til íslands. Í dag var ég svo spurð svona milljón sinnum um þennan blessaða póstdreng, m.a. af fólki sem að ég vissi ekki einu sinni að læsi þetta bloggdót mitt.
Mér finnst þetta mjög áhugavert, því að það þykir greinilega saga til næsta bæjar að ég skuli hafa svo mikið sem horft í áttina að karlmanni/strák, eða hvað þið viljið kalla þetta.
Ég hef greinilega ekki verið nógu dugleg við að update-a "datemál" mín fyrir fólki og ég ætti kannski að vera duglegri við það.
Held að það væri best fyrir mig að finna mér einhvern "heitan svein" sem væri þekkt andlit, svo að maður geti bara hringt eitt símtal og búmm, komið í séð og heyrt, það væri alls ekki galið held ég. Praktískt fyrir mig og ykkur.
En ég er nú bara að spauga, ótrúlegt en satt.
Ég er að hugsa um að salta póstmanninn aðeins. Fara til íslands og einbeita mér að vinnu, fjölskyldu og vinum og leyfa honum aðeins að sakna mín. Og muna bara að næst þegar að ég hitti hann þá verð ég að vera í fötum en ekki handklæði.

Heyriði mig nú, haldið þið að ég hafi ekki fjárfest í nýjum geisladiskum í dag. Sem er svosem ekki frásögur færandi nema hvað, að þetta eru svona líka tussugóðir diskar.
Arctic Monkeys - Whatever People Say I Am, That's What I'm Not
Mjög góður diskur, hafði reyndar bara heyrt tvö lög af honum, sem eru búin að vera í spilun hérna úti og ég varð ekki fyrir vonbrigðum með þennan disk.
Mew... and the Glass Handed Kites
Veit ekki hvort að þið hafið heyrt eitthvað mikið af þessu bandi, en minnir þeir hafi verið á Roskilde festival núna síðast. Danskir, og ég elska þá, þá sérstaklega röddina í gaurnum, ótrúlega Júník og töff eitthvað. En já reyndar er músíkin líka mjög góð.

Læt fylgja með Myspace síðurnar hjá þessum guttum :)


http://www.myspace.com/arcticmonkeys
http://www.myspace.com/mewsite

Jæja, þetta blogg er orðið eintóm þvæla hérna, svo ég er farin að sofa.

26.1.06

Ómægad.
Framtíðar tengdasonur foreldra minna er fundinn.
Hann bankaði hérna uppá áðan og heimtaði undirskrift og pening fyrir einhverjum pakka.
Ég opnaði, sá hann og gleymdi alveg að ég var nýstigin útúr sturtunni.
Kiknaði í hnjánum og allt.
Djöö, er týpískt að maður finni loksins fallegan karlmann í Danmörku (Sem er ekki hnakki) þegar að það eru "nokkrar" klst í brottför til landsins sem kennt er við ís og snjó - I'm telling you, this is my luck!
Nú langar mig ekki til Íslands.

Eníveis, ég er á leið í klippingu - Guuuð má vita hvað ég finn uppá að gera við hárið á mér, en það verður mikið klippt af því, ég er komin með alltof sítt hár.


23.1.06

Jájá, nýr dagur, ný markmið.
Í dag ætla ég að taka til í sokkaskúffunni minni eða jafnvel ef að ég verð í stuði að endurraða geisladiskunum mínum.
Ég er með alveg snargallaða tárakirtla, búin að tárast í allan dag, skil þetta ekki. Ég er ekki að grenja yfir neinu, bara tárast, ekki sniðugt. Var líka svona í gær, fór í bíó og var byrjuð að grenja áður en að myndin byrjaði, það var reyndar útaf því að ég hló svo mikið, ég er víst ljóska, en ég átti allavega fyndið ljóskumóment, samt kemst ég ekki nálægt því að vera eins og Lára :þ
Eníveis ég var að komast að því að ég er ömurleg í að taka sjálfsmyndir.
Hvaðan skyldi ég hafa það?

Ég tók af mér mynd um daginn, eða það er svoldið langt síðan, og ég er búin að taka fleiri, en þessi bara stóð uppúr.

a) Hún er ekki nálægt því að vera í fókus
b) Hvað er málið með bakgruninn?
c) Ég ætla ekki einu sinni að fara útí þennan ógeðslega
svip sem að ég er með, lít út eins og Þorskur á
þurru landi sem er verið að reyna að kreysta augun úr!
d) það er nokkuð ljóst að fegurð mína er ómögulegt að festa á filmu.

Vona að þið viljið enn tala við mig þó ég hafi sýnt ykkur hæfni mína sem sjálfsljósmyndara.

20.1.06

Ingibjörg Elín er 9 ára í dag, litla skottið mitt!
Merkilegt, alltaf þegar að systkini mín eiga afmæli þá líður mér eins og ég sé gömul. Samt er ég ekki orðin átján ára - skondið.
Helga sætasta (Litli unginn okkar Lindu) er líka 17 ára í dag, úff, nú kikkar móðureðlið inn sko, Helga er litla barnið mitt, þó að hún sé ein af mínum bestustu vinkonum í heiminum, þá er hún samt beibí-ið í hópnum :) (Sorry Helga mín, en svona verður þetta alltaf!)
Til hamingju með afmælið stelpur mínar ! ( svosem ekki miklar líkur á að Ingibjörg lesi þetta, en samt. )

15.1.06

Smæl, smæl, smæl.

"Nei sko, það væri hægt að strauja skyrtu á þessum tönnum" er án efa besta komment sem að ég hef heyrt lengi.
Þetta var svolítið fyndið skal ég segja ykkur.
Ég er búin að brosa mjög mikið síðustu daga og er sko ekki alvarlega týpan eins og vanalega. En engar áhyggjur þetta líður hjá.

Hmm, ég sofnaði í sófanum í nótt, milli 01.00 og 04.30 var afvelta af nammiáti og gosdrykkju, en ég vaknaði með harðsperrur dauðans í maganum.
Ég hef sko ekki verið að gera neinar fjandans magaæfingar, þannig að mér finnst þetta mjög skrýtið, greinilegt að maður verður að borða bara meira nammi, þá verður maður kannski komin með sixpakk eftir viku.
Gummi "Þvaghænsni" Frændi minn er búinn að vera hérna um helgina, það er búið að vera mjög ljúft, þrátt fyrir það að ég hef liðið miklar pyntingar. Í morgun vaknaði ég við það að hann sat ofaná mér, (þar sem að ég svaf í SÓFANUM því að sumir sofnuðu í mínu rúmi) og kleip mig!
Haldið þið að það sé nú meðferð á prinsessunni.
En það er búið að vera gott að hafa Gumma hérna, var ekki búin að sjá smettið á honum í 7 mánuði þakka ykkur fyrir.
Annars langaði mig að sýna ykkur að ég á vin sem að lítur út eins og Jake G..eitthvað í myndinni þarna Jarhead - Sem ég sá fyrir svona 3 mánuðum.

Þetta er hann Balvin Theyr. Jake Gyllenhaal


12.1.06

Ætli maður verði ekki að vera inn og blogga um DV?
Nei, ég tek ekki sénsinn á því - Held að þið vitið öll hvað mér finnst um þennan sorasnepil og ég ætla ekki að gera þeim það til geðs að fjalla eitthvað frekar um það hérna.
Nema þá að láta eina manneskju sem að vinnur þarna vita að ég er tilbúin að gefa henni 250 krónur, fyrir strætófarinu á klepp. (ONE WAY)

Well, ekki mikið skeð hjá mér síðan síðast. Ég hugsa að ég sé hætt að lesa blöðin á netinu, eða bara lesa þau yfir höfuð. Ekkert nema fólk að sprengja sig í loft upp, stríð og græn, sjálflýsandi svín. Er ekki hægt að segja frá því góða sem er að ske í heiminum? Eða er það ekki nógu fréttnæmt? Ég las nokkra miðla í dag, Íslenska og Danska það var voðalega lítið sem að ég gat glaðst yfir, ekki einu sinni Bobby Fisher að endurnýja strætókortið sitt.
Fréttir sem ég las í gær held ég var þó eitthvað sem að ég varð alveg fjúríus yfir, var ónýt allan daginn með virkilegan sting í hjartanu.
Fertugur Karlmaður nauðgaði 12 vikna barni!
Hvað í andskotanum vakir fyrir svona drullusokkum? Á að stilla svona fólki upp á fjölmennum stað og grýta þá til dauða, en fyrst verður þó að skera undan þeim. - eða eitthvað verra. Ef að það er eitthvað sem að ég verð virkilega reið yfir og brjáluð í skapinu útaf þá er það ef að ég frétti af einhverju svona, barnamisnotkun.
Og svo er náttúrulega frábært hvað réttarkerfið á íslandi er frábært, svona menn fá alveg 2 ár í fangelsi, tops. Klöppum fyrir því. (þetta var samt ekki Á íslandi.)
Svo finnst fólki virkilega skrýtið að mig langi miklu frekar að ættleiða barn, þó að ég komi til með að geta eignast þau á eðlilegan hátt. Af hverju að fæða barn inní þennan brenglaða heim þegar að það eru milljónir barna þarna úti sem að eiga ekkert, fá ekki mat, ekki ást og umhyggju. Er ekki nær að ættleiða barn sem að virkilega þarf á manni að halda heldur en að búa eitt til?
Verst að það tekur þvílíkan tíma, verð eiginlega að byrja að plana það eftir 2 ár svo ég verði komin með barn þegar að það verður á dagskrá.
En sko, það verður samt að vera eitt svona heimagert, hver á annars að koma þessum góðu genum og fegurðinni áfram, gengur ekki annað.

Heyrðu já, lestarframkvæmdir klárast á morgun - Held að ég ætli í bæinn og drekka Cult til að fagna þessu. Með tannburstan með mér að sjálfsögðu :)

10.1.06

Stoltið mitt er ársgamalt í dag!

Já, þið lásuð rétt, Afkvæmið mitt er ársgamalt í dag.
Nei, ég á ekki barn og ég er ekki að tala um Fróða.
Heldur er ég að tala um Ingu Rós og Binna!
Ef að það hefði ekki verið fyrir mig þá væri ekkert Inga Rós og Binni til.
Ég ætla nú ekkert að fara útí það hvernig það allt æxlaðist en ég vakti með Ingu Rós heila nótt að tala um KALL/geimveru sem að vissi ekki hvað Ipod var og var með linsur. (uppúr þeirri umræðu fæddist svo Binni&Inga Rós)
Það er miklu meira vit í Binna. Hann er friendsalki og veit hvað Ipod er, sem er eitt það mikilvægasta í fari karlmanns að mati okkar Ingu Rósar.
Til hamingju með árs afmælið og gangi ykkur bara sem best í framtíðinni dúllurnar mínar!!!

Svo megið þið bara óska mér til hamingju, þetta er fyrsta parið sem að ég hef búið til og þau eru búin að vera saman svona lengi.

Logi og Svanhildur hvað?!

9.1.06

Barbie is a slut!

Já, það er satt.

Sko, áðan þá fór ég til tannlæknis. Í þetta skiptið er ég komin með eitthvaðshit-bit, síðast var það sko kross-bit og þar áður eitthvað annað bit. Mér er drullusama, djö hvað ég er orðin ógeðslega pirruð á að vera með allskonar bit, sem eru öll eitthvað skökk. Ég held að þetta sé ekki skakt bit, ég er bara skökk - meikar svo miklu meira sens.
Talandi um skekkju. Þá var ég hjá tannsa babe og það var að byrja að koma einhver hola, svo að hann sagðist skyldi nú bara laga þetta sem snöggvast (Aldrei fengið holu áður) og ég heimtaði einhverja deyfingu. Fékk hláturgas og ég var skökk í 3 tíma á eftir, as in stoned. Tannlæknirinn hafði einhverjar áhyggjur af því hvernig ég kæmist heim, ég man ekki hverju ég svaraði, en ég labbaði bara út og niðrí bæ. Ég man voða lítið eftir þessari bæjarferð, nema ég sá föt, fullt af fötum.
Ég fór með tvíburunum og Balla í bíó í gær. Á mynd sem heitir The Fog - Ekki fara á þessa mynd, þvílíka steypan. Fyrstu 30 mín voru reyndar góðar og þetta var ógeðslega spúkí. Ég öskaraði ekki nema 3 á þessum hálftíma og fólkið fyrir aftan mig var farið að sparka í sætið mitt í verstu atriðunum í von um að ég myndi hoppa uppúr sætinu eða eitthvað. En eftir fyrsta hálftíman vildi ég bara fara út, fyrir utan að Smallville gaurinn fór úr að ofan...tvisvar.
Nei, ég er ekki kettlingur, það er örugglega ógeðslega gaman að horfa með mér á svona hreyllingsmyndir, ég er alveg skíthrædd.
Svo, hver ætlar að koma með mér í bíó þegar að ég kem heim? (Á hryllingsmynd að sjálfsögðu, ég er með svo mikla sjálfspyntingarhvöt.)

6.1.06

Já gott fólk, það er að koma helgi og ég hef góða tilfinningu fyrir þessari helgi, sem og þessu ári, þar sem að ég fann Pacman á netinu í morgun, var búin að gleyma hvað ég var góð í þeim leik hérna 1998.
Ég er svo búin að lofa Guðjóni bíóferð, ætli við reynum ekki að draga Balla og fleiri góða með.
Annars er ekki mikið að frétta fyrir utan það að ég hlakka ótrúlega mikið til að fara til Íslands og gera góða hluti þar. Þið getið líklega fundið mig í miðbæ Reykjavíkur að tala dönsku og ensku við túrista með skyr í annari og VIP passa á Gettu Betur um hálsinn, jú og í "Lost in Iceland" bolnum mínum að sjálfsögðu. Verður áhugavert fyrir ykkur að sjá það.
Besta frænka var svo líka búin að lofa VIP passa á öll Skítamóralsgiggin næstu 7 mánuðina eða svo, þannig að það er eins gott að fara að reima á sig Buffalo skóna og rifja upp textan af "farin" og fleiru góðum.
Æji, nú er kominn púki í mig, svo ég ætla bara að fara í H&M og nauðga vísanu.

Má til með að láta þennan link fylgja með. Tarentino hjá Conan. Sannleikurinn um Íslendinga/Íslenskar konur - samt ekki mig :)

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1907

Ef þetta er ekki Hillaríus þá heiti ég Súla sól

LEITER DUUUUUDES!

2.1.06

Annar dagur ársins var sko tekin með trompi!

Það sem að ég gerði í dag var

  • Hékk með hausinn ofaní klósettinu og ældi
  • Svaf
  • Kúgaðist af eigin ilmvatnslykt (hefur aldrei gerst áður)
  • Horfði á Two guys and a girl
  • Svaf
  • Pirraðist óendanlega mikið yfir MSN

Geri aðrir betur.

Get þó huggað mig við það að allt sem að ég át yfir jól og áramót er ekki lengur neitt til að hafa áhyggjur af og svo þarf ég heldur ekki að fara í ræktina á þessu ári því að ég er komin með heavy magavöðva eftir gubberíið. I wish

Eníveis, þá var ég að velta fyrir mér einu og það er hvort að áramótaskaupið hafi einhverntíman verið fyndið? Ég er allavega búin að horfa á þau nokkur í gegnum tíðina og mér hefur bara aldrei fundist það skemmtilegt, en samt verð ég alltaf að horfa á það. En í ár þá var það reyndar hann Björgvin Franz sem að reddaði þessu og í fyrsta skipti í mörg ár, ef ekki bara fyrsta skipti þá hefur maður allavega smælað útí annað yfir þessari vitleysu. Björgvin Franz var einmitt í Kastljósinu í kvöld, kíkið á það á www.ruv.is/kastljos (Sorry, ég varð)

Hvað er svo málið með mig og tölvur? Núna til dæmis þá er MSN í þvílíku fokki, síðustu daga hef ég bara getað talað við suma, einhverja útvalda greinilega (yfirleitt ekki fólkið sem að ég vil tala við ;)). Ég ætla að skrifa bréf til forsetans og biðja hann um að leggja niður MSN og bara hafa bréfdúfur í staðinn, það er allavega hægt að siða þessar dúfur til. Svo er blogspot komið í ruglið núna líka, hvert er þessi (net)heimur að fara?

Well, nóg af þessu fýlubloggi, ef að einhver nennti að lesa þetta þá er sá hinn sami líklega dáinn úr leiðindum núna svo að ég er hætt, kann ekki við að bera ábyrgð á dauða fólks ;)

Lofa að vera í betra skapi næst :)

30.12.05

Hvað gerðist á árinu?

Jæja, ótrúlegt en satt þá er árið næstum á enda og kannski tími til kominn að fara yfir það sem að skeði á árinu, þó svo að það hafi ekki verið mjög merkilegt.
Allavega hafði ég hugsað mér að afreka mikið meira en ég gerði, en ég bæti þetta bara upp á nýja árinu, enda veit ég það fyrir víst að allavega fyrstu 6 mánuðirnir á nýja árinu verða góðir og viðburðamiklir.

Janúar - Kom heim frá íslandi eftir vægast sagt spes dvöl þar, þegar að ég kom heim til DK þá beið mín þessi líka flotti áramótapakki, eða hann Fróði minn, pínulítill Beagle hvolpur.
Febrúar - Tók ákvörðun um að fara til Bandaríkjana sem au-pair
Mars - Varð 17 ára, Fór til þýskalands að hitta Gumma Linda kom til DK og ég skil ekki ennþá hvernig við höfðum úthald í allt þetta djammerí og allar verslunarferðirnar, samt gaman
Apríl - Fór með pabba til London að versla og hitta föðurbróðir minn og fjölskyldu
Maí - OPEN AIR, þetta var magnað, engin Roskilde en magnað samt, Sjá "ædolin mín", Nik og Jay Live í sólskini í góðra vina hópi, gerist ekki betra
Júní - Prófin voru, ég að sjálfsögðu dúxaði þar, Fór til Íslands, gerði góða hluti þar, sem og skandala, fór til Ameríku
Júlí - Var að deyja úr hita í ameríku að passa börn - Lennti í lífsháska í skógi í Virgina þegar að það kom íkorni inní kofan sem að ég var í.
Ágúst - Kynntist Karen Helgu strumpunni minni :)
September - Hitinn skánaði og ekkert merkilegt gerðist...Held ég
Oktober - Var í Ameríku - Gerðist örugglega fullt spennandi
Nóvember - Florida- mikki mús og allt það :)
Desember - ferðaðist ein frá BNA til DK með klst millilendingu á íslandi - tók ekki nema 22 tíma, Amma og afi komu í heimsókn, Linda kom og Miiiiikið brallað ;)

Ég er nú bara að stikkla á mjöög stóru, nenni ekki að telja upp alveg allt sem að gerðist.
En allavega, þá var þetta ár bara nokkuð gott, kynntist fullt af frábæru fólki og upplifði mikið.
Fór til 5 landa og kom til aðeins fleirri fylkja næsta ári verður reynt að ferðast áfram eitthvað þó svo að það verði ekki alveg jafn mikið og ég geri á þessu ári.

En ég er með smá lista sem að ég ætla að biðja alla um að fara eftir á morgun

  1. Farið varlega í búsið
  2. Áfengi og akstur eiga ekki saman, ALDREI
  3. Klæða sig vel
  4. Reykingar og flugeldar eiga ekki saman
  5. Notið hlífðargleraugu
  6. GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA
(kommon, maður verður að vera með smá forvarnarstarf hérna)

26.12.05

Hvar er jólaskapið?

Kannski á Íslandi, hver veit?
Ég er búin að tilkynna pabba það að ég ætla að vera á íslandi næstu jól og öll jólin sem að ég á eftir ólifað. Veit ekki hvernig ég á að segja mömmu þessi tíðindi, þar sem að hún ætlar að vera í Danmörku öll jólin sem hún á eftir ólifað. Þannig að hún mun ekki njóta þeirra forréttinda að hafa mig í nærveru sinni á jólunum.
En þið þarna á íslandi munuð hins vegar njóta þess að hafa mig hjá ykkur, þ.e. ef að einhver vill hafa mig hjá sér, sumir voru voða fyndnir áðan og sögðu að það væri ekkert endilega nein eftirspurn eftir því að ég væri á íslandi þá, sem er kjafæði - það er alltaf nóg eftirspurn, ég veit það, ekki nema ég lifi í blekkingu.
Þessi jól eru nú búin að vera fín, þó að það sé ekki búið að vera mikið annað gert en að vera í náttfötunum, borða, vera í tölvunni og svona huggulegheit. Vantar öll jólaboðin, íslenska matinn og restina af famelíunni og vinunum. Það er samt búið að spurja mig nokkuð oft hvort ég vilji ekki kíkja á djammið, meðal annars á aðfangadagskvöld - fatta ekki svona, mér finnst ekki viðeigandi að djamma á jólunum, fyrir utan það það er ég að verða of gömul fyrir svona djammstand, nenni því engann veginn, vil bara vera heima og kúra undir sæng með góða mynd.
Mér finnst aðventan hér í danmörku þó betri en á íslandi, ekki þetta stress alltaf hreint, þannig að það er spurning um að fljúga bara til íslands á þorláksmessukvöld - Sleppi ég öllu stressi.
Annar langaði mig bara að segja ykkur þetta, og jafnframt þakka ykkur fyrir mig, voða ánægð með þetta allt saman.

23.12.05

Gullkorn og eitthvað meira

Linda vinkona mín er búin að vera í heimsókn hjá okkur hérn aí heila viku og búið að vera mikið stuð á okkur stöllum :) - Takk fyrir samveruna sæta mín, við sjáumst svo þegar að ég kem á klakann.

Annars verð ég bara að segja ykkur frá tvennu ógeðslega fyndnu sem að skeði hjá okkur þessa vikuna. Held samt að þeir sem að þekkja okkur finnist þetta fyndið, en ekki hinum ;)

Fyrsta kvöldið hennar Lindu þá vorum við í Partý-i hjá Láru og Gauja. Ég og Gauji vorum eitthvað að spjalla og þá rek ég augun í Nýja Robbie Williams diskinn, en fyrir þá sem ekkivita þá erum við Guðjón Valur harðir Robbie aðdáendur.
Samtalið varð svona:

KA - Nau, bara búin að kaupa nýja diskinn með Robbie sætasæta?!
GV - Já, maður en hann er samt alls ekki góður
KA - Ha? Í alvöru?
GV - Já, Ég allavega bjóst við meiru frá honum, það eru svona nokkur lög sem eru allt í lagi.
KA - Dísess, en samt, maður var auðvitað að búast einhverju svakalegu þar sem að diskurinn sem kom út í fyrra var svo geðveikt góður!

Þori varla að segja það en diskurinn sem að kom út í fyrra var BEST OF Robbie Williams! Og ég var blá edrú!
Note to self; Think before you speak woman!

Annað nokkuð skondið gerðist þegar að ég og Linda vorum í Djúpum samræðum um hvað hún væri fyndin og vorum að fíflast eitthvað með það. Þá heyrist í Lindu: Já, ég er svo fyndin að ég verð bara seld á E-bay þegar að ég dey...
Já, elskan, ÖRUGGLEGA!

Einhverra hluta vegna var verið að ræða um selfoss og alla hnakkana sem að búa þar.(Sem okkur finnst miður skemmtilegir drengir) Þá segir Linda uppúr þurru: SKo, það eru til Margar Hondur, en bara ein Honda Cific...
ÞAr hafið þið það :)

Annars gengur allt sinn vanagang fyrir sig í Danmörku, bara same old same old.
Hlakka mikið til að koma til Íslands og láta gamminn geysa, Það verður nú gaman fyrir ykkur að fá mig til þess að lífga uppá skammdegið, svo líður ekki að löngu þangað til að Stelpan Drullist til að taka þetta bílpróf sem að er búið að trassa í 9 mánuði. Þá myndi ég reyndar halda mig innandyra ef að ég væri þið, ekkert sniðugt að vera að væflast úti, vitandi af mér keyrandi á rauða drekanum um götur Reykjavíkur - Óþarfa slysahætta!

20.12.05

Ég ætla ekki að blogga neitt hérna fyrr en að ég hef eitthvað skemmtilegt að segja eða góðar fréttir.
Þangað til verður bara kveikt á kertum og beðið til guðs að allt fari vel.
Ég vil fara til íslands og vera hjá ættingjum mínum þar, maður gæti kannski gert eitthvað meira gagn þar en hér.



13.12.05

Smá update og bloggleikur

Ég er lennt heilu á höldnu í Danmörku. Eftir brjálæðislega langt ferðalag og stutt millilend á íslandi.
Daginn eftir að ég kom heim fór ég á Duran Duran tónleika í höllinni hérna í horsens, og vááá hvað þeir voru mikil snilld. Ég kunni flest lögin og skemmti mér því alveg ljómandi vel.
Mikil upplifun að sjá þessa gömlu refi svona live.
Annars hefur ekki mikið á daga mína drifið síðan ég kom, ég fór reyndar í partý eftir duran duran og skálaði í Faxi Kondi, get sagt ykkur það að danirnir voru ekki ánægðir með það að kristín væri bara búin að leggja búsið á hilluna, sé það núna hvað fullt fólk getur verið óskaplega leiðinlegt þegar að maður er edrú - sérstaklega danir.
Ég er annars bara búin að vera róleg síðustu daga, svo er Linda að koma til mín á föstudaginn og það verður æðislegt!
Ég smitaðist af bloggleik hjá frú skunk, ætli maður verði ekki að gera þetta :)


Settu nafnið þitt í comment og.....

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..

Koma svo, muna bara að setja nafnið sitt undir og þið þurfið ekki að vera skráð til að geta kommentað.

7.12.05

Merkilegt!
Í gær fór ég mjög seint að sofa og vaknaði frekar snemma, eða um 10 leytið. Held að ég hafi sofið í svona 5 tíma, en vaknaði klukkan 10 alveg eins og ég hefði sofið í 12 tíma - Vel úthvíld og spræk bara. Ef að ég hefði sofnað klukkan 2 og vaknað klukkan 7 þá hefði ég ekki getað vaknað, ekki séns - Það er eins og líkamsklukkan mín sé vitlaus stillt og hánóttin hjá mér er á 6-10 á morgnana. Því að ég er altaf spræk ef að ég sef á morgnana, sama hversu lítið ég svaf um nóttina.
Þarna kom sem sagt skýringin fyrir því að ég Kristín Alma Sigmarsdóttir sé svona morgunfúl á morgnana, hver væri það ekki ef að hann er vakinn um hánótt!?
Nóg af þessu rugli, núna er ég vakandi því að ég hlakka til, ég er að pakka niður og kannski vegna þess að ég var á flakki í dag og er búin að óverdósa af koffíni. Ég innbyrgði aldrei koffín, passa mig á því - En þegar að Kristín Alma rekst á Starbucks þá er illt í efni, kaffið þar er svo gott, og það er bara gott að fá sér smá latte í þessu frosti sem að skall á Washington í nótt.
En í washington eru margir Starbucks staðir og eftir daginn í dag er Kristín búin að fara á þá flesta, svo að nú sit ég hérna titrandi eftir koffín neyslu dagsins.
Ég hata að pakka niður, það er svo leiðinlegt, en það er þó miklu leiðinlegra að pakka upp, þess vegna hef ég komið upp þeirri skemmtilegu hefð að þegar að ég kem heim úr ferðalagi þá skelli ég töskunum á gólfið og hef þær þar þangað til næst þegar að ég fer í ferðalag. Þá lokar maður bara töskunni og heldur útá völl. Sniðugt.
En núna þarf ég að pakka, vera skipulögð og nýta hvern CM eins vel og hægt er, ég er til dæmis búin að rúlla öllum fötunum mínum upp, eins þétt og ég gat, troða sokkum ofaní alla skó og setja stæðstu fötin og það í stóran ruslapoka og vagúm pakka það með því að sjúga loftið úr með ryksugunni. Já það er heppilegt að ég sé búin að horfa á Gumma frænda pakka oft niður fyrir Ameríkuferðir, það hlaut að koma að því að maður lærði eitthvað gáfulegt af honum :)
Vildi samt óska að Amma væri hérna til að pakka niður, þegar að hún pakkar niður fyrir mig (og hún pakkaði nú niður fyrir Gumma nokkrm sinnum líka ;)) þá er eins og taskan breytist í svona Marry Poppins Tösku, Þar sem að allt kemst ofaní. Ótrúlegt! En núna er amma í Danmörku, hún og afi eru að sjálfsögðu í móttöku nefndinni, og brugðu sér til Danmerkur til að taka á móti aðal Prinsessunni.
Langt ferðalag fyrir höndum á morgun, þetta á eftir að taka svona 22 tíma myndi ég giska á, allt í allt frá því að ég legg af stað héðan og þangað til að ég verð komin til Horsens. Alein og yfirgefin að þvælast, en ég stoppa í klst á íslandi - get keypt mér kúlusúkk og séð og heyrt, gaman :)
Jæja, farin að halda áfram að troða sokkum og nærbuxum ofaní skóna og ryksuga loftið úr úlpunni minni...