22.12.04

já fallega!
Þá er ég skriðin yfir á klakan, lennti hér heilu á höldnu aðfaranótt mánudags. Eftir ansi skrautlega en SKEMMTILEGA köben ferð með Ingu Rós!
Við skemmtum okkur SVOO vel að það eru ekki orð sem lýsa Því.
Nenni ekki að skrifa meira, en ég hef það gott og allt það.
skrifa fljótt aftur, bæ bæ

14.12.04

Óskalisti!

Hmm, kannski að maður hafi átt að vera búin að koma með þetta hérna inn fyrir löngu síðan. En ég er búin að ákveða að það hlýtur að vera einhver þarna úti sem að vill vita hvað mig langr í í jólagjöf. Það er ekki ein manneskja búin að spurja mig svo að ég verð bara að hjálpa mér sjálf.
En ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar nema tvær, en klára það á morgun eða fimmtud. reyndar fer fimmtudagurinn í að pakka niður, því að föstudagurinn fer í einhverja vitleysu eins og að sofa eins mikið og ég get og party..thss ætti held ég frekar að vera heima og lesa pollíönnu...

1) Ipod eða Ipod mini,lífsnauðsyn fyrir mig. Þar sem að ég er tónlistarfíkill og er líka búin að klára plássið á tölvunni minni með tónlistinni sem að ég Downloada. Þess vegna er Ipodinn lífsnauðsin því að hann tekur um 10.000 lög inná sig, en Ipod mini um 1000 lög. sem er mjöög gott. (Ipod mini kemur í 5 rosalega flottum litum)


2)fyrir fólk með skódellu á haú stigi er þetta mjög sniðug gjöf. Og þar sem að ég er skósjúklingur þá langar mig að sjálfsögðu í skó í jólagjöf...


3)snyrtidót. Held að það skýri sig bara sjálft, ég get ekki litðið út eins og kjáni í kringum alla þessa myndarlegu, Søreni, kaspera og Rasmusa...


4)Einhver mjöög djúsí náttföt til að chilla í á íslandi í kuldanum...


5)Ugg boots er líka nauðsyn í vetur, og já þetta eru stígvél sem að ganga við allt, og eru GEGGJAÐ mjúk og æðisleg. Salka á einmitt eitt par af þessum skóm og Oprah winfrey líka:)


6)boxers strákanærbuxur til að sofa í...BARA þægilegt


7)Friends..Auðvitað!


8)Tónlist í hvaða formi sem er..bara góða tónlist. that´s my pachion!


9)Eyrnalokkar og eitthvað svoleiðis dúllerí, eða fylgihlutir...


10)Einhvern geggjaðan bol, með flottri mynd eða setningu. eins og bolirnir úr nonnabúð, Dogma og ósoma...


Okei, þetta er svona það helsta..og mig langar í miklu meira. En annars þá er þetta ekki topp tíu listinn,heldur bara raðað niður af handahófi. Fyrir utan Ipodinn, sem er NR EITT!!!!!

11.12.04

Ég ætla að reyna að tína saman svona Golden mometns frá DK, ætti ekki að vera erfitt en kannski skilja ekki allir ruglið í fólkinu hérna úti. En það kemur ekki strax. hehe, en líkleg með næsta bloggi.
Það er allt rosa gott að frétta frá mér, ég byrjaði í nýjum bekk á mánudaginn og er núna með Pernille í bekk. Sem er mjog fínt bara. Reyndar var ég orðin mjog þreytt í endann á vikunni, eftir að hafa talað dönsku nánast stanslaust síðan á föstudaginn í síðustu viku, og það er bara of mikið fyrir mig.
Annars er fátt sem að kemst að í hausnum á mér núna þessa dagana fyrir utan það að ég og Inga Rós erum að fara að hittast í Köben eftir eina viku! Ég er alveg að farast ég hlakka svoooo mikið til. Við erum að fara að versla og hygge os. Svo fljúgum við saman heim til íslands næsta sunnudagskvold. það verður æðislegt hjá okkur.
Svo á sunnudagskvoldið fæ ég að sjá Pabba gamla og Birnu og Sindra og svo Auðvitað aðal skvísuna, hana Sölku.Ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana í kremju..!!!


2.12.04

já þetta var nú bara svona smá upplyfting í skamdegið. Engar áhyggjur, ég held áfram að blogga á íslensku. Þetta var bara Pernille sem að vildi fá að vita um hvað bloggin mín snérust, hún heldur að hún sé að missa af einhverju (sem er satt) svo að´ég er farin að kenna henni íslensku, og svo leiðréttir hún mig ef að ég segi eitthvað vitlaust a dönsku.Þessi kennsla gengur mjög vel, og Pernille mjög góður nemandi, hún lærir eina setningu á dag, en á reyndar mjög erfitt með framburðinn. En hann kemur, bara svona eins og þegar að íslendingar læra að tala "með kartöflu í hálsinum"...
Annars er allt gott að frétta ég er að fara að hitta ingu mína eftir rúmlega tvær vikur, og shiiit hvað ég hlakka til! Þá verður allt gert vitlaust í Köben maður, og í flugvélinni á leiðinni heim.
Svo kemur Pernille og Joinar á klakann 28 des og verður á áramótunum. og fer svo aftur heim með mér 5 janúar, það verður bara gott að hafa ferðafélaga báðar leiðirnar til og frá DK, og auðvitað gaman að fara til íslands og hitta alla og svo að fá að vera svona GUIDE um landið(höfuðborgarsvæðið)
En jólin eru að koma og ég bara komin í þetta fína jólaskap, en það veðrur líklega ekki neitt að alvöru fyrr en maður kemur heim í kuldann á íslandi.
Talandi um jólin, þá svona smá fyrir þá sem að vilja fá jólagjöf frá mér, þeir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við mig, svo að ég geti gefið þeim upp reikningsnr og kennitölu. Svo að þeir sömu geti lagt inná mig pening, svo að ég geti keypt jólagjafirnar. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég er fátækur námsmaður í Útlöndum sem hefur ekki efni á jólagjöfum.
en ég er farin. blessbless

En í lokin kemur ein yndisleg mynd...

óóóó, hvað ég sakna hennar litlu sistur mikið!

29.11.04

OK, nu skal I få det afvide som skulle være en overraskelse. Det er at jeg skriver på dansk!
jeg håber bare at I kan godt forstå hvad jeg skriver, men hvis I ikke gør, kan I bare skrive det i "komments"

Aníhú, så var weekenden fin, altså meget rolig. Eller måske ikke fredag. Fordi at der var låra og jeg på Paddys. Det var jo herre sjovt men det var jo en fejl, at låra ikke kunne danse, og jeg savnede DING. Så jeg tror at jeg kom hjem ved 02:00 tiden.
I lørdags lavede jeg ikke en skid, fordi at jeg var så doven at jeg lå i min seng hele dagen og så fjernsyn. Om aftenen var jeg så pisse træt at jeg bare blev hjemme og hyggede mig, mor og far var til fest hos vores venner så det var jeg og de små som var hjemme.

I søndags var jeg også doven, og jeg havde fucking hovedpine og sådan noget.

Nu tror jeg ikke at jeg har mere at sige, så jeg smutter..HEJ

25.11.04

Á morgun, munið þið fá að sjá nokkuð sem hefur ekki sést áður á íslenskri bloggsíðu...


21.11.04

Ég var að horfa á Laugardagskvöld með Gísla Marteini og þar var verið að fumsýna Birgittu dúkkuna frægu, og ég segi bara greyið Birgitta!
Þetta er dúkkan sem að allar litlarstelpur hafa verið að bíða eftir í ofvænni rosa lengi, og svo kemur bara þetta FREAK. Meira að segja Bratz dúkkurnar eru fallegri en þetta, og ekki eru þær nú sætar.
Mér finnst þetta bara móguð við Birgittu, því að hún er svo ótrúlega sæt stelpa, og maður sá að hún var ekkert alltof hrifin afþessu.
Greyið stelpan að það sé verið að líkja þessu við hana!

19.11.04

Æji, núna er ég pirruð!
Fór til Tannlæknis á miðvikudaginn og það var skorið fullt í munnin á mér og eitthvað vesen. Og svo var saumað fyrir, frekar ógeðslegt að vera með sauma í munninum en það er annað mál.
Var með mikla verki á Miðvikudaginn og fimmtudaginn, allt stokkbólgið og svona huggulegt. Og svo í morgun þegar að ég vaknaði var allt orðið miklu meira bólgnara og ég hélt að það hefði rifnað upp saumarnir eða eitthvað, því að þetta var svo ógeðslega vont. Hringdi í lækninn minn og hann sagði mér að koma við hjá sér áður en ég færi í skólann, sem ég gerði. þá er bólgan orðin svo mikil að hún er farin að þrýsta á framtennurnar, og ég var send heim með 600 mg íbúprófín. Og sagt að ég ætti ekki að fara í skólan, og bara fara heim að sofa...
Núna verð ég að vera heima í dag og láta mér leiðast, ég er reyndar að bíða eftir því að fá spólu senda frá íslandi, með 70min frá Miðvikudeginum, þar sem að pabbi minn var víst eitthvað að gera sig að fífli fyrir framan alþjóð. Ég allavega hlakka til að sjá þetta...

16.11.04

Ég var að koma heim úr skólanum rétt í þessu, sem er ekki frásögufærandi nema hvað að það kom Íranskur leikari í heimsókn(búinn að búa í Dk í 20 ár eða eitthvað), og var með svona uppistand. Nema hvað að hann notaði bara sitt líf, sem var greinilega ekki alveg dans á rósum, en hann grínaðist bara með það. Hann var að segja frá því þegar að hann var unglingur í Íran í skóla, og svona. Ótrúlega fyndinn gaur sem getur by the way ekki sagt "Rødgrød med flode" ekkert frekar en ég.
Allavega þá kom hann með ógeðslega góðan punkt. Hann var að tala um að hann skildi ekki afhverju múslimskar konur þyrftu að hafa þessar blæjur, það væri bara eins og að mála flott málverk og hylja það svo. (tek það fram aftur að þessi gaur er frá íran og var/er múslimskur)
Og svo kom han með annan MJÖG góðan punkt! hann var að tala um hvað það væri asnalegt að ef að maður væri með hæfileika til að gera eitthvað, en mætti það ekki vegna trúarbragðana, að þá ætti maður bara að horfa til Himins og segja: FUCK DIG!! og fara svo bara að gera það sem að maður ætlar sér, ekki láta trúarbrögð stoppa sig.(er auðvitað að tala um góða hluti)
Maður á að nota hæfileikana sem að maður fær!



10.11.04

jesss..nú kann ég að setja inn myndir! Ætla að nota tækifærið og setja inn tvær af sölkunni!


Búin að skvetta mjólk framan í sig...




Að borða brauð uppúr mjólkurglasinu, furðulegir borðsiðirnir sem henni er kennt á leikskólanum...

8.11.04

Ohh ég hata blogger eiginlega svoltið mikið þessa dagana. Hann vill ekki setja inn myndir hjámér, hvorki með Hello né með kóðanum... en það er efni í heila bók svo að ég held að ég sleppi því bara að skrifa um það.
jæja á Föstudaginn þá fór Jakob litli til íslands aftur og það finnst mér ekki skemmtileg, en hann kemur líklega aftur í Des, svo að ég ætti að lifa þetta af. Ég hef Láru og fleira ruglað fólk til að skemmta mér með.
Anýhú, þá fór ég svo til Láru eftir skóla, og við vorum eitthvað að spassast með Foldu og hundinum. Um kvoldið gerði Lára svo heiðarlega tilraun til að fylla mig, en það tókst ekki..(haha henni tekst það aldrei þegar hún reynir það) Endaði með að hún drakk einhverja 5 bjóra eða eitthvað fyrir mat, en sagði svo að ég hefði drukkið þá með sér..sem er ekki satt!
Kvoldið varð samt mjog skemmtilegt, Lára fór svo með Mette á eitthvað ball og ég og Folda fórum í Heimsókn til Jóa og Kristjönu.
Laugardaginn vaknaði ég svo um 11 leytið og fór að taka til, og lá svo uppí rúmi og dottaði yfir Robinson allan daginn. Svo um kvoldið þá fór ég að hitta strákana heima hjá Almari, og við löbbuðum svo á íslendingaballið og vorum þar alveg til 4 og skemmtum okkur sko rosalega vel..Allavega ég.
Sunnudagurinn fór í eitthvað rugl, Lára kom til mín og við lágum undir sæng og Horfðum á Miss Match og FRIENDS allan daginn.
Svo seint um kvoldið var svo farið bara að ná í Ömmu og Afa niðrá lestarstöð og svona, Þau komu aðvitað með fullar hendur af íslenskum mat og stuffi..líka 70min 3 og Nýjasta nylon diskinn! ÉG HATA NYLON...

3.11.04

"mankind must put an end to war or war will put an end to mankind" þessi orð mælti John F. Kennedy.
Í morgun fékk ég mína sönnun fyrir því að það verður ekki bundið endi á nein stríð næstu fjögur árin. Þ.E. á meðan að Bush verður áfram við völd í Bandaríkjunum.
Ég er svo hneyksluð á Bandaríkjamönnum að kjósa bush aftur, þegar að stendur svo miklu hæfari maður í þetta starf við hlið hans. Bush er það versta sem hefur komið fyrir bandaríkin í MÖRG ár.
Og svona til að toppa þetta þá segir Davíð Oddsson að endurkjör Bush komi sér vel fyrir íslendinga! þá held ég bara að ég ætli að sækja um danskann ríkisborgararétt....

1.11.04

Blogger er í óstuði núna! vill ekki byrta bloggið sem ég var að gera, og vill heldur ekki setja mynd, svo að þið verðið bara að bíða þolinmóð ar til næst!!!!


24.10.04

textinn fyrir neðan myndina varð víst eitthvað mis. held bara áfram að tala um jakob hér.

Já við jakob gerum marga skemmtilega hluti saman og svona. en jakob ætlar að vera erfiður einn og flytja til íslands í nóvember og skilja mig eina eftir hérna með einhverjum kolklikkuðum dönum og bandbrjáluðum íslendingum!
Fallegi félaginn sko, að beila á mér..núna verð ég víst bara að vera ein inn í horsens!!!!!!!!

Thetta er hann Jakob, aðal sjarmörinn í Horsens(fyrir utan mig) Hann er med mer i bekk, og vid erum sko hinir mestu matar. Gerum margt skemmtilegt saman, eins og vera erfid, boggast i Avari og Jasmin, dansa freestyle og skoppa í spinngin.
Kristín ruglar með myndir

15.10.04

Kennaraverkfallið er bara ekkert að leysast og Mörg þúsund börn ráfa um sveitarfélögin í leit að einhverju til að gera.
Mér finnst þetta verkfall svo mikið rugl. En samt ekki, rosa skrýtið að það sé ekki hægt að borga kennurum meira, mér finnst þetta illa launuð og vanmetin stétt. Ég meina hvenrig getur fólk verið að segja að kennarar séu alltaf að kvarta og fái alveg nógu mikil laun?? Ég skil það ekki. Fólk heldur að kennarar vinni ekki mínótu meira en börnin eru í skólanum, en sú er sko ekki raunin. Kennarar þurfa að undirbúa hverja kennslustund fyrir sig, og eru að vinna á STARFSDÖGUNUM, og fleira sem að ég nenni ekki að telja upp.
Kennarar eru heldur ekki í sumarfríi allan tíman sem að nemendurnir eru í fríi, síður en svo.
Æji þetta pirrar mig svo hræðilega, Fólk hugsar ekki dæmið til enda. Ef að Kennarastéttin heldur áfram að vera svona illa Launuð, þá nennir enginn að mennta sig í 3, 4 eða fleiri ár til að verða kennari. Þar af leiðandi fáum við Lítið sem ekkert menntað fólk í kennarastöðurnar, og þá auðvitað fáum við verr menntað fólk útá vinnumarkaðinn í framtíðinni. ÞEssvegna er mikilvægt að fólk gleymi ekki að kennarar eru þannig séð lykillinn að framtíð Íslands. Auðvitað eru það við börnin sem að erum aðal lykillinn, en ef að við fáum ekki ekki góða kennara verður menntun okkar ekki uppá marga fiska og þar af leiðandi hrinur þjóðfélagið, því að við fáum verr menntað fólk í vinnu, ekki satt?

13.10.04

Ég er á einhverjum hræðilegum bömmer núna!
Ekkert alvarlegt, en ég held að það sé vegna þess að mig langi í síða hárið mitt aftur. Varla mikið hægt að gera í því, nema bara bíða og taka b-vítamín.
En alltaf gaman að breyta til, ég get reyndar huggað mig við það að hárið mitt vex mjög hratt, þannig að það tekur svona ár fyrir mig að fá það aftur eins og það var.
Ég veit samt ekki afhverju ég er að kvarta yfir þessu, langaði bara eitthvað að kvarta.
Æji ég er farin að hlusta aftur á Radiohead...

11.10.04

Gamle gode island!

Vá ég er búin að byrja á þessu Bloggi svona 3 sinnum, svo að ég er að hugsa um að vera ekkert að leggja mikla hugsun í þetta innlegg.

Bara svona nokkrar línur svo að fólkið í DK viti að ég sé á lífi og svona. Veit að það eru allir á Bömmer yfir því að ég er ekki þar núna til að djamma með í vetrarfríinu, en ég og Lára ætlum að djamma á sunnudaginn í næstu viku til að bæta þetta upp, en samt er skóli daginn eftir, but who cares?!?! Við erum svo miklar Hardcore gellur sko...

Anýhú, þá skruppum ég og Inga rós á djammið í gær, Linda hélt þetta líka svakalega partý, og ég og Inga Rós mættum Gallvaskar á slaginu hálf níu, þá voru nú flestir komnir bara, en stuðið byrjaði ekki fyrr en að við komum. Allavega þá gerðist margt skemmtilegt og sniðugt í þessu patrýi og kom ég ekki heim fyrr en klukkan 5 í nótt. MJÖG GAMAN

Svo í Dag var ég að "uppfarta" í afmæli hjá frænku minni, hún varð sextug. Mjög gaman, ég var bara að labba um að hella áfengi í glösin hjá fólkinu og svona.
Í kvold var svo bara matarboð hjá Dúddu og Braga(foreldrum birnu) og ég, pabbi, salka og Sindri fórum þangað og hittum fullt af fólki, rosalega gaman að hitta alla aftur.
núna var ég svo að koma heim frá helgu, við vorum þar ég og þlinda að éta nammi og horfa á FRIENDS (kemur á óvart ha?)

ég er farin að sofa, ég kem með eitthvað skemmtilegra næst...




6.10.04

Ég er sloppin lifandi frá lestum, bílum flugvélum og tannlæknum! sem sagt, komin á klakann, og líður vel!

3.10.04

ég sé fram á erfiða nótt, í nótt og næstu eina til tvær nætur. ég er nefninlega að bresta á ef að svo má að orði komast.
núna er bara þessi skemmtilega bið, biðin endalausa eins og mér finnst hún vera. þetta er biðin um að fá að vita hvaða dag ég kem. erfið þessi bið, ég læt ykkur vita hvenær ég kem, engar áhyggjur.
vá þetta blogg er ekki minn stíll,ég set ekki einu sinni stóra stafi...
ég ætla bara að fara að leggjast undir feld og reyna að finna persónuleikann minn aftur. en hann týndist í flutningunum til DK. ef einhver sér 16 ára persónuleika á þvælingi um ísland, endilega látið mig vita. mér gengur hálfpartinn illa að venja mig við þennan nýja sem er að myndast, og er á góðri leið með að vera algjor andstæða þess gamla. samt er þetta eiginlega mjog gott mál, en ég er eiginlega of óhrædd við hlutina finnst mér stundum, ég bara veð í þá. jæja ég læri á að stjórna því í framtíðinni. það ávíst að vera rosa gott að vera óhræddur við hið ókunna...