Plönin breyttust aðeins. Við brunuðum til Reykjavíkur, fórum með hundabarn í klippingu, fengum okkur að borða, keyptum tölvu, fórum í ríkið og bónus komum útí bíl og ákváðum að fara bara ekkert í útilegu. Ákváðum frekar bara að slaka á tvö saman um helgina á S1 og hafa það kósý. Sem við gerðum. Ótrúlega gott, kannski pínu nauðsynlegt því að við höfum ekki sést mikið í sumar.
Fórum í matarboð, pottinn, sund, út að borða, bíó, bæjarrölt og göngutúra um Seltjarnarnesið með Hrapp í broddi fylkingar. Yndislegt.
Langaði að kíkja á Þjóðhátíð á sunnudeginum en ákvað svo að ég myndi alveg örugglega lifa af að sleppa því einu sinni. Og það gekk eftir, þjóðhátíðin er búin og ég á lífi.
Ég er annars alltaf að æfa mig í að taka myndir. Ekki að læra taka einhverjar pro myndir heldur bara að vera dugleg að taka myndir. Tók nokkrar um helgina en þær eru ekki upp á marga fiska en dúndra þeim samt hingað inn. Það er hvort eð er bara mamma sem sér þetta.. :)
 |
| Óklipptur og nýklipptur Hrappur |
 |
| Þessi er alltaf svo spakur í verslunarferðum |
 |
| Nýtt dót |
 |
| Ég bauð JP í Bauhaus á leiðinni heim. |
 |
| Hrappur lærði að synda. Kominn tími til að hann læri það! |
2 ummæli:
sorry... mamma þín er ekki eina sem sá myndirnar hehehe.....
kyss kyss
Haha, djöfull. Hvað ert þú að þvælast hérna.. ;)
Skrifa ummæli