4.12.08

Jól

Gott að ég "kem frá" Grundarfirði. Samkvæmt þessu er nefninlega bara snjór í Ólafsvík. Örugglega sól og blíða í Grundó eins og vanalega.

Það er annars sól hjá mér. Í alvörunni sko. Eða var í dag að minnsta kosti. Núna er bara myrkur, enda klukkan að verða hálf þrjú. Ég bara datt í smá les og er núna að plotta smá með Villa Mágkallinum mínum á msn. Erum svo flippuð.

Búin að ákveða hvar jólin verða. Þau ætla að vera í Grundarfirði þetta árið, nánar tiltekið á Grundargötu 69. Verðum bara tvö heima (ég og Jón Pétur) í megakósí rólegheitum. Fólk er nú eitthvað að hafa áhyggjur af því að það verði einmannalegt hjá okkur og svona, en ég hef nú enga trú á því. Ég er nefninlega skemmtilegri en margir halda.
Hinsvegar held ég að við getum alveg ákveðið núna að við verðum með annari hvorri stórfjölskyldunni á næsta ári, þar sem ég hef fengið það stórkostlega hlutverk að sjá um jólamatin.
Er að pæla í að biðja einhverja í tengdafjölskyldunni að hafa ríflegt í jólamatinn því það mun verða mjög líklegt að við birtumst á tröppunum hjá þeim, sársvöng eftir að mér tekst að klúðra hamborgarahryggnum á einhvern skemmtilegan hátt, sem á ekki að vera hægt.
Við ætlum svo að koma í bæinn á jóladag og soga í okkur smá menningu. Eða menningu og ekki menningu, ætlum í hangikjöt og laufabrauð á S1 og örugglega slatta af jólaboðum.
Og passa Auði krúttrassgat á annan í jólum.

Áramótin eru óráðin. Ég á flug klukkan 8.00 á nýársmorgun svo það er spurning hvað við gerum.

Í sambandi við jólakort. Þá má senda það bara strax til Grundarfjarðar (ef þið ætlið að senda mér/honum/okkur jólakort yfir höfuð), þar sem ég fer til Íslands eftir viku og verð ekkert aftur í Danmörku fyrr en í janúar.

Jón Pétur Pétursson
Kristín Alma Sigmarsdóttir
Grundargata 69
350 Grundarfjörður

Það er ennþá óráðið hvort þið fáið jólakort frá mér/okkur. Ég er að reyna að fá Jón Pétur til að senda út kort með mynd af okkur með jólasveinahúfu. Gengur ekki vel. Skil þetta ekki :)

6 ummæli:

Kristín Alma sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Hahaha sameiginlegt jólakort:) Eruð þið "there yet?"

http://www.youtube.com/watch?v=3_g5LFfP3o0

(mínútur 2:30,4:40,8:30)
Villi

Nafnlaus sagði...

múhahahahahaha Villi :)

Hljómar wonderful með jólakortin - hlakka til að fá eitt!

Regards
Svanhvít

Nafnlaus sagði...

Hahaha! Já villi, ég held að við séum komin þangað.
Ég er löngu komin með lyklana, þá er kortið næst.

Svanhvít, skrifa þig á listann.

Sko, ég get alveg kommentað nafnlaust, hvað er að ykkur?

Kristín Alma

Nafnlaus sagði...

pant líka fá eitt kort:) skal senda ykkur eitt af mér með jólasveinahúfu líka... sætt

Helga Lovísa

Nafnlaus sagði...

er hægt að senda þér jolakort þangað? ertu komin með nafnið á póstkassann epa? aldeiliiiis!

Helga lovisa