30.9.08

Hóst og hnerr

Ég er komin með man flu. Á svo bágt að mig langar að grenja af sjálfsvorkun. Er samt bara með einhverja hálsbólgu, kvef og hausverk. En þegar ég verð veik/slöpp geri ég það eins og karlmaður og þrái ekkert heitar en að láta vorkenna mér. Þakkiði bara fyrir að ég sé ekki með hita!

Jón Pétur kemur á morgun. Verður líklega bara kominn um það leyti sem ég kem heim úr skólanum. Hlakka mikið til. Hann er líka með kvef og hósta svo við verðum fín hérna saman. Það er samt búið að plana þessa daga sem hann verður alveg í drasl. Bara fínt. Matarboð og partý frá fimmtudegi til sunnudags. Ekki slæmt.
Stjáninn okkar er líka að koma og ég hlakka nú ekkert minna til þess. Langt síðan maður hefur séð hann.

Ætla að elda eitthvað með miklum hvítlauk í kvöld. Veit bara ekki hvað, komið með hugmyndir..

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kjúlla hvidlög
Ú étla sko að kíkja á ykkur í kveld og horfa á mynd með ykkur!!!!!

Nafnlaus sagði...

hahaha, Íris hefði verið bara fyndin hefði hún mætt með poppið með sér tilbúin að horfa á mynd!! meina þið "voruð" hvort sem er ekkert saman, voruð bara að horfa á myndir saman og svo nenntir þú ekki heim af því að það var svo rooooosalega langt að fara.... aha ég trúði ykkur líka..

hlakka mikið mikið til að sjá ykkur eftir nokkra daga.

kv. Brekamamma

Nafnlaus sagði...

HAHAHHAHAHA Já ég meina þú veist Dalalíf er nú rosalega góð mynd og allar hinar sem að þú "sofnaðir óvart" yfir.

Stjáni

Kristín Alma sagði...

Hahaha! Íris mín, Mættir þú ekki heim til mín með gest kl 1 í nótt??

Brekamamma og Stjáni: Sko það skeði í alvöru. Þetta var kannski orðið svoltið langt gengið þegar ég sofnaði yfir Ice Age 2 :S

Hlakka til að sjá ykkur :)

Nafnlaus sagði...

Mamma þín var einu sinni að fara að syngja á tónleikum, var með rosa kvef, mig minnir að hún hafi borðað 2 heila hvítlauka, kvöldið áður... Hefur aldrei fengið hvef síðan.

Þú ættir kannski að prófa þetta...skítbillegt líka;-)

Nafnlaus sagði...

Jú ég stend sko við mín plön múhahaha