Fór í litun og plokkun áðan. E-ð sem ég geri alveg tvisvar á ári.Well, var kannski búin að vera óþarflega löt við að halda augabrúnunum við síðustu tvo mánuðina eða svo þannig að ég var orðin eins og Bert í sesame street á góðum degi.
Í maí og byrjun júní var mikil sól og ég hef greinilega tekið einhvern lit, því þegar ég labbaði út af snyrtistofunni þá var ég með þessa myndarlegu hvítu línu fyrir neðan augabrúnirnar.
Nú eru góð ráð dýr, Íslandið eftir 2 daga og ekki er sólbaðsveður í Danaveldi núna! Það væri nær að standa léttklædd úti á svölum og fá þá jafnvel jafnan bláan lit..
3 ummæli:
Hey......bara koma í Raadved...alltaf 37 á pallinum
þú ert nú bara undir einhverju skýi þarna í horsens... hér í Vejle er sko fínasta veður... sat í suðupottinum á pallinum á la tasca í gær og var gjörsamlega að bráðna... lét mig hafa það í von um smá lit ;)
p.s. líka fínt í Brande sko
það er nú bara skítaveður hérna! vonandi kemuru með sólina með þér:)
Skrifa ummæli