19.6.08

Útskrift

Vá, hvað er fólk að pæla í að útskrifast í febrúar?

Fann held ég eina sönnunargagn þess að ég hafi mætt í útskriftina hjá byggingarfræðingunum okkar hérna í vetur. Stal þeim frá Byggingarfræðing og frú hér í bæ :)

Núna skil ég næstum því Jón Pétur að hafa frekar viljað fara í Ikea (eina skiptið sem hann hefur farið með bros á vör í Ikea, myndi ég halda) í staðinn fyrir að mæta í útskriftina og láta taka af sér myndir.

Maður er eins og liðið lík í febrúar!!!



Sýnist á öllu að ég mæti í útskriftina hans Stjána þann 4. júlí. Bara til þess að láta taka af mér betri myndir, er svo fokkíng töönuð núna...!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú hef ég góða afsökun fyrir því að þurfa ekki að fá útskriftargjafir því tæknilega útskrifaðist ég ekki þó ég hafi fengið prófskirteinið seinna um daginn.

Nafnlaus sagði...

já alveg rétt........ég á eftir að láta þig hafa útskriftargjöfina Jón Pétur minn...takk takk fyrir að minna mig á þetta. En Kristín....satt er það að við séum fölar en var þetta kl.6.30....eins og við séum nýskriðnar úr bælinu...

Kristín Alma sagði...

JP: Gott þá að útskriftargjöfin sem ég keypti fyrir þig "týndist í póstinum".
Ætla að muna þetta þegar ég útskrifast.

Mamma: Varstu full? Þetta er í Hádeginu eða um 14.00. Manstu ekki, var púsl að ná í Breka í vöggustofuna. Svo var ég með hann um kvöldið þegar þið voruð öll á "ballinu".
Ég var reyndar nýskriðin úr bælinu þarna, það er önnur saga..

Nafnlaus sagði...

... ég veit ekki hvort ég sé bara svona sorgleg, en ég er buin að skellihlægja af þessum kommentum herna fyrir ofan! besta commentið er samt svarið frá þér stína mín, spurjandi mömmu þína hvort hun hafi verið full (okey eg er sorgleg! haha)

en þessi mynd af þér er annars voðalega lukkuleg, flétturnar segja allt! best er nu samt að sjá hversu svaaakaleg stemmning er fyrir aftan!