17.6.08

Hæ hó og jibbí jeij..

Söng skáfrændi hérna um árið.

Mér finnst alltaf jafn asnalegt að 17 júní sé bara venjulegur dagur í Danmörku. Kjánar að halda ekki uppá þjóðhátíðardag Íslendinga.

En hvað um það. Fór í próf í gær. Hélt að ég myndi falla í yfirlið þegar ég var komin uppí skóla, en Andri fór í föðurhlutverkið og róaði mig niður á nóinu.
Fór inní prófið. Var erfitt en ég einhvernvegin spjallaði mig uppí 7-u svo ég kvarta ekki. Veit ekki hvað það þýðir á íslenska skalanum en held það sé um 8-9. Fínt. Svo maður þarf ekki að hugsa um þetta meira.

Núna tekur við 2-3 stærðfræðitímar á dag þar til 4. júlí. Kem svo heim þá um kvöldið. Verð í bænum á laugardeginum allavega og kannski sunnudeginum þannig að ég ætla að nýta þann tíma til að soga í mig menningu áður en ég fer í sveitina.

Síðan virðist vera þéttsetin dagskrá alveg þangað til ég fer út aftur í lok ágúst. Gamla fólkið í Grundó bíður eftir mér, ættarmót hjá JP, brúðkaup hjá Birnu og Sigga Kára, Grundfirsku dagarnir, Eyjar og svo er ég búin að panta að Óskarsbarn og Gummabarn fæðist áður en ég fer út aftur því ég nenni ómögulega að bíða fram að jólum með að sjá nýjustu frændsystkinin.

Jæja, ætla að fara í apotekið að kaupa plástra og e-ð til að taka hor úr hausnum á mér! Týpískt ég, þegar ég er búin að finna leið til að halda niðri frjókornaofnæminu þá fæ ég bullandi kvef og stíflaðar ennisholur. Er ekki júní eða??

Skemmtið ykkur á 17. júní. Sjálf ætla ég að drösla Villa tengdabróður mínum í bíó með Íslendingum í Horsens. Erum nefninlega með sýningu á Íslenskri mynd í bíó-inu hérna :)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til lukku með þetta! ég panta laugardaginn með þér!!!:D

Kristín Alma sagði...

Amm styð það!

Kaffihús eða eitthvað? Linda líka, það væri allavega ekki verra. ;)

Látið mig vita, so far ekkert plan komið.

Nafnlaus sagði...

jájá, hún fer nú varla til eyja einu helgina sem þú hyggst vera í bænum! þetta verður planað;) no worries

Gúa sagði...

Elsku Kristín Alma bestasta!

Við hlökkum svooo til að sjá þig bráðum! Bannað að vera bara á Grundó....hlakka til að fá að hitta JP. Segðu honum að það sé allt í lagi að hitta okkur. Gangi þér vel með stærðfræðina.

Knús,
Gúa

Kristín Alma sagði...

Helga: Okay töfftöff! Fariði samt ekki báðar á þjóðhátíð??

Gúa: Jájá, ég læt nú sjá mig eitthvað í bænum líka.
Hlakka til að sjá ykkur líka, ég heyri betur í ykkur þegar ég kem.

Bið að heilsa :)

Nafnlaus sagði...

uuu linda fer pottþétt.. en ég veit ekki með mig því eg er ekki með gistingu og ég er ekki jafn köld og þú að geta sofið í tjaldi!