Mér finnst að það ætti að vera mynd af mér við orðið "heppni" í orðabókinni. Einnig fyndist mér réttast að það væri mynd af mér við orðið "kaldhæðni."
Það er einhver sem er farinn yfir móðuna miklu sem er að bögga mig alveg hræðilega. Síðan ég kom til Íslands fyrir tæpum mánuði síðan þá hafa ótrúlegustu hlutir horfið, sporlaust.
Byrjaði voða saklaust, fyrst fann ég ekki sokkana mína, hárspennur, húslykla og þess háttar. Þá var mér sama. En manni finnst þetta lélegur djókur þegar að splunkuný cintamani peysa sem kostaði ekki nema rúmar 12.000 kr týnist og fleira af svona stærri og dýrum hlutum (sé samt mest eftir fu.. peysunni, nú dey ég úr kulda í Eyjum).
Þetta bara gufar upp, gjörsamlega. Einn daginn eru hlutirnir á sínum stað og svo bara búmm, horfnir.
Ekki láta ykkur bregða þó að ég hverfi bráðum, miða við áhuga þessa "félaga" míns á dótinu mínu þá hlýtur hann að fara að taka mig með sér bráðum.
5 ummæli:
Æi ég skal tala við það!!!!!!! Sé þig i aften
Æji, farðu frekar í Galtarlæk elskan mín.
Eyjar eru ekki staður fyrir börnin mín.
Dónt læk itt.
getur verið að maðkarnir þarna inni í herbergi hjá þér hafi étið peysuna?
Gummípabbi: Nákvæmlega þess vegna sem þetta er spennandi. Því ég má ekki.
Þóra: Getur verið að Laddi hafi étið þig?
Úuuuu Eyjar, bara gaman !!!!!!
Þú skalt bara biðja "félagann" blíðum rómi um að skila peysunni og ég er viss um að hún kemst í leitirnar ;)
Skrifa ummæli