3.7.07

Fröken Fix

Spes dagur, vægast sagt.

Klukkan 10.00 var ég kölluð FRÖKEN! Það vakti ekki mikla lukku og í framtíðinni ef/þegar einhver segir þetta við mig hafa afleyðingar. Þetta er svo Geira Goldfinger legt að það hálfa væri ágætt. Frrrööökeeeennn?!
Nú, þremur mínútum seinna var ég svo elt útum allt af einhverjum gaur sem er með eplaþráhyggju. ÉG skemmdi greinilega daginn hans því það voru ekki til epli og hann ákvað að hefna sín með því að elta mig á röndum til klukkan 14.00 og tuða eitthvað um epli. Ég brá á það ráð að ota að manninum melónu en allt kom fyrir ekki, hann vildi epli og engar refjar. Hann minnti helst á gömlu konuna í Stellu í orlofi, EGG EGG EGG. Svipaðar týpur.

Ég átti mín móment í dag sem endranær. Fékk sms frá Ingu Rós í morgun af síminn.is um það að hún væri búin að týna símanum sínum þannig að ég gæti ekki sent sms til hennar hringt. Ég byrjaði náttúrulega á að svara sms-inu og var að ýta á "send besked" (Síminn minn er danskur) þegar ég fattaði að ég gæti ekki sent sms til hennar, þá ákvað ég bara að hringja í hana til að spurja hana hvað hefði nú komið fyrir símann. Reyndi 5 sinnum og aldrei svaraði hún og ég orðin frekar pirruð. Það var ekki fyrr en ég var að hringja í sjotta skiptið að ég fattaði að síminn hennar væri týndur.. döhh!!

Þessari dagbókar-færslu er lokið núna

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha sendi nokkrum svona sms og fékk alveg sömu viðbrögð :D En þú nærð í mig á msn, heima símann og mömmu síma. Ætla samt að fara í Vodafone á morgun og redda þessu því að ekkert bólar á símanum :/

Nafnlaus sagði...

Heyrðu nú mig fröken, hvaða pirringur er þetta.