8.6.07

Komin í "pakkann"

Ég er orðin Við.
Ég vaknaði í eintölu og fór að sofa í fleirtölu.
Svo virðist vera sem Íris og ég séum búnar að eyða of miklum tíma saman. Fólk er farið að tala um okkur sem par. Allavega var Íris spurð í gær hvort að VIÐ værum búnar að ákveða hvort við ætluðum í útileguna um helgina. Þetta fannst henni sjálfsagður hlutur og sagði að VIÐ værum ekki búnar að taka ákvörðun ennþá, en VIÐ myndum bara vera í sambandi..
Skemmtilegt. Ég sem er með skuldbindningar fóbíu á háu stigi.

Hryllilega gott veður, slefar í 30 stig. Ströndin, barinn, mygbit, sviti og hiti.
Ég ætla samt að skauta á barinn núna á eftir, því það er greynilega frosið í helvíti...

Ég er með naglalakk á tánum...!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér líst rosalega vel á hinn helminginn, hana Írisi.
Gangi ykkur allt í haginn dúllur ;-)