1.6.07

Bongó blíða

Ætlaði að tuða yfir því hvað mig langaði að vera á sólarströnd. En svo hringdi pabbi í mig frá Portúgal og sagðist nú bara vera í sundlaugargarðinum í 20 stiga hita og sól. Það eru 25 stig hérna og glampandi sól. Svo gott veður að ég get ekki verið úti.
Upphaflega ástæðan var vegna þess að ég hef þjáðst af miklu frjókornaofnæmi í gegnum árin, sem virðist hafa aukist um 100% frá því í fyrra. En núna er ástæða fyrir inniveru minni önnur. Dóp. Ég varð svo glöð þegar að ég fann upp aðferð til að halda ofnæminu niðri í heila 2 tíma í einu. Með því að taka tvær Benadryl (með 8 tíma virkni), eina Zyrtek (24 tíma virkni) og eina bráðaofnæmistöflu næ ég að anda með munninum, nefinu og sjá útúr augunum.
En ég er svo dópuð að ég get ekki gert nokkurn skapaðan hlut.
Spurning um að fara til læknis?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, hvernig væri það nú Kristín mín ?:) hehh

-KHelga

Brynja Björk sagði...

Ég var úti í 10 stiga hita og súld áðan! Hah! með skúrum á milli! Hressandi.

Tuðra...

Nafnlaus sagði...

Koddu til Færeyja, alltaf fínt veður með sól inn á milli;)