
Í dag þjáist ég af ofsvefni. Svaf of mikið síðasta sólarhringinn. (Það er svosem ástæða fyrir því, óverdósaði af panodil, maður verður að taka 14 töflur til að þetta slái á einhverja verki. Þá virkar þetta bara eins og svefnlyf). Sofnaði klukkan 13.00, vaknaði um 15.00 til að taka fleiri verkjalyf og sofnaði svo aftur til klukkan 18.00. Þá vaknaði ég nú bara því að ég heyrði raddir sem ég kannaðist ekki við. (S.s ekki þessar í hausnum á mér) En þá voru þetta bara heimalingarnir okkar þegar að betur var að gáð. Komnir í föstudagspizzu og Öl.
Gerði mér lítið fyrir og svaf svo í tíu tíma í nótt. Án þess að hafa drukkið áfengi eða tekið pillur. Vaknaði klukkan 12.00 eins og úldin kjúklingur. Ég er kannski bara þunn af pillunum, veit ekki.
Núna er ég að læra og að bíða eftir að einhver bjóði mér í bíó í kvöld. Er að spara djammkraftana fyrir næstu helgi. Þá verður laglega tekið á því. Þá er nefninlega J-dagur í baunaspíruveldinu. Klukkan 20.59 kemur jólabruggið frá Tuborg allir fá einn frían og þetta er sjúkt djamm. Jólabruggið smakkast alltaf eins og skítugir táfýlusokkar þannig að ég er að pæla í að taka video af þegar að við tökum fyrsta sopann.
Hvernig tölvu á ég annars að fá mér? Ég er alveg að fara að kasta þessari útum gluggann og mér á eftir.
3 ummæli:
MacBook Pro já!!! Eða Ibook!
Annars verðuru eins og pabbi, alltaf með PC drusluna í viðgerð;)
Og þannig kvikindi kostar hvað margar milljónir?
Þarf ég að selja nýra til þess að eignast svoleiðis?
Hehe
Heimalingar :)
Skrifa ummæli