6.12.05

Maður ætti kannski að fara að sofa?
Nei, Kristín Alma sefur aldrei, það veit það hvert mannsbarn.
Kristín Alma er líka alveg að fara heim til sín til Danmerkur, og Kristín Alma hlakkar alveg svakalega til.
Þess vegna sefur Kristín Alma bara ekki neitt - ekki hægt.

Þetta var einstaklega óviðburðaríkur dagur framan af, en svo hringdi pabbi með tíðindi mikil, sem að gætu orðið svolítið skemmtileg, ef að maður lítur rétt á þetta, þó að mín fyrstu viðbrögð hafi verið, skondin, en þessar fréttir eru vægast sagt óvenjulegar.
En ég er búin að hugsa um þetta frá öllum mögulegum sjónarhornum og velta þessu vel og lengi fyrir mér, þetta er ekkert hræðilegt, allavega ekki eins og ég hélt að þetta væri :-)
Bara gaman - aldrei hægt að reikna út hverskonar fréttir maður fær, vona að þær haldi bara áfram að vera góðar.
En án gríns, ef að fólkið í kringum mig fer ekki að slaka á og hætta að koma með svona óvenjulegar fréttir þá fer ég bráðum að skrifa handritið af "Bold and the Kristín Alma" eða "Days of Kristin Alma's Life" Það er svo mikið að ske að þetta fer að verða helvíti góð sápuópera, það vantar bara að ég finni my evil twin, gaurinn sem að ég er að deita sé í raun kvennmaður (gæti svosem skroppið helgarferð útúr skápnum, það er náttúrulega í tísku núna sko) eða þá bara hreinlega að ég sé í raun og veru ættleidd, sé frá plánetunni Krypton og sé karlmaður í sokkabuxum sem kallar sig ofurhetju. (Aldrei hef ég skilið þessa árátu hjá þessum svokölluðum ofurhetjum að vera alltaf í sokkabuxum og helst spídó sundskýlu utan yfir...)
En ég er hætt að röfla um þetta því að ég ætla ekki að segja ykkur hvaða fréttir þetta eru og þar afleiðandi er ekki gaman fyrir ykkur að lesa þetta.
Nú er kannski óhætt að greina frá öðrum tíðindum, en þau að ég er að koma til íslands í Janúar og mun dvelja í ja, "piparsveina" íbúð föður míns næstu 6 mánuðina eða svo, komin tími til að það komi kvenmaður á heimilið og hugsi um gamla.
Þetta er svona það helsta sem að er að frétta - Mér líður vel, hlakka svo til að hitta alla á íslandi, og Sölkuna mína!
Elska hana SVO mikið, enda snilldar barn þar á ferð verst hvað hún stækkar fljótt, en núna næsta hálfa árið fær hún algerlega óskipta athygli frá stóru systur 24/7 - hvort sem henni líkar betur eða verr.

4 ummæli:

Inga Rós sagði...

Halló...halló? Er það ekki ég sem sem þessar sápuóperur...róleg bara á því að segjast eiga heiðurinn að þessu...hahaha djóóóóók! :D

Kristín Alma sagði...

við verðum bara að fara í bissness kona!

Nafnlaus sagði...

JA og ég hlakka til að hitta hana Sölku þína..eða eg vona allavega að þú bjóðir mer heim til þín til að sja hana..;) ;*

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

ertu að fara að flytja heim í hálft ár!??? AHHHHH:D:D:D:D